Austurglugginn - 12.08.2004, Side 10
10 AUSTUR • GLUGGINN
Fimmtudagur 12. ágúst
MENNING
tfaazs
Umsjón: jonknutur@agl.is
Norskir dagar
Nóg verður að gera á Seyðis-
firði fyrir og um helgina í tengsl-
um við Norska daga þar. Á
fimmtudag verðu efnt til mál-
þings meðal austfirskra og
norskra tónlistarmanna í Herðu-
breið. Á fostudag verður athöfn
til minningar um Otto Wathne, á
afmælisdegi hans, þar sem blóm-
sveigur verður lagður að minnis-
varða um hann og kertum fleytt á
Lóninu. Á laugardag verður svo
nóg Qör fyrir alla fjölskylduna í
miðbæ Seyðisfjarðar á svoköll-
uðu familiefest þar sem bæjarbú-
ar munu safnast saman í einni
stórri veislu, Norsku tónlistar-
mennimir munu leika tónlist og
kenna dansa, ratleikur um slóðir
Norðmanna, hólmavipp gólf-
klúbbsins, Sýning Christopher
Taylors opnuð í Skaftfelli, mark-
aður ofl. Skemmtilegt.
Ormsteiti á Héraði
Héraðs-, bæjar- og uppskeru-
hátíðin Ormsteiti 2004 verður
sett næstkomandi föstudag, 13. á-
gúst. Þetta er tólfta árið sem Orm-
steiti er haldið en hátíðin á sér
engan líka þegar kemur að ís-
lenskum bæjarhátíðum. Ormsteiti
stendur yfir í tíu daga samfleytt
13.- 22. ágúst og verður eitthvað
um að vera á hverjum degi vítt og
breitt um Fljótsdalshérað. Hvert
sveitarfélag á Héraði á sinn dag
og tekur þá á móti gestum með
öllu því besta sem boðið er uppá
á hverjum stað. Ormsteiti 2004
hefst á Hverfahátíð sem nú er
haldin í þriðja sinn en óhætt er að
fullyrða að hverfahátíðin hafi
slegið í gegn og er nú fjölmenn-
asti einstaki atburðurinn og að
auki haldinn á nokkrum stöðum á
Héraði samtímis. Öllu Héraðinu
er skipt upp í hverfi sem hvert
hefur sinn höfðinga, sjá þeir um
að velja grillstað og síðan mætir
hver með sitt á grillið. Að grill-
veislu lokinni er haldið á Vil-
hjálmsvöll þar sem verða haldnir
alvöru ólympíuleikar. Tendraður
verður hverfahátíðaeldur og
keppt verður í ýmsum íþrótta-
greinum. Að loknu íþróttamótinu
er gengið/ekið fylktu liði í miðbæ
Egilsstaða á fjölskyldudansleik.
Hverfahátíðin er ætluð heima-
fólki þó svo auðvitað sé öllum
frjálst að koma upp á völl og
fylgjast með og mæta á dans-
leikinn.Fyrri laugardagurinn er
Norðurhéraðsdagur og þá er m.a.
haldin Mcnningamótt í kyrrðinni
og auðninni á Möðmdal á Fjöll-
um og er sú menningamótt systir
Menningamætur í Reykjavík. Þar
gefst fólki kostur á að mála
Herðubreið hver með sínu nefi,
að hætti Stórvals. í Möðmdal em
ljósaskipti sem eiga sér engan
líka og þar verður grillað, sungið
og dansað þar til sól rís á ný.
Fyrri sunnudaginn eru hátíðar-
höld í Hallormsstaðaskógi þar
sem m.a. hægt er að upplifa skóg-
inn á ýmsan hátt. Boðið er upp á
gönguferðir, ratleik, tónleika
o.mfl. Suðræn sveifna verður á
sundlaugarbakkanum á Hall-
ormsstað með grilli og reggietón-
leikum.
Farfuglaheimilið Hafaldan 30 ára:
Opna mongólskt Draumhús
Farfuglaheimili Þóru Guð-
mundsdóttur á Seyðisfirði fagnar
um þessar mundir þrjátíu ára af-
mæli sínu en um helgina fór fram
formleg vígsla á Draumhúsi
nokkru sem Þóra hefúr látið útbúa
fyrir sig og standa mun á lóð far-
fuglaheimilisins. Draumhúsið,
sem einhver gæti kallað tjald, er
framleitt fyrir Þóru í Indlandi þar
sem hún dvaldi í 4 mánuði síðast-
liðin vetur. Húsið er enda draumi
líkast, gólf þess klætt harðviði og
innréttingarnar sömuleiðis. Húsið
ætlar Þóra að nýta til gistinga en
við opnunina á laugardag mætti
fjöldi manns til að virða fyrir sér
nýjasta húsið á staðnum.
Drottningin af draumhúsinu Þóra
færði gestum heim sanninn um sögu
hússins sem er að öllum likindum eitt
fárra á íslandi sem framleitt er á Ind-
landi, þó byggt sé I Mongólskum stíl.
„Guð gaf sól" sagði Þóra við upphaf veislunnar á laugardag en auk þess að þjóða
fólki I heimsókn I Draumhúsið bauð hún upp á indverskan mat, enda sjaldnast I
kot visað á Haföldunni.
Sofandi í rúm-
inu hans afa
Braggabandið hélt uppi
stanslausu fjöri í Löngubúð á
Djúpavogi sl. laugardag.
Hljómsveitin er skipuð fjórum
ungum mönnum, á öllum aldri,
frá Hornafirði og spilar fjöl-
breytta tónlist við allra hæfi.
Mest eftirspurn var þó eftir lag-
inu um rúmið hans afa.
ítalskir ferðamenn réðu ekki
við sig undir taktfostum tónum
hljómsveitarinnar og dansgólf
Löngubúðar iðaði lengst af af
lífi. Létu ítalirnir vel af
skemmtaninni og fyrirgáfu
hljómsveitarmeðlimum þó þeir
treystu sér ekki til að taka Ó sóle
míó. Kom þar loks að þung-
brýndir íslendingar gátu ekki
hamið sig og dilluðu sér létt við
dúndrandi tónlistina fram eftir
kvöldi. Hámarki náði skemmt-
unin þegar ónefndur heimamað-
ur vélaði viðstadda með sér í
einhvers konar hringdans í lag-
inu um hestinn og hnakkinn við
mikinn fognuð viðstaddra.
Á myndinni má sjá Bjartmar
Ágústsson á bassa, Ögmund
Einarsson á trommunum, Krist-
jón Elvar Elvarsson söngvara og
son hans Elvar Braga Kristjóns-
son á gítar.
ab
Vin i eyðimörkinni Þegar gengið er inn í tjaldið blasir við þetta fallega indverska
„kerti" og reykelsisilmurinn staðfesti nafngiftina á húsinu.
Kannast einhver við þessa fjölskyldu? Eigandi myndarinnar er Sigbjörn Jó-
hannsson Blöndugerði, Hróarstungu. Oft líður nokkur tími frá birtingu áður en
upplýsingar berast. Síðastliðinn mánudag hringdi Guðmundur Halldórsson frá
Húsavik og fræddi okkur um fókið á myndinni sem birtist í 13. tölublaði Aust-
urgluggans. Myndin reyndist vera af Þingeyingum, þ.e. Kristjáni Sigtryggsyni
og 6 systrum hans þeim Jónínu, Sigríði, Hallfríði, Ingibjörgu, Rannveigu og
Þuríði.