Austurglugginn - 17.11.2005, Blaðsíða 2
2
AUSTUR • GLUGGINN
Fimmtudagur 17. nóvember
Fyrstu skóflustungur að nýrri
skólamiðstöð
Um tuttugu börn frá leikskólanum Kærabæ á Fáskrúðsfirði tóku fyrstu skóflustungurnar
að fyrsta áfanga nýrrar skólamiðstöðvar þar. Mynd Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir
í síðustu viku tóku um 20 börn frá
leikskólanum Kærabæ, fyrstu
skóflustungumar að fyrsta áfanga
nýrrar skólamiðstöðvar á Fá-
skrúðsfirði.
I skólamiðstöðinni sem er 2000 m2
að grunnmáli verða grannskóli,
fjögurra deilda leikskóli, tónlistar-
skóli, bókasafn og aðstaða fyrir
fjamema. Þar að auki mun ýmis
sameiginleg aðstaða nýtast öllum
stofnununum. Nýja húsið stendur
rétt við gamla grunnskólann og
verður tengt honum með tengi-
byggingu. Nýbyggingin leysir af
hólmi eldra og óhentugra húsnæði
sem tónlistaskólinn og leikskólinn
voru í ásamt bókasafninu, sem
voru dreifð um bæinn. Leikskólinn
í gamla grunnskólanum, tónlistar-
skólinn hefur verið á hrakhólum en
er nú í blokkaríbúð sem bærinn á,
skammt frá grunnskólanum, og
bókasafnið er í kjallara Félags-
heimilisins. Þessi starfsemi flyst nú
öll undir sama þak í stórbætta að-
stöðu. Bókasöfnin í bænum, skóla-
bókasafn og bæjarbókasafn, sam-
einast þarna fyrst sinn í sama hús-
næði. Með byggingu skólamið-
stöðvarinnar er vonast til að skapa
samfellu í skólastarfi auk þess sem
hin nýja bygging er hönnuð út frá
hugmyndum um einstaklingsmiðað
nám. Það að hafa skólana þrjá alla
undir sama þaki mun einnig skapa
góðan grundvöll fyrir öflugt sam-
starf og gefa ýmis tækifæri tengd
þróunarstarfi sem ekki eru fyrir
hendi annars staðar.
Það er nokkuð síðan menn fóru að
huga að byggingu nýrrar skólamið-
stöðvar, en vegna neikvæðrar íbúa-
þróunar á síðustu áram var ákveðið
að geyma verkið. A síðustu misser-
um hefur fólki hins vegar fjölgað
til muna og nú er svo komið að
bæði grunnskóli og leikskóli eru að
sprengja utan af sér húsnæðið, auk
þess sem tónlistarskóli og skóla-
mötuneyti hafa lengi verið á hrak-
hólum. Einnig er fyrirhugað að
byggja við grunnskólann á Stöðv-
arfirði á næstu áram ásamt því að
endurskipuleggja innra rými gamla
hluta grannskólans þar.
Samkvæmt nýrri verkáætlun á
þessum áfanga skólamiðstöðvar-
innar, sem meðal annars inniheldur
nýjan og glæsilegan leikskóla, að
ljúka þann 1. apríl 2007 og er
kostnaður við hann um 167 millj-
ónir króna. Verktaki við bygging-
una er Tré og steypa ehf. á Fá-
skrúðsfirði.
Áætlað er að bjóða síðara áfanga
skólamiðstöðvarinnar út snemma
árs 2007 og eru áætluð verklok
þess hluta í ágúst 2008.
SigAð
Tap á
Loðnuvinnslunni
Tap varð af rekstri Loðnuvinn-
slunnar h/f á Fáskrúðsfirði fyrstu
9 rnánuði ársins 2005, að fjárhæð
24 milljónir eftir skatta, saman-
borið við 52 milljóna tap á sama
timabili árið 2004.
Rekstrartekjur félagsins voru
1.684 milljónir, en rekstrargjöld
voru 1.594 miljónir. Afskriftir
voru kr. 142 milljónir og lækkuðu
um 22 milljónir meðal annars
vegna þess að ákveðið var að
hætta að afskrifa aflaheimildir
hliðstætt við önnur sjávarútvegs-
fyrirtæki. Félagið fjárfesti á tíma-
bilinu fyrir 323 milljónir, þar af
voru keyptar aflaheimildir fyrir
285 milljónir.
Þriðji ársfjórðungur var
Loðnuvinnslunni einstaklega
erfiður. Kolmunna- og loðnuveiði
var nánast enginn eftir mitt ár.
Krónan hefur verið að styrkjast og
verð á olíu náði sögulegu hámarki.
Gert er ráð fyrir því að afkoma
Loðnuvinnslunnar muni batna á
fjórða ársfjórðungi að lokinni
síldarvertið.
SigAð
Samningur
dvalarheimilis
í síðustu viku var undirritaður
samningur á milli sveitarfélaganna
Fljótsdalshéraðs, Fljótsdalshrepps
og Borgarfjarðarhrepps annars
vegar, og Fleilbrigðisstofnunar
Austurlands hins vegar, um rekstur
dvalarheimilis og leiguíbúða fyrir
aldraða á Egilsstöðum. Samning-
urinn er gerður til endurnýjunar
fyrri samningi sömu aðila frá 2002
og er til 5 ára. Samningurinn gildir
gildi frá 1. nóvember 2005.
