Austurglugginn


Austurglugginn - 12.08.2004, Qupperneq 7

Austurglugginn - 12.08.2004, Qupperneq 7
Fimmtudagur 12. ágúst AUSTUR • GLUGGINN 7 Sjávarútvegur á Austurlandi Barði NK 120 Siglt inn til löndunar á Stöðvarfirði. Eskifjörður i sumarblíðunni Eskja er í eigu heimamanna en á myndinni sést fiskimjölsverksmiðja fyrirtækisins. Austurglugginn kannaði lauslega eign- arhald í sjávarútvegi á Austurlandi. Víð- ast hvar eru „stóru sjávarútvegsfyrirtæk- in" í eigu heimamanna en sumsstaðar er forræðið í öðrum landshlutum. Samherji er með afar sterk ítök á Austurlandi. Gamli Hólmatindur Með fyrstu skuttogurum í eigu islendinga. Ekki þarf að tíunda mikilvægi sjávarútvegs fyrir Austfirð- ingum því sérhver sjávarbyggð hefur fram til þessa átt allt sitt undir vexti og velgengni hans. Til skamms tíma voru einn eða fleiri togarar í hverju sjávarplássi að undanskildum Bakkafirði og Borgarfirði. Upp úr 1970 kom hver skuttogar- inn á fætur öðrum til landins en smíði þeirra var liður í við- leitni stjórnvalda til að byggja upp atvinnulíf í sjávarplássum eftir hrun síldarstofnsins. Þessi áætlun virkaði svo vel, að á níunda áratugnum þótti ástæða til að grípa til aðgerða sem miðuðu að því að vernda fiskinn í sjónum gegn ofveiði; kvótakerfið leit dagsins ljós. Hvort það eitt og sér olli þeim breytingum sem urðu á út- gerðarháttum Austfirðinga, og reyndar landsmanna allra, skal ekki dæmt um hér en fiskileysi í byrjun tíunda áratug- arsins varð m.a. til þess að útgerðir sem stóðu höllum fæti voru keyptar af hinum sterkari. Þar með hvarf stórskipaút- gerð úr mörgum smærri sjávarplássum og útgerðum á ís- landi fækkaði. En hvemig skyldi eignarhaldi á sjávarútvegs- fyrirtækjum á Austurlandi vera háttað núna? Eru þau í eigu „heimamanna“ eða eru það aðrir sem eiga þau? Ólíkt eignarhald Satt best að segja er þessu ákaflega misjafnt farið því sumsstaðar eru undirstöðufyrirtækin - það eru þau fyrirtæki sem viðkomandi byggðir gætu staðið eða fallið með - alfar- ið í eigu heimamanna, annarsstaðar eru þau í eigu heima- manna og lengra að kominna og í sumum byggðarlögum hafa heimamenn misst forræðið yfir þessu fyrirtækjum. Vopnfirðingar eiga Tanga hf. en þeir keyptu allt hlutafé Eskju í því fyrir skemmstu. Stærsti hluthafinn í Tanga er Bjarnarey ehf. sem á ríflega tuttugu og þriggja prósenta hlut en það fyrirtæki er í eigu aðila á Vopnafirði, Vopnaíjarðar- hreppur á rúm tuttugu og eitt prósent í Tanga og Skiphólmi ehf. á níu prósent. Skipahólmi er í eigu Vopnafjarðarhrepps svo í raun á sveitarfélagið tæp þrjátíu prósent í Tanga. Að vísu á Sparísjóðabanki íslands rúmlega þrettán prósenta hlut en samtals ráða heimamenn yfir meira en helmingi hlutafjár og því er fyrirtækið í raun þeirra. Tangi rekur fiskimjölsverk- smiðju, frystihús og gerir út togarann Bretting og nótaskipið Sunnuberg. Seyðfirðingar hafa líka forræði undirstöðuatvinnuvegar- ins að mestu á sinni hendi því fyrirtækin Brimberg og Gull- berg eru að öllu leyti í eigu þeirra. Útgerðarfélag Akureyr- inga átti um tíma þessi umsvif á Seyðisfirði en dró sig út og heimamenn eignuðust fiskvinnslu og útgerð. Brimberg rek- ur frystihúsið á staðnum og Gullberg gerir út togarann Gull- ver NS 12. Hinsvegar er fiskimjölsverksmiðjan á Seyðisfirði í eigu Síldarvinnslunnar í Neskaupstað en nánar verður vik- ið að eignarhaldi þess fyrirtækis á eftir. Eskfirðingar eiga Eskju alfarið en eignaraðild þar skiptist til jafns á milli Krist- ins Aðalsteinssonar, Bjarkar Aðalsteinsdóttur og Elfars Að- alsteinssonar. Eskja er umsvifamikið fyrirtæki - það gerir út nótaskipin Hólmaborgu og Jón Kjartansson