Austurglugginn - 17.11.2005, Síða 6
6
AUSTUR • GLUGGINN
Fimmtudagur 17. nóvember
Dagar myrkurs
Seyðisfjörður
Seyðfirðingar munu skemmta sér og sinum á Dög-
um myrkurs. í dag verða unnin verkefni í grunn-
skólanum tengd dögum myrkurs og degi íslenskrar
tungu og dimmt diskótek fyrir krakka á öllum aldri
verður í Sundhöllinni í kvöld. í fyrramálið verður
kyndilganga skólanna og opið hús i nýja skóla frá
10-14. Hin rórnaða afturganga leggur síðan af stað
klukkan átta og gerir víðreist.
Á laugardag verður ungbarnasund og dótadagur í
sundhöllinn og um kvöldið kósíkvöld fyrir karla á
meðan kósíkvöld kvenna verður í íþróttamiðstöð-
inni auk þess sem Skaftfell býður upp á huggulegt
kvöld fyrir bæði kynin.
Dögum myrkurs á Seyðisfirði lýkur síðan með
guðþjónustu í Seyðisijarðarkirkju klukkan 14:00 á
sunnudag.
Vopnafjörður
I kvöld klukkan 18:30 verður blysför frá grunnskól-
anum að Kaupvangi þar sem boðið verður upp á
upplestur draugasagna en þemað í ár eru sjódraug-
ar og sæskrímsli. Olafur B. Valgeirsson heldur utan
um dagskrána og les upp ásamt grunnskólanemum.
Boðið verður upp á kaffi og kleinur og tónlistarat-
riði verða í umsjá Zbigniew Zuchowicks, tónlistar-
skólastjóra.
Á sunnudaginn milli 18:00 og 21:00 verður gamli
bærinn að Bustarfelli opinn. Heitt verður á könn-
unni og notaleg stemmning í baðstoðunni auk sér-
stakrar sýningar í gestastofu. Það er fátt sem skák-
ar þeirri upplifun að sækja torfbæinn heim að vetri
þar sem ekkert er ljósið nema kertatýra og hugsan-
lega mánaskin.
Fjarðabyggð
Það verður skuggalegt um að litast á Náttúrugripa-
safninu í Neskaupstað í kvöld en hægt verður að
skoða það við kertaljós svo sýningargripir fá á sig
draugalegt yfirbragð. Annað kvöld verða síðan
blysför frá Selárbrú klukkan 19:30 en kvöldvaka
hefst á eyðibýlinu Seldal 20:00 og eftir hana verður
kaffi og meðlæti.
Fyrri part laugardags verður lifandi handverkssýn-
ing Kötu og Theu í Valhöll, en Kata vinnur glerperl-
ur við opinn eld og Thea býr til hluti úr leir. Um
kvöldið klukkan níu verða síðan sungnir ástar-
söngvar við ástareld á Mjóeyri. Loks ber að nefna
bílabíó á Mjóeyri klukkan 17:00 og aftur 18:15 á
sunnudag, þar sem sýnd verður mynd sem tekin var
á Eskifirði og heitir „Við flæðarmálið.”
Djúpivogur
Það verður stanslaust stuð í myrkrinu á Djúpavogi á
laugardag. Faðirvorhlaupið hefst klukkan 17:00
sem er einstakt tækifæri fyrir þá sem ekki eru viss-
ir um hvort þeir séu myrkfælnir eður ei til að fá úr
þvi skorið. I sundlauginni frá 20:00 - 22:00 verður
slökunarkvöld, eingöngu ætlað pörum eða hjónum
sem fá frítt inn og býðst færi á að upplifa einstaka
stemmningu við einstakar aðstæður. j Löngubúð,
klukkan 23:30, verður svo rómantísk stemmning á
heimsmælikvarða.
Kvenfélagið Vaka stendur fyrir kertafleytingum við
Djúpavogshöfn klukkan 17:00 á sunnudag.
Hildigunnur Jörundsdóttir, verkefnisstjóri Daga myrkurs.
