Austurglugginn


Austurglugginn - 31.01.2002, Page 7

Austurglugginn - 31.01.2002, Page 7
Fimmtudagur 31. janúar AUSTUR • GLUGGINN - 7 Leikfélag Seyðisfjarðar er gamalt og rótgróið og fyrir áramót var sviðsett leikritið “Þetta er prinsip mál”, en það er framsamið af heimamönnunum Snorra Emils- syni og Agústi Magnússyni. Tón- listina við leikritið samdi María Gaskell. Leikritið fékk þrasugóða dóma og líklegt er að nokkram sýningum verði bætt við á þessu ári. Snorri lýsir verkinu sem gamanleik í ætt við farsa þar sem allar reglur eru brotnar og tak- markið að skemmta áhorfendum haft sterkast fyrir stafni. Norskir dagar sem haldnir era í ágúst hafa verið vel sóttir bæði af heimamönnum og gestum. Dag- amir era haldnir í tilefni þess að mikilla norskra áhrifa gætir á Seyðisfirði enda vora margir forfeður bæjarins, svo sem Ottó Wathne, norskir athafnamenn og konur. Norskir dagar hafa verið haldnir fimm sinnum og er rat- leikur um slóðir Norðmanna meðal þess sem er á dagskrá. Norska sendiráðið styrkir hátíða- höldin en Alla segir að aðaltil- gangur þeirra sé “að halda sögu staðarins við og Seyðfírðingum sjálfúm við efnið. Svo vonumst við auðvitað til að gestir og gang- andi njóti þeirra með okkur. Dagamir hafa veitt okkur sjálfum ómælda ánægju og það er það sem skiptir öllu máli”. Aldamótabær Stærsta verkefnið sem Alla og félagar standa að þessa dagana er eflaust verkefnið Aldamótabærinn Seyðisfjörður sem hófst fyrir tveimur áram. Um er að ræða samvinnuverkefni sem Seyðis- fjarðarkaupstaður, Þjóðminjasafn íslands, Húsafriðunamefnd ríkis- ins og Þróunarstofa Austurlands standa að. Verkefninu barst styrkur upp á fímm miljónir króna frá Húsaffiðunamefnd í síðustu fjár- lögum. Fyrsta skref sem aðstandendur verkefnisins hyggjast taka er að búa til svokallað húsahótel í hjarta bæjarins. Um er að ræða endur- byggingu gamalla húsa sem standa við Lónið. Til að byrja með verða fjögur hús gerð upp en í þeim munu verða 37 herbergi til leigu. “Þrátt fyrir að herbergin séu búin öllum nútíma hægindum mun hið gamla útlit húsanna látið halda sér og saga þeirra látin njóta sín. Þama er til dæmis húsið sem Ingi T. Lárasson lagahöfundur ólst upp í og samdi sum sinna ffemstu Menningarmiðstöðin Skaftell verka og er meiningin að halda upp á þessa tengingu með ein- hverjum hætti,” sagði Alla. Mikill uppgangur var á Seyðis- firði upp úr þarsíðustu aldamótum og var árið 1907 þar mikilfeng- legast en mörg reisulegustu hús bæjarins vora byggð það árið. Stefnt er því að einhvers konar hátíðarhöldum árið 2007 í sam- bandi við Aldamótabæjarverkefn- ið. Uppgangur er núna í menning- arlífi bæjarins og segir Alla að “greinilegt sé að aldamót hafi mjög góð áhrif á Seyðisfjörð því einhver orka fari í gang”. Uppsveifla er í varðveislu og uppbyggingu gamalla húsa á Seyðisfirði þessa dagana og telur Alla að þar hafi mikilvægur áfangi verið að stofnað var til starfs menningar og ferðamálafulltrúa sem hún gegnir. “Ég þakka mér ekki fyrir það sem gengur vel hér, en ég þakka þessu starfi það að ég hef náð að tengja þetta fólk sem oft kallar sig Fúaspýtufélagið, og náð að hrinda draumum þess í framkvæmd sem er í raun vemdun dýrmætrar menningararfleifðar”. Þegar Ansturglugginn kvaddi Seyðisfjörð hafði myrkrið breitt væng sinn yfír makindalegt bæjar- stæðið. Tunglið hékk skakkt og glottandi rétt yfir húsþökunum en við rætur fjallsins Bjólfs lýsti stórt og mikið skilti stöfum sem mynduðu orðið “Aldamótabær”. Einn ágætur heimamaður sagði að þetta væri Hollywoodskilti þeirra Seyðfirðinga. Það mætti þó líka segja að skiltið lýsi því stolti og þeim áherslum sem heimamenn leggja á uppbyggingu og framgang eigin menningar. KO Ó/KUM AU/TFIRÐINGUM TIL HAMINGJU MEÐ AU/TU RGLU GGAN N Seyðisfjarðarkaupstaður Eldra fólk en ekki borgarar STARFSEMI eldri Austfirðinga er öflug að vanda. Emil Emilsson er formaður Framtíðarinnar sem er félag eldra fólks á Seyðisfirði, en þeim finnst ástæðulaust að kalla sig eldri borgara. Rabbfundir, líkamsrækt, spilakvöld og böll era meðal margbreytilegra uppákoma sem Framtíðin stendur fyrir, en Emil segir að einnig sé mikilvægt að góð samskipti séu við önnur félög af svipuðum toga.“Það væri mjög gott ef fólk léti heyra í sér svo hægt væri að skipuleggja sam- eginlegar uppákomur,” sagði Emil. Kátt var á hjalla og fúllt Sigfúsarhúsið á dögunum þegar Félag eldri borgara í Neskaupstað hélt þar þorrablót og bar söng og hákarlslykt langt út á götu. Guðný Jónsdóttir var ein fjölmargra sem skelltu sér á Þorrablót félags eldri borgara í Neskaupstað Snjósleðakappi við Oddsskarð nýtir sér veðurblíðuna r A tryllitæki í faðmi náttúrunnar Þrátt fýrir að skíðafærið láti standa á sér nýttu margir sér góða veðrið síðasta sunnudag til útivistar. Þegar farið var um Oddsskarðs- svæðið síðustu helgi gaf að líta fjöldan allan af snjósleðafólki sem þaut um brekkumar, og minnti helst á fiskiflugur að vori. Snjósleðaiðkun hefúr vaxið mjög hratt á undanfömum áram og vora sumir ökumannanna aðeins nokkurra ára gamlir. Bömin voru vel búin og flest með hjálma. Augljóst þykir að keppnir í snjósleðakeyrslu sem haldnar hafa verið undanfarin ár hafí aukið mjög áhuga meðal almennings, og mátti sjá hæfileikaríka keppendur framtíðarinnar æfa sig í Odds- skarði. Gaman verður að sjá hvemig þessi kynslóð snjósleðabama mun þróast með áranum og spurningin er hvort sleðamir verði að lokum vinsælli en gömlu góðu skíðin og snjóbrettin. Óskum Austfirðingum til hamingju með nýtt fréttablað Austurgluggann Vopnafjarðarhreppur

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.