auk togarans Hólmatinds. Eskja starfrækir einnig fiskimjölsverksmiðju og frystihús. Loðnuvinnslan í eigu heimamanna - Samherji með sterk ítök í Síldarvinnslunni Á Fáskrúðsfirði er Loðnuvinnslan lang stærsta sjávarút- vegsfyrirtækið en stærsti hlutafi i því er Kaupfélag Fá- skrúðsfirðinga með um níutíu og eins prósenta hlut. Afgang- urinn skiptist síðan á milli nokkurra annarra félaga og ein- staklinga en þar eru stærst fyrirtæki sem áður voru kennd við SIS eins og VIS og Olíufélagið. Loðnuvinnslan er afar um- svifamikil á Fáskrúðsfirði því auk þess að gera út togarann Ljósafell og nótaskipið Hoffell, rekur fyrirtækið frystihús, bræðslu, véla-, rafmagns og trésmíðaverkstæði. I Neskaupstað er Síldavinnslan risinn í sjávarútvegi en þar rekur hún öfluga útgerð, fiskvinnslu og bræðslu. Síldar- vinnslan gerir út fimm stór skip - Birting, Barða, Bjart, Börk og Beiti. Stærsti hlutahafi í Síldarvinnslunni er Straumur fjárfestingarbanki en hann á tuttugu og Ijögurra prósenta hlut, Samherji á um tuttugu prósent, Snæfugl ehf. tólf og Samvinnufélag útgerðarmanna tíu. Samherji átti um áramót rúmlega helming hlutaljár í Snæfugli auk þess sem Kaldbak- ur, sem er að ijórðungi í egiu Samherja, á tæplega átta pró- sent í Síldarvinnslunni. Því má ljóst vera að Samherji hefur sterk ítök í fjöreggi Norðfirðinga en ríflega þrjátíu prósent hlutaíjár eru í hans eigu eða dótturfyrirtækja. Að öðru leyti er eignaraðild dreifð og til dæmis á tuttugasti stærsti hluta- hafinn 0,06 prósent hlutafjár í Síldarvinnslunni. Suðurfirðir skera sig úr Á Breiðdslsvík er starfandi Útgerðarfélag Breiðdælinga sem er i eigu Ríkharðs Jónassonar heimamanns og Rúnars Björgvinssonar í Reykjavík. ÚB starfrækir frystihús í bæn- um og fyrirtækið Fossvík gerir út togarann Björgu en það er í eigu sömu aðila samkvæmt heimildum Austurgluggans. ÚB hefur að mestu reitt sig á byggðakvóta og segir Ríkharð- ur Jónasson að verði hann afnuminn, bresti rekstrargrund- völlur fyrirtækisins. Á Stöðvarfirði rekur Samherji frystihús sem var áður í eigu heimamanna og togarar fyrirtækisins landa þar ef þeir eru á veiðum fyrir austan land. Á Djúpavogi er fyrirkomu- lagið svipað; Vísir í Grindavík á Búlandstind sem starfrækir frystihús á staðnum en skipastóllinn er allur í eigu Vísis. Skemmst er að minnast sölu bræðslunnar Gautavíkur á Djúpavogi en það er lýsandi dæmi um það hvernig heima- menn á stöðum þar sem eignaraðild fyrirtækjanna hefur flust í burtu, standa varnarlausir þegar þau eru seld og jafnvel af- lögð. Þó eru á þessum stöðum fleiri fyrirtæki í sjávarútvegi því t.d. á Stöðvarfirði gera fyrirtæki i eigu Alberts Geirsson- ar og fleiri út bátana Álftafell og Kambaröst og þar er einnig fyrirtækið Skútuklöpp sem rekur saltfiskverkun en reiðir sig á afla smábáta og fiskmarkaði til hráefnisöflunar auk þess að vera handhafi byggðakvóta Austurbyggðar, ásamt Loðnu- vinnslunni. Bakkaljörður og Borgaríjörður eru kunnir fyrir smábátaútgerð en í þeirri tegund útgerðar hefur átt sér stað samdráttur og áhrif síðustu breytinga á dagabátakerfinu - þar sem það er lagt niður og kvóta úthlutað í staðinn - eiga eftir að koma í ljós. Sjávarútvegur virðist því standa traustum fótum á Austur- landi ef frá er talið svæðið frá Stöðvarfirði til Djúpavogs. Heimamenn þar hafa takmarkað forræði yfir sjávarútvegs- fyrirtækjunum og eru því háðir ákvörðunum teknum í öðrum landshlutum hvað framtíð þeirra varðar. bvg Heimildir: Vefur Kauphallar íslands, ársskýrslur nokkurra þeirra fyrirtækja sem um er ijallað auk heimildarmanna úr greininni.

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.