Austurglugginn - 31.01.2002, Síða 15
Fimmtudagur 31. janúar
AUSTUR • GLUGGINN - 15
SKARPHÉÐINN G. ÞÓRISSON
Forsíða Glettings - Forsíðnmyndin sýnir fyrirhugað stíflustæði við
Fremri-Kárahnjúk, horft til norðurs. Greina má veg Landsvirkjunar
sem endar í stíflustœðinu sjálfu en stíflugarðurinn mun ná upp að
klettasnösinni miðja vegu milli gljúfurbotns og tinds. Gljúfrið á
myndinni fer undir vatn við fyrirhugaðar framkvæmdir.
Kárahnjúkablað Glettings
NÝJASTA tölublað Glettings er
helgað Kárahnjúkasvæðinu í til-
efni fyrirhugaðra virkjanafram-
kvæmda.
Blaðið er hið glæsilegasta í alla
staði, 100 blaðsíður að stærð og
ríkulega skreytt myndum. Fjallað
er um svæðið og fyrirhugaðar
framkvæmdir frá ýmsum sjónar-
miðum og á sem hlutlausastan hátt
en megin áherslan er á náttúrufar
og jarðfræði Kárahnjúka, gljúfr-
anna miklu og Vesturöræfa.
Greint er frá fyrirhuguðum
virkjanaframkvæmdum, möguleg
áhrif þeirra á hreindýrastofhinn og
vatnalíf, samspili virkjana og
hugsanlegs þjóðgarðs norðan
Vatnajökuls, áhrifum virkjunar á
mannlíf í Jökuldal og Fljótsdal og
almennt fjallað um byggðaþróun á
Austurlandi og vonir þær sem
bundnar eru við fyrirhugaða virkj-
un og álver.
Allir þeir sem vilja kynna sér
nánar Kárahnjúkasvæðið og
virkjanaáform ættu að nálgast
þctta blað, hvort sem þeir eru með
eða á móti fýrirhuguðum
ffamkvæmdum, enda munu áhrif
þeirra verða umtalsverð, jákvæð
jafnt sem neikvæð. Utgáfa
Glettings er styrkt af fjölmörgum
aðilum á Austurlandi og víðar.
Nýjasta tölublað er í raun tvöfalt
og kostar 1000 kr. en nálgast má
frekari upplýsingar á vefsíðu
blaðsins, www.glettingur.is. bþ
SKARPHÉÐINN G. ÞÓRISSON
Dimmugljúfur við Ytri-Kárahnjúk, með allt að 180 metra háum kletta-
veggjum. Þessi hluti gljúfranna er fyrir neðan fyrirhugaðan stíflugarð
og mun því lítið breytast.
Fjarnám fyrir þá sem stefna á
stúdentspróf eða verknám
(undirbúningur)
I undirbúningi er að hefja ó Austurlandi næsta haust
skipulagt fjarnám fyrir þá sem stefna á stúdentspróf eða
þurfa grunn undir nám á styttri starfs- og verksnáms-
braut. Nú á vorönn 2002 er hins vegar hafið undir-
búnings- eða upprifjunarnám í völdum greinum fyrir þá
sem hafa hug á að hefja nám næsta haust þ.e. í stærð-
fræði (Helgi Georgsson, FAS), dönsku (Jónína Rós Guð-
mundsdóttir og Sigrún Blöndal ME), Ensku (Rannveig
Þórhallsdóttir ME) og íslensku (Zophonías Torfason FAS).
Einnig verður boðið upp á grunnnám í tölvufræðum.
Kennsla er byrjuð en ennþá er hægt að bæta við
nemendum. Hægt er að sækja tíma í ME, á Fáskrúðs-
firði, í FAS og í Neskaupstað (VA).
Upplýsingar veita:
ME Finnur 471 2500
VA Marinó 477 1620
FAS Sigurgeir 478 1870
Viðvera fulltrúa Þróunarstofu í Fjarðabyggð
Starfsmaður Þróunarstofu Austurlands verður með
viðveru á Reyðarfirði fimmtudaginn 7. febrúarfrá
kl. 13-16 á bæjarskrifstofu Reyðarfjarðar
Hægt er að panta viðtalstíma í síma : 471-2545
eða 893-9303
Þróunarstofa Austurlands
Reglur um niðurfellingu fasteignaskatts
elli- og örorkulífeyrisþega og niðurfelling
fasteignagjalda vegna fráfalls maka:
1. Niðurfelling fasteignaskatts skal vera tekjutengd og miðuð við árstekjur 2000
sbr. álagningu skattstjóra 2001 og er sem hér segir:
a) Einstaklingar: Brúttótekjur allt að kr. 1.072.000 100% niðurfelling
Brúttótekjur allt að kr. 1.499.000 50% niðurfelling
b) Hjón: Brúttótekjur allt að kr. 1.606.000 100% niðurfelling
Brúttótekjur allt að kr. 1.999.000 50% niðurfelling
2. Búi fullvinnandi einstaklingur (eða hjón) inn á heimili ellilífeyrisþega, fellur
fasteignaskattur ekki niður.
3. Hafi veruleg tekjulækkun orðið hjá ellilífeyrisþegum milli áranna 2000 og
2001 hefur forstöðumaður fjármálasviðs heimild til að taka tillit til þess við
niðurfellingu fasteignaskatts berist umsókn um slíkt ásamt afriti skattframtals.
4. Sömu reglur gilda um niðurfellingu fasteignaskatts hjá öryrkjum með fulla
örorku.
5. Við fráfall maka eða sambýlismanns skulu fasteignagjöld af íbúðarhúsnæði
sem fjölskylda hins látna (hinnar látnu) á og býr í, felld niður að fullu fyrsta
árið, en að hálfu annað árið.
ó. Falli aðstæður ekki undir þær reglur sem að framan greinir skal bæjarráð
ákveða um lækkun eða niðurfellingu fasteignaskatts.
Álagning í Fjarðabyggð er sem hér segir:
Fasteignaskattur A er 0,38 % af fasteignamati og lóðarhlutamati.
Fasteignaskattur B er 1,65 % af fasteignamati og lóðarhlutamati.
Lóðarleiga er 1,5% af lóðarhlutamati.
Vatnsskattur er 0,27% af fasteignamati.
Holræsagjald er 0,1 5% af fasteignamati.
Sorphreinsunargjald er 6.000 kr.
Sorpeyðingargjald er 5.000 kr.
Fjöldi gjalddaga er átta: 1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, ... 1. september
Eindagi fasteignagjalda er síðasti virki dagur gjalddagamánaðar.
FJARÐABYGGÐ