Dagar myrkurs hefjast í dag en
dagskrá þeirra stendur fram á
sunnudag. Ohætt er að segja að
hátíðin teygi sig um allt Austur-
land en viðburðir verða allt frá
Vopnafirði suður á Djúpavog.
Hildigunnur Jörundsdóttir hjá
Markaðsstofu Austurlands er
verkefnastjóri Daga myrkurs,
sem haldnir eru í fimmta sinn og
við fengum hana til að segja
okkur örlítið frá hátíðinni.
„Þetta eru aðallega heimamenn
sem koma saman og skemmta
sér. Brottfluttir eru að koma
heim á þessum dögum til að vera
með fjölskyldu sinni. Við náðum
að auglýsa hátíðina vel í fyrra og
jafnvel enn betur nú svo við von-
umst til að hún laði fólk að. Við
erum í samstarfi við bæði Sér-
leyfisbíla Akureyrar og Flugfé-
lag Islands en fyrst og fremst er
þetta skemmtun fyrir heima-
menn sem hefur farið sívax-
andi.”
Það er ekki orðið ýkja heitt úti
þegar komið er fram í miðjan
nóvember og því kemur varla á
óvart að þeir atburðir sem fara
fram undir beru lofti fela í sér
hreyfingu.
„Það verður afturganga á Seyð-
isfirði,” segir Hildigunnur og
bætir svo við: „Ja - það er von að
þú spyrjir” þegar hún er beðin
um að útskýra afturgönguna
nánar. „Þar hefur alltaf verið
kyndilganga og öll ljós í bænum
verið slökkt en það eru engir
kyndlar til í ár svo bæjarbúa
koma bara sjálfir með ljós og
svo verða sagðar draugasögur.
Síðan verður faðirvorhlaupið
haldið í þriðja sinn í Skógrækt-
inni á Djúpavogi. Það er haldið í
minningu Stefáns Jónssonar,
fyrrverandi Alþingismanns,
fréttamans og rithöfúndar. Hann
var afar myrkfælinn og sagt er
að hann hafi þurft að fara ífá
Teigarhorni á Djúpavog og farið
með faðirvorið á leiðinni. Hún
er mæld í fjölda faðirvora - hann
hljóp leiðina í þremur faðirvor-
um. í skógræktinn feta menn sig
um dauflýstan stíg þar sem
torkennilegar verur verða á ferð-
inni.”
Hildigunnur segir Markaðsstof-
una fýrst og fremst halda utan
um skipulagninguna, heima-
menn á hverjum stað sjái um
skemmtunina. „Við erum frum-
kvöðlar að dögunum og sjáum
um að halda utan um dagskrána
en sveitarfélögin og aðilar þar
koma með viðburðina. Menn
reyna að heilla myrkrið og það
er alveg frábært að sjá hvað fólki
dettur í hug. Uppspretta hug-
mynda virðist óendanleg. Á
Eskifirði verður til dæmis
kveiktur ástareldur og haldið
bílabíó og á Vopnafirði verður
dagskrá í Bustarfelli. Á Egils-
stöðum verður handverkssýning
á Hótel Héraði sem heitir Auður
Austurlands þar sem verða sýnd-
ir fjölbreyttir munir úr efnum
sem tengjast Austurlandi, svo
sem líparíti, lerki og hreindýra-
horni. Síðan verður líka sérstakt
myrkraþema í skólum á svæðis-
ins, krakkarnir mæta með ljós í
skólana og kanna myrkrið auk
þes sem verslanir á svæðinu eru
með tilboð, til dæmis á svörtum
vörum.”
í kjölfarið á Dögum myrkurs
fylgir síðan annað verkefni hjá
Markaðsstofunni sem kallast Jól
á Austurlandi.
„Það verður nú í fyrsta sinn,
jólakötturinn sem hefur verið í
gangi á Héraði kom upp í hend-
urnar á okkur og við útfærum
það verkefni fyrir Austurland.
