Austurglugginn - 07.01.2021, Page 2
2 Fimmtudagur 7. janúar AUSTUR · GLUGGINN
170 Austfirðingar voru bólusettir við
Covid-19 veirunni á þriðjudag og
miðvikudag í síðustu viku. Bóluefni
Pfizer/BionNTech kom til landsins
og gekk hratt og vel að dreifa því
um landið. Upphaflega var reiknað
með því austur seint á þriðjudegi
eða snemma á miðvikudegi en það
kom með morgunflugi á þriðjudegi
þannig að byrjað var að bólusetja á
hádegi. Nokkur vandi er að dreifa
efninu, það þarf að geymast við
-80°C frost en er svo þýtt upp fyrir
notkun. Efnið sem sent var austur
var tekið úr frosti klukkan fjögur að
nóttu.
Í fyrstu atrennu voru
bólusettir heilbrigðisstarfsmenn
sem sinna bráðaþjónustu og
íbúar á hjúkrunarheimilum.
Þórarinn Baldursson, læknir hjá
Heilbrigðisstofnun Austurlands,
fékk fyrstur bóluefni eystra.
GG
Aðalsteinn Jónsson, skip Eskju,
og Polar Amaroq, sem er í eigu
grænlensks dótturfyrirtækis
Síldarvinnslunnar, eru meðal þeirra
fimm skipa sem í byrjun vikunnar
létu úr höfn til loðnuleitar. Bjartsýni
ríkir fyrir ferðina, einkum eftir
ferð sem Polar fór í lok nóvember.
Eftir þann leiðangur ákvað
Hafrannsóknastofnun að gefa út
22.000 tonna kvóta fyrir árið.
Töluvert er líka í húfi eftir
loðnuleysi síðustu tveggja ára.
„Ég held að þetta verði árið sem
loðnuveiðar og vinnsla rísa aftur til
fyrri vegs og virðingar,“ segir Daði
Þorsteinsson, skipstjóri á Aðalsteini
Jónssyni. „Við bindum miklar vonir
við komandi vertíð, enda flest sem
bendir til að framundan sé góð
loðnuvertíð og við trúum því að
markaðirnir bíði eftir afurðunum
þannig að það er full ástæða til að
vera bjartsýn,“ skrifaði Gunnþór
Ingvason, framkvæmdastjóri
Síldarvinnslunnar, í áramótakveðju
til starfsmanna.
Auk Aðalsteins og Polar taka þátt
í leitinni Ásgrímur Halldórsson frá
Hornafirði auk rannsóknaskipanna
Bjarna Sæmundssonar og Árna
Friðrikssonar. Árni hóf mælingar út
af Vestfjörðum en Bjarna er ætlað
að leita og mæla á grunnslóð út af
Norðurlandi. Veiðiskipin þrjú leita
út af Austfjörðum, Norðausturlandi
og djúpt út af norðanverðu landinu.
Alls eru um 20 sérfræðingar
Hafrannsóknastofnunar um borð
í skipunum auk sjómanna. Því eru
um 75-80 manns sem koma beint
að verkefninu á hafi úti.
GG/FRI
Dagana 9. – 18. desember mældist
úrkoma á Seyðisfirði 733 mm, sem
jafngildir því að 733 lítrar vatns hafi
fallið á hvern fermetra lands. Mest
var úrkoman 14. – 18. desember. Þá
daga mældist uppsöfnuð úrkoma
577,5 millimetrar, sem er mesta
fimm daga úrkoma sem mælst hefur
á Íslandi.
Úrkoma mældist víðar mikil á
Austfjörðum í desember. Mest var
hún á Seyðisfirði 813,5 mm, 628
mm í Neskaupstað, 587 mm á
Fáskrúðsfirði og 564 mm á Eskifirði.
Þá voru sett úrkomumet fyrir
desember á stöðinni á Hánefsstöðum
í Seyðisfirði, Gilsá í Breiðdal og
Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði.
Þungi úrkomunnar á öllum þessum
stöðum var á þessu tíu daga tímabili
og mun hún hafa verið ellefuföld, eða
1100%, miðað við meðalár.
Hvað gerðist?
Á vefsvæði veðurstofunnar Bliku
rekur Einar Sveinbjörnsson,
veðurfræðingur, það sem gerðist í
veðurkerfunum í kringum Ísland
og ollu hinni miklu úrkomu á
Austfjörðum.
Í fyrsta lagi voru lægðir á
hringsóli sunnan við landið sem
beindu mildu en röku lofti upp að
austanverðu landinu frá 9. – 18.
desember. Ekkert rigndi á hafinu
úti fyrir Austfjörðum en þegar loftið
kom fyrir Austfjarðafjallgarðinn
kólnaði það, rakinn í skýjunum
þéttist og úrkoman féll áveðurs úr
austanáttinni. Á bakvið fjallgarðinn
var hins vegar skjól og því rigndi
sáralítið þessa daga á Egilsstöðum.
Í færslu sinni segir Einar að um
miðbik þessara daga hafi gengið á
með „endalausu rakafæribandi“ úr
austri.
GG
Bjartsýni fyrir loðnuleit
170 bólusettir við Covid-19
Mesta fimm daga úrkoma Íslandssögunnar
Bríet Magnúsdóttir, sérnámshjúkrunarfræðingur, sprautar Þórarinn í sal heilsugæslunnar á
Egilsstöðum. Mynd: GG
Úrkoman á Seyðisfirði í samhengi
11.873 mm Mawsynram, Indlandi
(mesta úrkoma á ári)
26.470 mm Cherrapunji, Indlandi
(mesta ársúrkoma, 1860-1861)
9.299 mm Cherrapunji, Indlandi
(mesta mánaðarúrkoma, 1861)
4.630,4 mm Kvísker, Öræfum
(mesta mánaðarúrkoma á Íslandi, 2002)
1.870 mm Reunion, Indlandshafi
(mars, 1952)
1.500 mm Dalatangi
(meðaltal á ári 1970-2000)
971,5 mm Kollaleira, Reyðarfirði (mesta
mánaðarúrkoma á Íslandi, október 2002)
907,7 mm Hánefsstaðir, Seyðisfirði
(næstmesta mánaðarúrkoma á Íslandi,
október 2002)
888 mm Reykjavík (ársúrkoma að
meðaltali 2008-2018)
813,5 mm Seyðisfjörður (desember 2020)
733 mm Seyðisfjörður
(9. – 18. desember 2020)
628 mm Neskaupstaður (desember 2020)
577,5 mm Seyðisfjörður
(14. – 18. desember 2020)
480 mm Eskifjörður
(9. – 18. desember 2020)
293,2 mm Kvísker, Öræfum (mesta
sólarhringsúrkoma á Íslandi, 10. janúar 2002)
162,7 mm Seyðisfjörður (sólarhringsúrkoma
18. desember)
2,45 mm Wadi Halfa í Sahara, Súdan
(meðalúrkoma á ári)
0,761 mm Arica, Síle (meðalúrkoma á ári,
þurrasti staður jarðar)