FISA Egilsstöðum, fyrir hönd
Heilbrigðisstofnunar Austurlands,
tekur að sér að sjá um rekstur og
þjónustu dvalarheimilis og sam-
býlis aldraðra að Lagarási 21-25
og nýtir þau átta starfsleyfi sem
dvalarheimilið hefur til heilsdags-
vistunar, átta leiguibúðir fyrir aldr-
aða að Lagarási 17 ásamt íbúðum
númer 27, 29, 31 og 33 við Lagar-
ás. í samningum fellst einnig meiri
þjónusta við dvalarheimilið eins og
aukin fagleg yfirstjórnun, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Samninginn undirrituðu Eiríkur
Bj. Björgvinsson, bæjarstjóri Fljót-
dalshéraðs, fyrir hönd sveitafélag-
anna og Þórhallur Harðarson,
rekstrarstjóri HSA á Egilsstöðum,
fyrir hönd Heilbrigðisstofnunar
Austurlands. SigAð
um rekstur
og leiguíbúða
Samninginn milli sveitarfélaganna Fljótsdalshéraðs, Fljótsdalshrepps og Borgar-
fjarðarhrepps annars vegar og Heilbrigðisstofnunar Austurlands hins vegar, undir-
rituðu Eirikur Bj. Björgvinsson, bæjarstjóri Fljótdalshéraðs, fyrir hönd sveitafélag-
anna og Þórhallur Harðarson, rekstrarstjóri HSA á Egilsstöðum, fyrir hönd Heil-
brigðisstofnunar Austurlands. Mynd HSA
Umferðaróhöpp vegna snjóa,
hálku og bleytu
Sementsflutningabíll með tengi-
vagni valt út af þjóðveginum rétt
ofan við Egilsstaði síðasta mið-
vikudag. ísing var á veginum og
þegar ökumaðurinn hugðist hemla
til að kanna aðstæður snérist tengi-
vagninn á veginum og rann fram
fyrir sjálfan bílinn. Bæði bíll og
vagn fóru um tíu metra út fyrir veg-
inn.
Mildi þykir að ökumaður bílsins
skyldi sleppa nær ómeiddur en
hann var í bílbelti, talið er að það
hafi orðið honum til bjargar, auk
þess sem ökumannshúsið fór ofan í
skurð og lagðist ekki saman. Bíll-
inn sem vegur samtals um 44 tonn
með tengivagninum, var á leið upp
í Kárahnjúka með fullan geymi af
sementi. Erfiðlega gekk að ná bíln-
um og vagninum upp á veg aftur.
Bíllinn sjálfur náðist upp daginn
eftir að hann fór útaf en rúmir tveir
sólarhringar liðu þar til sements-
flutningavagninn náðist upp á veg,
en dæla þurfti 28 tonnum af sem-
enti úr geymi hans áður en hægt var
að hreyfa við honum.
Ekið á hreindýr
Ekið var á hreindýr við Melarétt í
Fljótsdal síðasta fimmtudag. Dýrið
drapst og bíllinn er mikið skemmd-
ur en ökumaðurinn slapp ómeiddur.
Dýrið hafði verið eitt að þvælast á
þessum slóðum áður en slysið varð.
Að sögn ökumannsins stökk dýrið
upp á veginn og lenti fyrir bílnum.
Bleyta var á veginum þegar slysið
varð en engin hálka. Einnig hafa
Mikil mildi þykir að ekki varð stórslys þegar sementsflutningabill með tengivagni
valt út af þjóðveginum rétt ofan við Egilsstaði siðasta miðvikudags kvöld.
orðið útafkeyrslur á Háreks-
staðaleið vegna hálkunnar að sögn
lögreglunnar á Egilsstöðum.
Töluvert eignatjón varð í árekstri
Mynd Þráinn Skarphéðinsson
tveggja bíla á Eskifirði sem varð
vegna hálku að sögn lögreglunnar
þar en ekki nein slys á fólki.
SigAð
259 milljónir í
álagðan tekjuskatt á
þremur árum
Eskja hf. á Eskifirði hefur undan-
farin þrjú ár greitt 259 milljónir
króna í álagðan tekjuskatt í
ríkissjóð. Mest var greitt árið
2003, eða ríflega 107 milljónir en
í ár er upphæðin tæplega 79
milljónir. Frá þessu er greint á vef
fyrirtækisins. Á sama tíma hefur
félagið greitt 87 milljónir í eftir-
lits-, þróunar- og veiðileyfagjöld,
sem var mest árið 2003, 34,7
milljónir en hefur lækkað og er
komið niður í 25,1 milljón. Afla-,
vöru- og hafnargjöld til
Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar nema
um 93 milljónum á sama tíma og
voru þær greiðslur mestar í fyrra
eða tæplega 37 milljónir.
GG
Gatnagerðarfram-
kvæmdir á Norðfirði
Gatnagerðarframkvæmdir eru
hafnar við Sæbakka og Móbakka
á Norðfirði. Við Sæbakka hefur
öllum lóðum verið úthlutað og
munu byggingaframkvæmdir
hefjast þar á næstunni. Lengd
gatna er 540 metrar. Þá eru
jarðvegsskipti 9000 m3, hol-
ræsalagnir 960 metrar og
vatnslagnir 450 metrar. Mun
framkvæmdum við Sæbakka og
Bakkaveg ljúka 15. desember en
Sólbakka og hluta Móbakka lokið
í maí 2006. Enn eru nokkrar lóðir
lausar við Móbakka.
Mold úr götustæðum er notuð til
hækkunar á landi norðan hver-
fisins og verður það svæði jafnað
og ræktað upp næsta vor. Verktaki
við verkið er Austurpóll ehf. á
Eskifirði.
Af vef Fjarðabyggðar