Austurglugginn


Austurglugginn - 12.08.2004, Page 2

Austurglugginn - 12.08.2004, Page 2
2 AUSTUR • GLUGGINN Fimmtudagur 12. ágúst 1 stuttar FRÉTTIR FRÉTTIR HÆ rzfn Sameining á Héraði Sveitarstjórnir sveitarfélag- anna þriggja, Austur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-Héraðs, hafa nú allar samþykkt samein- ingu sveitarfélaganna. Oddvitar þeirra undirrituðu, á fúndi í síð- ustu viku, beiðni um formlega staðfestingu á sameiningunni sem send hefur verið tii Félags- málaráðuneytisins. Ákveðið hef- ur verið að kosningar til nýrrar sveitarstjórnar fari fram 16. októ- ber næstkomandi. Samhliða sveitarstjórnarkosningunum verður gerð skoðanakönnun um nafh á nýju sveitarfélagi. Um 3000 íbúar verða í hinu nýja sameinaða sveitarfélagi Austur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-Héraðs. Sameining undirrituð og staðfest Soffía Lárusdóttir, Arnór Benediktsson og Þorvald- ur Hjarðar, forsvarsmenn sveit- arféiaganna þriggja sem nú verða eitt, undirrita. Garðar Harðarson, músíkant á Stöðvarfirði. „Bara allt fínt að frétta af mér og öðrum Stöðfirðingum," sagði Garðar Harðarson nýmættur á línuna hjá Austurglugganum í byrjun vikunnar. Garðar var einn af aðstandendum Djasshátíðar Egilsstaða þetta árið en hátíðin þótti takast prýðilega og aðsóknin góð. „Ég held að það sé nú ekki hægt að segja annað en að Havana band Tómasar R. Einars- son hafi verið hápunktur hátíðar- innar í ár enda er þetta að ég held í fyrsta sinn í sögu hátíðarinnar sem við sjáum gesti á tónleikum dansa, þvílík var stemningin.“ Garðar er með plötu í vinnslu sem hann áætlar að komi út næsta sumar. „Ég hafði nú ætlað mér að gefa hana út i sumar en það gekk ekki svo við segjum bara næsta sumar,“ sagði Garðar en platan er instrumental. Sonur Garðars, Hilmar, gaf nýverið út plötuna „Pleased to leave you“ en platan hefur verið að fá fína dóma og var meðal annars plata vikunnar í Fréttablaðinu í síðustu viku. Garðar er að vonum ánægður með gripinn hjá stráknum. „Já enda er platan alveg stórfín og vel unnin, enda mikið af góðu fólki sem tók þátt í gerð hennar,“ segir Garðar sem er á leið til Reykja- víkur í næsta mánuði ásamt átta manna blús/brazzbandi sem hann leikur með ásamt Áma ísleifs, Þorleifi Guðjónssyni og fleiri góðum. Bátur sökk í höfnirmi á Eskifirði: Björgunarsveitin reddar málunum / hálfu kafi Eins og sést á myndunum stóð stefni bátsins upp úr og kom í veg fyrir að hann sykki til botns. Myndir: ÞH/ESK Lítill sportbátur sökk í höfhinni á Eskifirði fimmtudaginn í síðustu viku. Að sögn Halldórs Vilhjálms- sonar, formanns björgunarsveitar- innar Brimrúnar á Eskifirði urðu vegfarendur varir við að báturinn væri sokkinn, þar sem hann lá utan á öðrum bát í smábátahöfninni, um hádegið síðastliðinn fimmtudag. Björgunarsveitin kom á staðinn og tókst að dæla lofti í stýrishús báts- ins áður en öflugt spil var notað til að ná bátnum upp í fjöru þar sem kranabíll var notaður til að ná bátn- um í land. Halldór segir óljóst hvernig slysið vildi til en báturinn er lítið skemmdur eftir volkið en blíðuveður var á Eskifirði þegar báturinn sökk. helgi@agl.is Dularfullar íkveikjur í tveimur húsum á Vopnafirði: Andlega veik kona játar Kona játaði við yfirheyrslur hjá lögreglunni á Vopnafirði fyrir helgi að hafa borið eld að tveimur húsum í bænum um verslunar- mannahelgina. Konan gat litla sem enga skýringu gefið á hátt- erni sínu en hún á við geðræn vandamál að stríða að sögn lög- reglu. Mesta mildi þykir að ekki urðu stórslys á fólki og húsunum tveimur. Konan hefur verið vistuð á stofnun þar sem hún leitar sér nú hjálpar. Konan játaði sem fyrr segir að hafa verið valdur að íkveikjunum við yfirheyrslur hjá Iögreglu nú rétt fyrir helgi en lögreglu barst ábend- ing um hugsanleg tengsl hennar og íkveikjanna. Þetta staðfesti lögregl- an á Vopnafirði í samtali við Aust- urgluggann. Mál konunnar mun nú að sögn lögreglu fara til meðferðar i dómskerfinu en hún mun eiga við geðrænan vanda að etja og lögregla neitaði að gefa upp hvers vegna hún hefði valið þessi tvö hús umfram önnur aðfaranótt sunnudags síðast- liðna verslunarmannahelgi. Végfar- andi varð þá var við að eldur væri laus í húsi í bænum og gerði lög- reglu viðvart. Slökkvilið kom þá í veg fyrir stórtjón en engan sakaði þar sem heimilisfólk var ekki á staðnum. Daginn eftir kom svo í ljós að reynt hafði verið að kveikja í öðru húsi í bænum en