Austurglugginn - 20.11.2003, Qupperneq 7
Fimmtudagur 20. nóvember
AUSTUR • GLUGGINN
7
Jól á Héraði 2003
w .. ' i ét i; i ' r i r: : i i
Þau nálgast blessuð jólln og undirbúningur fer senn að hefjast í borg og bæ.
*
&
sdpe
=fcp<
Eflum verslun, mannlíf og
menningu á Austurlandi
Á viðburðaskrá hins árlega “jólakattaplaggats” geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi.
Á aðventunni ættu allir að gefa sér tíma til að njóta listviðburða, sækja kirkjur, fara á jólahlaðborð,
fara í búðaráp, föndra með börnunum, lesa góða bók, baka smákökur og borða þær.
Jólakattaplaggatið kemur í öll hús
á Austurlandi 26. nóv. nk.
m
Bregðið á leik, verslið í heimabyggð og takið þátt í “jólakattaleiknum”
sl±te
=fcp=
Veglegir vinningar í hverju fyrirtæki.
(sjá vinningaskrá á bakhlið plaggats). Og munio að plaggatið sjálft
er happdrættismiði með veglegum ferðavinningi.
*
Jólakötturinn er farinn að rumska
eftir væran blund og farinn að hugsa
sér gott til glóðarinnar.
V/w " £-°3 ÞJonustuaði|ar
a bJóða ykkur og
kjesa” velkomin
*
Horfum til framtíðar - verslum heima
- verslum á Austurlandi
SKRIÐUKLAUSTUR
Hús Gunnars Gunnarssonar skálds
Home of the writer Gunnar Gunnarsson
Menningarsetur ■
Centre of culture
Kulturzentrum
Kvöldvaka á Dögum myrkurs - föstud. 21. nóv. kl. 20
Blönduð dagskrá þar sem rýnt verður í fornar skræður og
draugaheimar skoðaðir. Meðal gesta verða: Hjalti Pálsson
sagnamaður úr Skagafirði, Kristín Heiða Kristinsdóttir frá Drauga-
og tröllaskoðunarfélagi Evrópu og Muff Worden tónskörungur.
Grýlugleði - sunnud. 30. nóv. kl. IS
Grýlusaga Gunnars Karlssonar flutt með tónum og tali. Börn
úr 4.-5. bekk Fellaskóla með Grýluatriði. Jólakökuhlaðborð.
Lomber — fimmtud. 4. des. kl. 20
Síðasta lomberkvöld fyrir jól.
JÓLAHLAÐBORÐ á Skriðuklaustri
Veitingastofan Klausturkaffi verður með jólahlaðborð föstudags-
og laugardagskvöld 5. og 6. des. og 12. og 13. des. Að venju munu
borð svigna undan dýrindis kræsingum og tekið verður á móti
gestum með jóladrykk og lifandi tónlist.Tryggið ykkur sæti í tíma
þar sem sætafjöldi er takmarkaður. Verð óbreytt kr. 3.990.
www.skriduklaustur.is
Stofnun Gunnars Gunnarssonar
Sími 471 2990 • Fax 471 2991
Veitingastofa/Café 471 2992
klaustur@skriduklaustur.is
r
Tilkynning um
lögheimilis-
flutning
Fyrir 1. des. nk. eiga allir þeir sem búsettir
eru á Austur-Héraði, en voru ekki með
lögheimili þar samkvæmt síðustu íbúaskrá,
að hafa fyllt út þar til gerða flutnings-
tilkynningu til Hagstofu íslands og tilkynnt
um rétt lögheimili. Eyðublaðið liggur
frammi á skrifstofu sveitarfélagsins. Hið
sama gildir um þá sem flutt hafa heimili
sitt innan sveitarfélagsins.
Hér með er skorað á alla þá sem ekki hafa
þegar gengið frá þeim málum að Ijúka því
af hið fyrsta.
Austur-Hérað áskilur sér rétt til að kæra
þá íbúa inn á íbúaskrá sem ekki verða við
þessari áskorun, en eiga samkvæmt lög-
heimilislögum að vera skráðir með heimili
sitt í sveitarfélaginu.
Bæjarstjóri Austur-Héraðs
Byggðakvóti
laus til umsóknar
Fjarðabyggð auglýsir 70,5 þorskígildistonna byggðakvóta
lausan til umsóknar, samkvæmt reglugerð 596/2003 og
reglum sem Fjarðabyggð hefur sett um úthlutun hans sem
eru svohljóðandi:
1. Úthlutuðum veiðiheimildum verði eingöngu skipt milli
þeirra skipa sem skráð hafa verið með heimahöfn í Fjarða-
byggð fiskveíðiárið 2002-2003. Einnig eiga skip rétt á út-
hlutun ef eigandur þeirra hafa átt lögheimili og starfsstöð
í Fjarðabyggð á umræddum tíma. Einungis aflamarksskip
og krókaaflamarksbátar eiga rétt á úthlutun. Skal úthlut-
un til einstakra skipa taka mið af úthlutuðum aflaheimild-
um þess á fiskveiðiárinu 2002/2003.
2. Hvert fiskiskip getur fengið 10 þorskígildislestir að há-
marki.
3. Einungis verði úthlutað til þeirra sem leggja fram sam-
komulag við fiskvinnslustöð í Fjarðabyggð um vinnslu
þeirra aflaheimilda sem sveitarstjórn úthlutar. Jafnframt
skulu útgerðarmenn hlutaðeigandi skipa lýsa yfirvilja sín-
um til að láta vinna í Fjarðabyggð af eigin aflaheimildum
sama fjölda þorskígilda og sveitarstjórn úthlutar skipum
þeirra.
4. Verði útgerð vís aö því að fylgja ekki þeim skilyrðum þeim,
sem sett eru varðandi vinnslu afla i Fjarðabyggð, fyrirger-
ir hún rétti sínum til hugsanlegrar úthlutunar á næsta ári,
að óbreyttum reglum.
Umsóknarfrestur er til og með 5. desember 2003 og ber að
skila skriflegum umsóknum ásamt staðfestingu Sjávarút-
vegsráðuneytis á úthlutuðum aflaheimildum 2002/2003,
samkomulagi við fiskvinnslustöð í Fjarðabyggð um vinnslu
aflaheimilda og viljayfirlýsingu um að sami fjöldi þorskígilda
af eigin aflaheimildum og úthlutð er skv. reglum þessum
verði unnin í Fjarðabyggð. Umsóknareyðublöð er að finna á
heimasíðu Fjarðabyggðar og á bæjarskrifstofum.
Forstöðumaður stjórnsýslusvið