Austurglugginn


Austurglugginn - 12.08.2004, Page 1

Austurglugginn - 12.08.2004, Page 1
Útgerðarmaður ósáttur. Viðtal við Albert Geirsson Sjá bls. 6 Hverjir eiga sjávar- útveginn eystra? Úttekt Austur- gluggans Sjá bls. 7 Hafaldan 30 ára: Þóra opnar Draumhús Sjá bls 10 Gerpir vann! Malarvinnslu bikarinn Sjá bls. 10 Austur«gluggmn 31. tbl. - 3. árg. - 2004 - Fimmtudagur 12. ágúst Ertþú áskrifandi? Áskriftarsíminn er l 477 1571 Verð í lausasölu kr. 350 Áskriftarverð kr. 1.140 á mánuði (kr. 285 eintakið) ISSN 1670-3561 Landflutningar - Samskip Kaupvangi 25 700 Egilsstaóir Sími 471 3080 Fax 471 3081 Opnunartími: Mánudaga til föstudaga frákl. 08:00-16:00 ALHLIÐA VERKTAKA- STARFSEMI HAKI EHF. Neskaupstað ® 892 5855 1962-2002 Austfjarðaleið 477 1713 Hin árlega uppskeruhátíð Héraðsmanna, Ormsteiti, hefst nú um helgina með pompi og prakt. Hátíðin í ár mun teygja anga sína um allt Héraðið og ættu allir að geta fundið sér eitthvað skemmtilegt að gera nú næstu tvær helgar. Hátíðin sem er hvort tveggja uppskeruhá- tíð og ekki síst til heiðurs Lagarfljótsorminum ógurlega hefst næstkomandi föstudag og mun standa til 22. ágúst. Fyrir þá sem fá ekki nóg afslíkum hátíðum er rétt að taka fram að Norskir dagar eru á Seyðisfirði og því ætti enginn að geta hangið heima í fýlu þessa helg- ina. Myndin er frá skrúðgöngu á Ormsteiti í fyrra og þar sést Ormurinn langi í fylgd nokkurra stuðningsmanna sinna. Sameining á Héraöi íbúafundur samþykkir áskorun íbúafundur á Norður-Héraði s.l. laugardag skoraði á félags- málaráðuneytið að ógiida ákvörð- un um sameiningu þriggja sveit- arfélaga á Héraði í kjölfar þess að sveitarstjórn hafnaði ósk um at- kvæðagreiðslu á þeirri forsendu að hún hefði komið of seint fram. Heitt var í kolunum á íbúafúndi á Norður-Héraði þar sem tekist var á um þá ákvörðun sveitarstjórnar að ganga til sameiningar við Austur- Hérað og Fellahrepp. Fundurinn var boðaður til kynningar á sameining- unni en áður höfðu níutíu og þrír kjósendur á Norður-Héraði krafist þess að boðað yrði til fundar þar sem rætt yrði um sameininguna og kosningu þar að lútandi. Um þetta fjallar 104. grein sveitarstjórnalaga en þar er þetta m.a. að finna: „Heimilt er sveitarstjórn að efna til almennrar atkvæðagreiðslu um ein- stök mál og að boða til almennra borgarafunda um málefni sveitar- félagsins...Skylt er að halda al- mennan borgarafund ef 1/4 hluti at- kvæðisbærra manna í sveitarfélag- inu óskar þess...Sveitarstjórn getur efnt til almennrar atkvæðagreiðslu í sveitarfélagi eða hluta þess til þess að kanna vilja kosningarbœrra íbúa um tiltekið málefni. Niðurstaða at- kvœðagreiðslunnar er ekki bindandi um afgreiðslu málsins fyrir sveitar- stjórn nema hún hafi fyrir fram á- kveðið að svo skuli vera. “ Fremur fámennt var á fundinum eða í kring- um íjörutíu manns en á kjörskrá eru tvö hundruð og átján. Forsaga málsins er sú að í kosn- ingum um tillögu að sameiningu allra fjögurra sveitarfélaga á Hérað fyrr í sumar, felldu íbúar Fljótsdals- hrepps tillöguna en samstarfsnefnd um sameiningu tók þá ákvörðun að sveitarfélögin þrjú sem samþykktu, skyldu sameinast og hefur það nú verið samþykkt af sveitarstjórnum þeirra allra en í 91. grein sveitar- stjórnarlaga segir m.a.: „Hljóti til- laga samstarfsnefndar skv. 90. gr. ekki samþykki í öllum hlutaðeigandi sveitarfélögum, en þó meiri hluta greiddra atkvœða í a.m.k. 2/3 þeirra og í þeim sveitarfélögum búi a.m.k. 2/3 íbúa á svæðinu, er viðkomandi sveitarstjórnum heimilt að ákveða sameiningu þeirra sveitarfélaga sem samþykkt hafa sameininguna. “ Þeir sem vilja að kosið verði á ný um sameiningu, vitna til 104. grein- arinnar en sveitarstjórn lítur til 91. greinarinnar og vísaði Hafliði Hjarðar, varaoddviti til hennar á fundinum þegar hann sagði að vald- ið væri í höndum sveitarstjórnarinn- ar. Talsmenn hópsins sem stóð fyrir undirskriftarlistanum létu í ljósi óá- nægju sína með þau rök sveitar- stjórnar að málið hefði verið af- greitt við fyrri umræðu en þeir telja að svo geti ekki verið fyrr en eftir hina síðari, en undirskriftarlistinn barst sveitarstjórn á milli umræðna. Nokkrar umræður spunnust um málið en því lauk með því að fund- urinn samþykkti áskorun til félags- málaráðuneytisins um að ógilda sameininguna. Nánar á bls. 3. bvg Afgreiðslutími í Bónus á Egilsstöðum g Mánudag til fimmtudags < 12.00 til 18.30 ÍkSS?! 8 Föstudag 10.00 til 19.30 £ Laugardag 10.00 til 18.00 ^ Sunnudag 12.00 til 18.00 Sjáumst í Bónus á E?ilsstöðum Ódýrastir um allt land!

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.