þá hafði eld- ur slokknað af sjálfum sér. Lögregla hóf þegar að rannsaka málið enda benti allt til að um íkveikju hefði verið að ræða auk þess sem svokall- aðar arineldspýtur fundust á vett- vangi sem konan hafði notað til að bera eld að gluggatjöldum í gegnum opin glugga. Heimamönnum var að vonum brugðið við þessar fréttir en málið telst nú upplýst og Vopnfirð- ingar geta andað léttar. Konan sem játaði íkveikjumar hefur að sögn lögreglu verið vistuð á stofnun fyrir geðsjúka að eigin ósk þar sem hún leitar sér nú hjálpar. helgi@agl.is Flóð við Kárahnjúka: Ná hámarki í dag fimmtudag Ákveðið hefur verið að hækka varnarstífluna ofan við vinnu- svæðið við Efri Kárahnjúk upp að gilbarmi, í 498 metra hæð yfir sjávarmáli. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Ríkisútvarps- ins. Varnarstíflan á að standast meira rennsli en mælst hefur frá upphafi. Hlýnað hefur eystra og er búist við frekari hlýindum og sólbráð á Brúarjökli. Talið er að flóðin nái hámarki í dag fimmtu- dag eða á föstudag. Haft er eftir Sigurður Arnalds, talsmanni Landsvirkjunar, að á sunnudag hafi verið ákveðið að hækka varnarstífluna eins mikið og landfræðilega sé mögulegt. Hún standist þá á við gilbarminn. Sig- urður segir að stíflan ætti þá að geta staðist rennsli upp að 1150-1200 rúmmetrum á sekúndu en í flóðun- um í síðustu viku varð rennslið rúmlega 900 rúmmetrar á sekúndu. Sigurður segir að frá því að mæl- ingar hófúst hafi rennslið mælst tvisvar 1020-1030 rúmmetrar á sek- úndu, svo að varnarstíflan ætti að standast rennsli sem er meira en nokkurn tímann hefur mælst en um 40 ár eru síðan mælingar hófúst. Gert verður ráð fyrir yfirfalli á varnarstíflunni, þannig að hægt verði að veita ánni fram hjá, til hlið- ar við varnarstíflunar, og niður í geilina milli varnarstíflunnar og að- alstíflunnar. Þannig væri ekki hætta á að áin myndi éta niður stífluna, og síðan yrði vatninu aftur dælt upp úr geilinni. Sigurður segir að það hefði í för með sér tafir á steypuvinnu þar á milli. helgi@agl.is Sannleikurinn sár Um þessar mundir flykkjast starfsmenn ameríska verktak- arisans Bechtel til Fjarða- byggðar en fyrirtækið mun sjá um að reisa álver Fjarðaáls. Eins og er um marga verktaka á svæðinu kíkja þeir gjarnan á ölstofuna Kósý á Reyðarfirði í frítímum en um liðna helgi var þar ijöldi manns. Sagt er að ung kona hafi gefið sig á tal við Bechtel drengina sem hafi farið að segja henni frá því hversu stórt og öflugt fyrirtæk- ið væri og meðal annars sagt henni frá verkefnum fyrirtæk- isins í írak sem komu í kjölfar „frelsunar írösku þjóðarinnar“ fyrir rúmu ári. Unga konan á þá að hafa sagt eitthvað á þá leið að varla væru það nú mik- il meðmæli enda hlutirnir í „tómu fokki þar,“ eins og hún mun hafa orðað það. Eitthvað fór þessi athugasemd illa í Bandaríkjamennina sem yfir- gáfu barinn i fússi. Æ, æ.... Friðarsund Sagt var frá því í Austur- glugganum nýverið að sund- elsk áhöfn Hugins VE frá Vestmannaeyjum hefði lent í átökum við sundvörð í Nes- kaupstað sem vildi losna við drengina upp úr lauginni. Drengirnir höfðu farið í laug- ina í skjóli nætur og ekki sturt- að sig svo skipta var um vatn í lauginni. Sundlaugavörður- inn hlaut áverka í viðskiptum við áhafnarmeðlimi Hugins sem í kjölfarið var kyrrsettur. Svo virðist sem vopn hafi ver- ið borin á klæði í sundlauginni í liðinni viku þegar Hugin kom til löndunar í Neskaupstað. Þá mun áhöfnin hafa farið í sund - og sturtu - án þess að til átaka hafi komið. Það fylgdi sög- unni að drengirnir hefðu í þetta skiptið mætt á opnunar- tíma. Sýndi hann fjallagrös? Það vakti athygli á dög- unum þegar skóflustunga var tekin af nýju álveri Fjarðaáls á Reyðarfirði að fyrir stórri sendinefnd Alcoa sem keyrði um landið og kynnti sér virkj- anakosti og virkjanir fór sem fararstjóri enginn annar en Árni Steinar Jóhannesson, fyrrum þingmaður Vinstri- grænna, fyrir hönd iðnaðar- ráðuneytis. Vakti það óneitan- lega upp spurningar að eini maðurinn sem lýsti sig andvíg- an framkvæmdum Alcoa á ís- landi á sínum tíma í iðnaðar- nefnd alþingis skyldi valinn til starfans, en Árni býr nú og starfar í Fjarðabyggð. Þeir sem þekkja til hafa þó bent á að ef til vill hafi Árni verið eini nefndarmaðurinn á þeim tíma sem kynnt hafi sér fram- kvæmdirnar í þaula enda aðrir nefndarmenn löngu búnir að á- kveða sig þegar til kom....

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.