Það er jólaleikur þar sem versl-
anir og þjónustuaðilar eru með
gjafaleik, fólk skilar inn miðum
um leið og það verslar og fer þar
með í pott þar sem það getur
nælt í vinninginn. Samhliða
þessu verður líka dreift vegg-
spjaldi með viðburðaskrá fyrir
jól á aðventu, jólamessur, tón-
leika, jólabingó og hvað þetta
allt heitir!”
GG
Dagar myrkurs
í Austurbyggð
Dagskrá Daga myrkurs í Austurbyggð hefst föstu-
daginn 18. nóvember með þemadegi í Grunnskóla
Fáskrúðsfjarðar og grímugerð í Grunnskólanum á
Stöðvarfirði. Leikskólarnir Balaborg á Stöðvarfirði
og Kæribær á Fáskrúðsfirði láta ekki sitt eftir
liggja, en þar munu nemendur meðal annars leika
sér með ljós og skugga og fara í spennandi drauga-
leik, þar sem vasaljós og lök eru skylduútbúnaður.
Á milli kl. 11:00 og 16:00, laugardaginn 19. nóv-
entber, munu indæl jólaangan og hlýleg jólaljós
taka á móti gestum í hinu rómaða Jólahúsi Borg á
Fáskrúðsfirði. Þann dag er einnig boðið upp á ljúf-
fengt pizzuhlaðborð á veitingastofunni Brekkunni á
Stöðvarfirði.
Sunnudaginn 20. nóvember, kl. 18:00 leggur
Skrúðganga grímuklæddra af stað frá Grunnskólan-
um á Stöðvarfirði. Þaðan liggur leiðin niður á í-
þróttavöll þar sem kveikt verður í bálkesti, sungið
og trallað. Klukkan 19:00 verður svo haldið áleiðis
í gengnum Nýgræðing og inn að veitingastofunni
Brekkunni, þar sem foreldrafélag leik- og grunn-
skólans býður upp á kleinur og kakó og nemendur
sjá um skemmtidagskrá.
Skriðuklaustur
Gunnarsvaka og sýning um
Brynjólf biskup
Laugardaginn 19. nóvember verður þess minnst að
21. nóvember verða þrjátíu ár liðin frá andláti
Gunnars Gunnarssonar, skálds. Af því tilefni verð-
ur efnt til Gunnarsvöku sem hefst klukkan 16:00 og
stendur fram eftir kvöldi með herragarðskvöldverði
að hætti frú Franziscu. Dagskráin verður blönduð,
Halldór Guðmundsson, bókmenntafræðingur, mun
spjalla um austfirsku skáldin Gunnar og Þórberg,
lesið verður úr verkum skáldsins og Þorbjörn Rún-
arsson, stórsöngvari, mun flytja sönglög sem fund-
ist hafa við nokkur kvæði Gunnars.
Á sunnudaginn klukkan 14:00 verður opnuð sýning
um Brynjólf Biskup Sveinsson og 17. öldinda. Sýn-
ingin er hluti af stærra sýningarverkefni sem fjöldi
stofnana og félaga stendur fyrir í tilefni þess að 400
ár eru liðin frá fæðingu Brynjólfs.
Fljótsdalshérað
í dag verður dagskrá í Safnahúsinu þar sem myrkra-
verur Héraðsins i fortíð og nútíð verða kynntar,
málað verður í Vegahúsinu og hátíðarhöld í leik-
skólunum. Á ntorgun verður ljóslaus dagur á leik-
skólanum Hádegishöfða í Fellabæ og kyndlaganga
frá Hótel Héraði upp Fagradalsbraut klukkan 17:00
þar sem sóknarprestarnir taka á móti fólki í bæna-
stund.
Á laugardag verður haldið upp á tíu ára afmæli
sundlaugarinnar með skemmtun og uppákomum og
á sunnudag verður opið hús í handverks og listahús-
inu Kompunni auk þess sem haldinn verður sam-
ráðsfundur á Hótel Héraði um stöðu handverks og
listiðnaðar á Austurlandi.