Austurglugginn - 31.01.2002, Side 11
Fimmtudagur 31. janúar
AUSTUR • GLUGGINN - 11
Um nýtt blað og gjald
skrár sveitarfélaga
Ég er áhugamaður um útgáfustarf-
semi á Austurlandi. Sjálfur stóð ég
á sínum tíma fyrir útgáfu á aust-
firsku blaði sem hét því undarlega
nafni Plús-fréttir. Að blaðinu
komu nokkrir “ungir” og kraft-
miklir aðilar af Austurlandi sem
allir deildu áhuga mínum á útgáfu-
málum. Því miður varð blaðið bara
eitt - upp komu alvarlegir sam-
starfserfíðleikar í hópnum og
þegar blað númer tvö var nánast
tilbúið slitnaði upp úr samstarfmu.
Ég hef sjálfsagt sjálfur átt jafn
mikla sök á því að uppúr
samstarfinu slitnaði og aðrir í
hópnum, og um leið að aðeins eitt
blað kom út. Þó fannst mér það
ákaflega leiðinlegt, sérstaklega
eftir að Austri og Austurland hættu
göngu sinni um svipað leyti.
Staðreyndin er sú að fjórðungnum
er nauðsyn að eiga miðil sem allir
geta kallað sinn - þó kannski
ekkert af áðumefndum blöðum
hafi staðið undir því. Það er hins-
vegar staðreynd að í fjórðungi sem
er jafn stór og erfiður yfirferðar og
Austurland er, þá þurfa Norð-
firðingar að hafa aðgang að upp-
lýsingum um hvað er að gerast á
Breiðdalsvík, Héraðsmenn að vita
hvað gerist á Eskifírði o.s.frv. Nú
er sá miðill vonandi kominn - og
enn og aftur tek ég fram að ég
fagna því. Að sjálfsögðu hefur
Ríkisútvarpið á Austurlandi staðið
sig vel hvað þetta varðar en stað-
reyndin er, a.m.k. hvað mig
varðar, að jafn oft og ég man eftir
að hlusta á útsendingu RUV-Aust
þá gleymi ég því eða hef ekki tök
á því. Kosturinn við blöðin er að
þau geta legið dögum saman og
beðið eftir því að maður hafi tíma.
Þetta er því góður dagur - dag-
urinn sem nýtt blað fyrir allt
Austurland lítur dagsins ljós og ég
vona heitt og innilega að vegur
þess verði sem mestur. Til að
tryggja það hefur félagið sem ég
vinn fyrir þessa stundina, AFL
Starfsgreinafélag Austurlands,
ákveðið að leggja fram hlutafé til
starfseminnar að upphæð 500.000
krónum og ennfremur náðust
samningar um 30% afslátt til
handa félagsmönnum í AFLI á
áskrift að blaðinu. Það er í fram-
haldi von mín að sem flestir fé-
lagar í AFLI nýti sér þetta tilboð.
En þrátt fyrir að ég sé ánægður
vegna nýja blaðsins er mér samt
ekki skemmt. Eins og alþjóð veit
gekk verkalýðshreyfingin fram
fyrir skjöldu 13. desember síðast-
liðinn til að stuðla að hjöðnun
verðbólgu og treysta kaupmátt
launa. í stað þess að segja upp
launalið kjarasamninga var gert
samkomulag við íslenska ríkið og
Samtök Atvinnulífsins til að stuðla
að áðumefndum markmiðum.
Hvort þessar aðgerðir skila árangri
verður tíminn að leiða í ljós en ég
vona persónulega , eins og svo
margir aðrir, að svo verði. En til
þess verða allir að leggjast á eitt.
Um þessar mundir hafa sveitar-
félög á svæðinu verið að auglýsa
gjaldskrár sínar og þær em því
miður stundum á þann veg að mér
er alls ekki skemmt. A sama tíma
og verkafólk sýnir það í verki með
áðumefndu samkomulagi að það
vilji vinna að því að stuðla að
góðæri á næstu misserum - að
snúa við þeirri verðlags- og verð-
bólguþróun, keppast sum sveitar-
félög við að hækka álögur sínar. A
sama tíma og launafólk, sem er
meirihluti íbúa þessara sveitar-
félaga, hefur gefið út þá yfir-
lýsingu að það sé tilbúið til að taka
á sig ábyrgð og tekjuskerðingu
senda sveitarfélögin frá sér eigin
yfirlýsingu - við ætlum ekki að
gera það sem okkur ber. Ég veit að
sveitarfélögin eiga í erfiðleikum.
