Austurglugginn


Austurglugginn - 12.08.2004, Side 6

Austurglugginn - 12.08.2004, Side 6
6 AUSTUR • GLUGGINN Fimmtudagur 12. ágúst VIÐTALIÐ Albert Geirsson í viðtali: „ Forsvarsmenn Austurbyggðar valda ekki störfum sínum“ Albert Geirsson er útgerðarmaður á Stöðv- arfirði en þaðan gerir hann út tvo báta, Alftafell sem er um 60 tonn að stærð og Kambaröst sem er 180 tonna bátur. Albert flutti til Stöðvarfjarðar 1991 og gerðist sveit- arstjóri en samhliða stundaði hann útgerð sem farið hefur vaxandi æ síðan. Austur- glugginn tók Albert tali. Ertu með mikinn kvóta á þessum bátum Albert? „Það eru ríflega hundrað þorskígildi á Alfta- fellinu en það er enginn kvóti á Kamba- röstinni. Að sjálfsögðu er erfitt að gera út með þetta lítinn kvóta en minni skuldir koma þar á móti.“ Leigir þú þá til þín kvóta og er hægt aö gera út með því að leigja? „Eg leigi kvóta á báða bátana og það hefur verið tiltölulega auðvelt að fá kvóta en að vísu er sumt á alltof háu verði miðað við af- urðaverðið. A vissum veiðum er þetta hægt og ég hef stílað inn á leigukvótann fyrst og fremst til að vera á netaveiðum en netafiskur- inn er sá fiskur sem er í hæstu verði. Það er ætlunin að vera á rækju í annan tíma en rækjuveiði í sumar gengur ekki vel því af- urðaverð er lágt og lítil veiði.“ Hafa bátamir landaÖ á StöÖv- arfirði? „Álftafellið hefur landað á Stöðvarfirði í sumar og hefur alltaf landað þar nema yfir netavertíðina en Kambaröstin hefur ekkert landað hérna og það eru ekki horfur á því að það verði á næstunni. Á neta- vertíðinni var hún gerð út frá Hornafirði og í sumar á rækj- una frá Húsavfk.“ Oddviti mætti BIÐJAST AFSÖKUNAR Albert var vikið úr hafnarnefnd í Austurbyggð en hann var borinn þeim sök- um að „vinna gegn hagsmunum sveitarfé- lagsins“ eftir uppákomu í vor þar sem hafnar- yfirvöld töldu hann ekki bregðast nógu fljótt við beiðni um að færa Kambaröstina svo tog- arinn Björgúlfur frá Dalvík gæti lagst að bryggju þar sem hún lá. Því var Albert spurð- ur hvort bryggjukantar á Stöðvarfirði væru of stuttir. „Það væri sjálfsagt gott að geta teygt eitthvað úr þeim en ég held að það sé nú yfirleitt nóg bryggjupláss á Stöðvarfirði en afturámóti er oftur skortur á skilningi á því að það þurfi að sýna tillitssemi. Ef það væri gert þá yrðu menn ekki hver fyrir öðrum.“ Hverjir mœttu þá sýna meiri tillitssemi? ,/Etli það séu ekki einhverjir skipstjórar og síðan væntanlega meirihluti sveitarstjórnar hér í sveitarfélaginu. Nú var þér vikið úr hafnamefnd í vor fyrir að vinna gegn hagsmunum sveitarfélagsins, eins og oddviti Austurbyggðar orðaði þaÖ í þessu blaði. Hefur þú fengið skýringu á því við hvað hann átti? „Nei, ég hef ekki farið fram á það við hann en ég hef talað við aðra um þetta sem eru eitthvað að vinna með þessum meirihluta og ég hélt hann myndi sjá sóma sinn í því að ræða við mig og skýra út fyrir mér á hvern hátt ég væri að vinna gegn hagsmunum sveit- arfélagsins eða þá að örðum kosti biðja mig afsökunar á þessum orðum sem hann lét hafa eftir sér í fjölmiðlum. Það er mjög alvarlegt mál þegar oddviti sveitarfélags lýsir því yfir að einhver sé að vinna gegn hagsmunum þess og hann hlýtur að þurfa að skýra þau orð og ég er reyndar alveg hissa á því að aðrir í meirihlutanum skuli ekki hafa krafið hann svara við því hvað er verið að gera. Er það virkilega stefna þessarra manna að ýta þeim burt úr sveitarfélaginu sem eru í einhverjum atvinnurekstri? Ef það er raunin þá held ég þurfi að skoða þau mál vel og ég veit ekki hvort Byggðastofnun væri neitt hrifin að koma inn í atvinnurekstur 1' því sveitarfélagi þar sem oddviti sveitarstjórnar talar svona eins og hann hefur gert. Það mætti a.m.k. ætla að það væri ekki þörf á aukinni atvinnu- starfsemi f sveitarfélaginu." Samherji ekki á bak við BROTTVIKNINGUNA Er það óttinn við Samherja sem veldur þessu eða eru hagsmunir Samherja og sveitarfélags- ins nákvœmlega þeir sömu? „Ég veit það ekki. Ég hef enga trú á því að það séu stjórnendur Samherja sem láta svona. Það hljóta að vera einhverjir undirsát- ar sem svona tala og eru að gera sig eitthvað breiða. Ég hef enga trú á því að stjórnendur stórs fyrirtæki fyrirtækis eins og Samherja vinni á þennan hátt.