Austurglugginn


Austurglugginn - 17.11.2005, Síða 5

Austurglugginn - 17.11.2005, Síða 5
Fimmtudagur 17. nóvember AUSTUR • GLUGGINN 5 Vinabæjarheimsókn til Gravelines Dagana 21. - 26. september síðastliðinn fóru 4 fulltrúar Austurbyggðar, ásamt mökum, í opinbera heimsókn til franska vinabæjarins Gravelines. Til- gangur ferðarinnar var að taka þátt í hinni árlegu Hátíð íslands- sjóntannanna eða Féte des Islandais þar sem minnst er heimkomu frönsku sjómannanna at' íslandsmiðum, en stór hluti þeirra kom einmitt frá Gra- velines og byggðarlögunum þar í kring. Dagskrá Islandshátíðarinnar samanstóð af ýmsum viðburðum svo senr götumörkuðum, listsýn- ingum, dansleikjum, hópsigl- ingu, hátíðarmessu, skrúðgöngu og ýmsum öðrum skemmtileg- urn uppákomum. Sveitarstjóri Austurbyggðar og borgarstjóri Gravelines lögðu blómsveig að bænastað sjómannskvenna í gantla bæjarhluta Gravelines og fleyttu blómakransi á Ermasundi í minningu þeirra hundruða sjó- manna sem létu lífið við íslands- strendur. Miklar tilfinningar tengdust hátíðinni og var greini- legt að í brjóstum íbúanna toguðist á gleði og sorg þó svo að gleðin væri að sjálfsögðu ríkj- andi. Það var óncitanlcga sérstök upp- lifun fyrir Islendingana að vera viðstaddir þessi hátíðahöld þar sem allt snérist um Island og tcngsl fólksins við þclta kalda land í norðri. Að sjá íslenska fánann blakta hvarvetna við hún og heyru íslenska þjóðsönginn spilaðan í fjölmennri skrúðgöng- unni var ólýsanleg tilfinning og ekki laust við að hjörtu íslcnsku fulltrúanna fylltust af sann- íslensku þjóðarstolti. Fulltrúar Austurbyggðar voru mjög ánægðir meó ferðina og sögðu hana hal'a skilað góðum árangri í að styrkja enn frekar samstarf þessara tveggja ólíku byggóarlaga sem þó tengjast svo náið. Bertrand Ringot og Steinþór Pétursson lögðu blómsveig á bænastað sjómannskvenna I Gravelines. Stuttu seinna tók við minningarþögn sem síðan var rofin af íslenska þjóðsöngnum. Rétt fyrir neðan vitann í Gravelines stendur þessi vegpóstur sem Austurbyggð gaf Gravelinesbæ á Frönskum dögum 2004. Samskonar vegpóst er að finna við Steinsstaði á Fáskrúðsfirði. Menn klæddir hefðbundnum sjómannatreyjum báru likan af fiskiskútu i skrúðgöngunni. Fjöldi stórra og smárra báta tók þátt i hópsiglingu út á Ermasund þar sem haldin var stutt minningarathöfn. Á Ermasundi fleyttu Bertrand Ringot bæjarstjóri Gravelines og Steinþór Pétursson sveitarstjóri Austurbyggðar kransi i minningu frönsku íslandssjómannana. Fulltrúar Austurbyggðar. Efri röð f.v. : Margeir Margeirsson, Borghildur Jóna Árna- dóttir, Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir, Guðný Elisdóttir og Óðinn Magnason. Neðri röð f.v.: Haraldur Birgir Þorkelsson og Steinþór Pétursson. Hópurinn fékk leiðsögn um miðaldabæinn Boulogne þar sem margt skemmtilegt og fróðlegt var að sjá.

x

Austurglugginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.