Austurglugginn


Austurglugginn - 27.05.2011, Qupperneq 4

Austurglugginn - 27.05.2011, Qupperneq 4
4 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 27. maí BÚÐAREYRI 7, 730 REYÐARFJÖRÐUR Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Ragnar Sigurðsson • frett@austurglugginn.is • Fréttasími: 477 1750 Auglýsingastjóri og þjónusta við áskrifendur: Þórunn Hyrna Víkingsdóttir • 477 1571 & 891 6484 - auglysing@austurglugginn.is Fréttaritari í Neskaupstað: Áslaug Lárusdóttir s. 695 8498 - aslaugl@gmail.com • Fréttaritari á Vopnafirði: Bjarki Björgólfsson s. 865 7471 - kompan@vortex.is Útgefandi: Útgáfufélag Austurlands ehf. • Umbrot og prentun: Héraðsprent. STEIN-GRÍMSVÖTN Æ tli ég verði ekki að byrja á því að biðjast afsökunar á því að hafa boðið lesendum Austurgluggans gleðilegs sumars of snemma, eða fyrir um mánuði síðan, fljótfærnin blasti við öllum í vikunni. Ég hef þó fulla trú á því að eftir þetta mikla vorhret muni sumarið koma með miklum glæsibrag. Það er erfitt að gefa út þetta tölublað án þess að minnast á gosið í Grímsvötnum. Það gladdi mig að sjá að Kjartan Glúmur minntist á það í vísnahorninu og því er blaðið ekki algjörlega án gosumfjöllunar. Annars hefur Austurland nánast alveg sloppið við öskufall, ennþá að minnsta kosti, fyrir utan smotteríis ösku sem féll á Egilsstöðum og Vopnafirði en ég hef ekki haft fregnir af gosösku víðar sem betur fer. Umfjöllun um áhrif gossins og þær hamfarir hafa verið allsráðandi í fjöl- miðlum, eðlilega. Deila má um það hvort umfjöllun fjölmiðla um gosið hafi verið of drottnandi á kostnað annarra stórmerkilegra tíðinda, sitt sýnist hverjum um það. Skýrsla fjármálaráðherra um endurreisn viðskiptabankanna sem var gefin út í mars en ekki birt fyrr en um miðjan þennan mánuð er gott dæmi um mál sem lítið sem ekkert hefur verið minnst á í fjölmiðlum. Nokkrir þingmenn hafa þó reynt að halda henni á lofti auk Marínós Njálssonar og Ólafs Arnarssonar, hagfræðings, sem segir í nýlegri grein sinni á Pressunni að „þegar skýrslan er lesin skýrist raunar vel hvers vegna fjármálaráðherra reyndi að láta sem minnst fyrir henni fara. Hún sýnir svart á hvítu hvernig fjármálaráðherra - og þannig ríkisstjórn Íslands - gaf skilanefndum gömlu bankanna skotleyfi á íslenska skuldara - fórnaði hagsmunum  íslenskra heim- ila og fyrirtækja til að vernda hagsmuni erlendra kröfuhafa gömlu bankanna.“ Ég hef fulla trú á því að fjölmiðlar muni fylgja skýrslunni eftir með gaumgæfulegum hætti. Margt af því sem þar kemur fram virðist vera í fullkominni þversögn við það sem norræna velferðarstjórnin ætlaði sér. Í skýrslunni er nánast hvergi minnst á hagsmuni viðskiptavina bankanna en með yfirgripsmiklum hætti er fjallað um hvernig verði að taka aukið tillit til kröfuhafa viðskiptabankanna og leitast við að finna lausnir í þeirra málum. Skýrslan er komin á nátt- borðið hjá mér til ítarlegri yfirlesturs, enda ekki seinna vænna að reyna að kynnast betur þessum nýja baráttu- anda Steingríms og „breyttu“ stefnu ríkisstjórnarinnar. Í sumarskapi Ragnar Sigurðsson Mikið varð ég glaður núna um helgina þegar ég fékk staðfestingu á því, frá ekki ómerkari manni en fjármálaráðherra vorum, að ég væri ekki venjulegur. Það er víst eingöngu óvenjulegt fólk er hefur lent í því að eignir brenni upp vegna hækkunar á lánum. Þessar vísur bárust frá fyrr- verandi bónda í Skriðdal og má kalla þær heilræði fyrir stjórnmálamenn: Til háværs stjórnmálamanns Þetta segja við þig vil vinur hætt‘að gala. og þegiðu bara þangað til þér er sagt að tala. Hreinn Guðvarðarson Hughreysting til þess hógværa Þó að aukast virðist vandi og veröld sýnist standa á haus, naumast hefur núlifandi nokkur dáið ráðalaus. Hreinn Guðvarðarson Sauðárkóki Það má segja Steingrími J til happs að stærri fréttir urðu til þess að ef til vill hefur almenningur ekki haft tíma til að hugsa um ræðu hans um helgina: Glími ég við raunir ríms reyni á hug minn allan: Fólskulegt er -fjallið Gríms- frelsar – „hann með skallann“. Björn Hafþór Guðmundsson Ég hélt að eftir gosið í Eyjafjallajökli á síðasta ári væri komið nóg í bili. En náttúruhamfarir þurfum við að búa við hér á landi. Það má því segja að ég hafi skammast mín eftir að hafa lent í hrakningum á Fagradal á föstudaginn að ég skyldi barma mér og bölsótast yfir veðrinu. Eftir að hafa horft á myndir helgarinnar finnst mér ég hafa það nokkuð gott. Samt eru margir sem voru farnir að gleðjast yfir blómunum misglaðir og er það alveg eðlilegt: Aldrei gjarnan svart hef séð, síður ennþá núna en safnist meiri snjór á beð á sumri rýrir trúna. Philip Vogler Svo er hér önnur um baráttu okkar við náttúruöflin: Eystra hleður snjó á snjó snjór frá himnum þekur mó. Syðra askan svertir geim og sífellt hitnar undir þeim. Stefán Bragason Þar sem í upphafi var verið að skammast yfir stjórnmálamanni er ekki úr vegi að leyfa skáldi úr þeirra hópi að eiga síðasta orðið. Vísan fjallar um tildrög hrunsins: Í nýju ljósi nú ég sé nýfrjálshyggjumóðinn, trylltum körlum tryggt var fé en tapið borgar þjóðin. Sigmundur Ernir Rúnarsson Ég læt þetta duga að sinni og þakka öllum sem sendu inn vísur kærlega fyrir. Fyrriparturinn er enn í fríi hjá mér en velkomið að senda inn fyrri- parta þrátt fyrir það. Minni enn og aftur á netföngin glumur2@centrum. is eða frett@austurglugginn.is Vísnahornið Venjulegt fólk og varasöm náttúra Hjalli Vísnakveðja, Glúmur Skopmynd vikunnar - Vísnahorn Austfirsk málefni krufin til mergjar Menningarviðburðir - Íþróttir - Sérblöð Fréttabréf Fljótsdalshéraðs - Fréttabréf Fjarðabyggðar. Veljum austfirskt alla leið... Tryggðu þér áskrift að fréttablaði Austfirðinga Sendu netpóst á auglysing@austurglugginn.is eða hringdu í síma 477-1571.

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.