“ Attu von á því að vera fyrir einhverjum á með- an Kamharsöstin liggur héma við að skipta um veiöarfœri? „Ég geri ráð fyrir því og ég er svosem búinn að fá pláss fyrir bátinn annarsstaðar ef mikið liggur við en það er mun óhagstæðara fyrir mig því það er mikill búnaður sem fylgir svona og kostnaður og óþægindi í að keyra það á milli staða.“ Nú hefur þú mikla reynslu af hafnarmálum - þú varst sveitar- og hafnarstjóri Stöðvar- hrepps, sast í hafnamefnd í mörg ár og býrð yfir meiri þekkingu á þessum málaflokki en margir. Heldur þú að sveitarstjóm hafi ekki getað notað þessa þekkingu þína áfram? „Ég hald það sé nú rétt að fáir hafi meiri þekkingu en ég á hafnamálunum hérna, kannski sumum finnist það ekkert þægilegt að hafa einhvern sem býr yfir þekkingu; betra að hafa einhvern annan. Hversvegna var mér vikið úr nefndinni? Þeir hafa kannski haldið að þeir væru að gera mér einhvern óleik en ég leit nú á veru mína í hafnarnefnd sem þegnskaparvinnu fyrir sveitarfélagið. Mér var það því alveg sársaukalaust að vera vikið úr nefndinni. Annars held ég að sveitarstjórnar- menn og aðrir sem ráða, láti stundum svona þegar þeir ráða ekki við þau störf sem þeir hafa tekið að sér.“ Tveir og hálfur framsóknarmaður Þú varst í framboöi fyrir Framsóknarflokkinn fyrir nokkmm ámm síðan og framsóknarmenn ráða lögum og lofum í Austurbyggö. Ertu ennþá framsóknarmaður? „Já, ég er framsóknarmaður ennþá. Ég segi bara eins og einn frændi minn: ég er fram- sóknarmaður en þeir sem fara fyrir flokknum eru ekki lengur framsóknarmenn. Ég hef nú stundum sagt í gamni að í þingflokki fram- sóknarmanna væru bara tveir og hálfur fram- sóknarmaður eftir - þ.e.a.s. Guðni varafor- maður, Kristinn H. Gunnarsson og helming- urinn af Jóni Kristjánssyni en hinir eru tekn- ir upp á því að þjóna örðu en hinni gömlu framsóknarstefnu. Það er alveg ljóst að ég treysti mér ekki til að styðja þessa forystu Fram- sóknarflokksins sem er núna við völd.“ Er þá afskiptum þínum af stjómmálum lokið? „Ég reikna með því, ég held ég láti þau eiga sig eftir þetta. Það var gaman að vera í pólitíkinni en afturámóti var mér farin að leiðast þessi einstefna og það var aldrei leitað út í kjördæmin með nokkurn hlut. Mér skilst að það sé svo með fleiri flokka. Þetta var yfirleitt þannig að á kjördæmisþing sem haldin eru einu sinni ári, kemur texti sem er útbúinn á skrifstofunni í Reykjavík sem er yfirfarinn og það er stefnuskráin. Hún er kannski aðeins slípuð til á svona þingum en í öll þessi ár sem ég sat í stjórn kjördæmissambands framsókn- armanna man ég ekki eftir einu einasta máli sem sent var til kjördæmisstjórnarinnar að ofan til að fá álit hennar. Þetta segir mikið um vinnubrögð þeirra sem ráða og drepur niður áhuga flestra sem vilja vinna.“ Að lokum Albert - hvað er langt þar til þú kaupir togara? „Ég ætla að láta hann eiga sig, nema það verði breytingar á kvótakerfinu þannig að hægt sé að gera út svoleiðis skip. Þá hefði ég ekkert á móti því. Það er búinn að vera draumur minn, svona innst inni, að geta komið upp einhverju f sambandi við sjávarút- veginn hérna á Stöðvarfirði og ég var búinn fyrir mörgum árum að láta hanna fyrir mig fiskvinnsluhús hér sem ekkert varð svo úr. Því er ekki að neita að framkoma sveitar- stjórnar í minn garð hefur ekki aukið líkurn- ar að svo verði því einhvernveginn dregur það máttinn úr manni að fá svona framan í sig.“ helgi@agl.is

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.