Ég veit líka að sum þeirra em ekki
vel rekin og að sumir hafa gengið
svo langt að einfalda málið mjög
og kenna of miklum launahækk-
unum um vandann þegar stað-
reyndin er að vandinn er fjölþættur
og stafar meðal annars af því að
ríkið hefur flutt verkefni yfir á þau
án þess að tryggja tekjustofn fyrir.
En í stað þess að vinna áfram og af
meiri krafti að því að fá leið-
réttingu á þessu er vandanum velt
yfir á íbúana með hækkunum á
gjaldskrám. Þetta bitnar að sjálf-
sögðu verst á þeim sem minnst
mega sín - þeim sem minnst hafa
fýrir. Þessir einstaklingar em því
miður orðnir svo vanir þessu að
þeir kippa sér ekki upp við það þó
þessi leið sé farin einu sinni enn.
Ríkið hefur reyndar ekki heldur
staðið sig sem skyldi. Sjáum t.d.
500 milljón króna “spamað” í heil-
brigðisgeiranum sem áðumetfndur
hópur mun bera - aðgerð sem ríkið
stendur fyrir á sama tíma og fleiri
hundmðum milljóna er t.d. eytt í
sendiráð í Japan. Það hefði verið
nær að setja þessa peninga í heil-
brigðiskerfið og eyða síðan mis-
muninum í sveitarfélögin.
Aðalbjörn Sigurðsson
framkvœmdastjóri AFLS Starfsgreinafélags
Austurlands.
ATVINNA
OSKUM AUSTFIRÐINGUM
TIL HAMINGJU
MEÐ NÝTT HÉRAÐSFRÉTTA8LAÐ
VLVF ►
LOVNUVINNSLAN HF. SKÓLAVE6159 FASKRÚOSFIROI
Mótaskrá UIA 2002
Febrúar
9. Meistaramót UÍA í írjálsum íþróttum innanhúss.
15. -16. íslandsmótið í blaki kv. ÞrótturN. Víkingur
16. Oddsskarðsmót á skíðum (allir flokkar)
Mars
Fáskr.
Nesk.
Oddskarð
9. Björnsmót á skíðum (12 ára og yngri) Stafdalur
16,- 17. /23,- 24 Austurlandsmót 2. og 3. fl. kk. og kvk.í knattspymu.
Apríl 13. og 14. Aldursflokkamót í blaki Nesk
6.-7. Austurlandsmót á skíðum Oddskarð
13. Austurlandsmót í körfuknattleik Egilsst.
20. og 21. Austurlandsmót 4/5. og 6. fl. kk. Og 4. fl. kvk. í knattsp.
Maí 25. Vormót UÍA í sundi Nesk.
15. Vormót UÍA í ífjálsum íþróttum Egilss.
Júní 22. Júnímót UÍA í sundi Reyðarf.
Júlí 13.-14. Sumarhátíð UÍA, meistaramót í frjálsum íþ. Egilss.
Ágúst 10. Sumarmót UÍA í sundi Nesk.
24. Haustmót UÍA í frjálsum íþróttum (boðsmót) Egilss.
Sept.
7.-8. Meistaramót UÍA í sundi Egilss.
Skrifstofan á Egilsstöðum sími 471 1353, í Fjarðabyggð 477 1053.
Fréttir af starfinu á www.uia.is. Fjölmörg námskeið í gangi hjá ÍSÍ og UMFÍ.
Námskeið verða haldin á svæðinu eftir þörfum ef næg þáttaka fæst.
Næst á dagskrá!
Austurlandsmót í frjálsum íþróttum innanhúss á Fáskrúðsfirði í umsjón Leiknis.
Skráning hjá UÍA í síma 471 1353 og 477 1053 og hjá Hafdísi í síma 475 1499.
Skráningargjöld verða innheimt af mótshaldara á mótsstað.
UIA