Austurglugginn


Austurglugginn - 27.05.2011, Blaðsíða 13

Austurglugginn - 27.05.2011, Blaðsíða 13
 Föstudagur 27. maí AUSTUR · GLUGGINN 13 REIÐHJÓL Mesta úrval á Austurlandi Viðgerðir og varahlutaþjónusta. SKÓGAR Opið mán.-fös. kl. 10 - 18. ATH opið laugardaga kl. 11 - 15 - Framhaldsskólar - brautskráning og skólaslit - Menntaskólinn á Egilsstöðum Mynd/VA Á laugardaginn, 21. maí var Menntaskólanum á Egilsstöðum slitið í 31. sinn. Þrjátíu og sjö nemendur brautskráðust frá skólanum, 2 af fjögurra ára starfsbraut og 35 með stúdentspróf, 16 af félagsfræðibraut, 12 af náttúrufræðibraut, 4 af málabraut, einn af við- skipta- og hagfræðibraut og tveir með viðbót- arnám til stúdentsprófs af starfs- námsbrautum. Að auki luku tveir þessara nemenda námi af list- námsbraut og einn af íþrótta- braut samhliða stúdents- brautunum. Bestum árangri á stúdentsprófi náði Hörður Bragi Helgason, með meðal- einkunnina 9,45. Hörður Bragi er einungis sautján ára og yngsti nemandi sem lokið hefur stúdentsprófi frá skólanum. Í skólaslitaræðu ræddi Helgi Ómar Bragason skólameistari um nýja námskrá sem skólinn tekur upp komandi haust. Allmargar nýjungar fylgja námskránni, meiri áhersla verður lögð á sjálfstæð og öguð vinnubrögð nemenda. Margir nýir og spennandi áfangar verða í boði. Skólinn tekur upp nýtt skipulag, sem hefur gengið undir nafninu „Spannir og verkefnatímar“. Hverri önn verður skipt í tvennt. Hver nemandi einbeitir sér að færri námsgreinum í einu og lýkur áföngum sínum á tæpum 9 vikum. Önnur hver kennslustund nemandans verður í verkefnatímum þar sem nemendur vinna að verkefnum tengdum áföngum sem þeir stunda. Skólameistari þakkaði starfsmönnum og nemendum sem hafa unnið að námskránni síðustu þrjá vetur. Föstudaginn 20. maí fór fram brautskráning frá Verkmenntaskóla Austurlands í Kirkju - og menn- ingarmiðstöð Fjarðabyggðar á Eskifirði. Alls 44 nemendur luku prófi, 7 af félagsfræðibraut, 4 af húsasmíðabraut, 4 með meistaranám (3 í vélvirkjun og einn af snyrtibraut), 4 af námsbraut fyrir leiðbeinendur í leikskólum, 9 af námsbraut fyrir stuðningsfulltrúa í grunn- skólum, 1 af námsbraut fyrir leiðbeinendur í leik- og grunn- skóla, 4 af náttúrufræðibraut, 6 af sjúkraliða- braut, 1 af starfsbraut, 1 í vélvirkjun, 3 með viðbótarnám til stúdentsprófs. Sökum veðurs höfðu ekki allir tök á því að mæta í brautskráningu en rúta fór frá Neskaupstað á keðjum yfir Oddskarð en vonskuveður var einnig í Fagradal og því urðu nokkrir veðurtepptir og komust ekki í útskriftina en athöfnin fór engu að síður vel fram. Nokkrir nemendur voru verðlaunaðir fyrir góðan náms- árangur og frammistöðu og elju í námi. Þá var Valgerður Ásgeirsdóttir verðlaunuð fyrir óeigingjarnt framlag til leik- lista og Guðmundur Daði Guðlaugsson fyrir þátttöku í Gettu - betur liði VA en hann hefur verið í liðinu samtals fimm sinnum.  Óli Freyr Axelsson nýstúd- ent flutti kveðju frá nemendum, Ingibjörg Þórðardóttir  kveðju kennara og Jón Björn Hákonarson formaður skóla- nefndar flutti ræðu. Flestar ræður sem fluttar voru fjölluðu m.a. um úttekt Frjálsrar Verslunar sem birt var í sl. viku, ræðumenn deildu á fjöl- miðla fyrir einfalda túlkun auk þess að efast mjög um raunhæfni þeirra þátta sem horft var til í úttektinni. Tvö tónlistaratriði voru við athöfnina, Sigfús Ólafur Guðmundsson nýstúd- ent söng Imagine eftir John Lennon og Garðar Eðvaldsson spilaði lagið Misty eftir Erroll Garner á saxafón. Ágúst Ármann lék undir bæði lögin á píanó. Verkmenntaskóli Austurlands Mynd/Þráinn Skarphéðinsson ISSN1670-3561 40. tbl. - 9. árg. - 2010 - Föstudagur 15. október Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði - Verð í lausasölu kr. 450 ÞÚ ERT Á GÓÐUM STAÐ Eskifjörður Reyðarfjörður Fáskrúðsfjörður Stöðvarfjörður Mjóifjörður Neskaupstaður FJARÐABYGGÐ fjardabyggd.is Fréttablað Austurlands Ný og betri afgreiðsla á Reyðarfirði Landflutningar á Reyðarfirði hafa flutt sig um set í stærra og betra húsnæði. Er afgreiðslan opin virka daga frá 9:00-16:00. Nýja heimilisfangið er: Landflutningar-Samskip Nesbraut 10 · 730 Reyðarfjörður Sími 458 8840 landflutningar@landflutningar.is www.svn.is Fjölmenn mótmæli um allt Austurland. Reiði á íbúafundi á Egilsstöðum. Sjá nánar á bls. 6. Austurglugginn og Þekkingarnet Austurlands eiga samstarf um útgáfu Austurgluggans þessa viku. Í blaðinu er sérstök áhersla lögð á þekkingarsamfélag Austurlands. Skráðu þig á póstlistann á síðunni og þú færð nýjustu tilboðin send beint til þín í tölvupósti. Skoðaðu bonus.is og nýjustu tilboðin Einungis 2 af 10 þingmönnum norðausturkjördæmis styðja óbreytt fjárlagafrumvarp. Enginn þingmaður Samfylkingarinnar. Fellir landsbyggðin ríkisstjórnina? Umfjöllun bls. 6 ISSN1670-356138. tbl. - 9. árg. - 2010 - Föstudagur 1. október Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði - Verð í lausasölu kr. 450 ÞÚ ERT Á GÓÐUM STAÐ Eskifjörður Reyðarfjörður Fáskrúðsfjörður Stöðvarfjörður Mjóifjörður Neskaupstaður FJARÐABYGGÐ fjardabyggd.is Fréttablað Austurlands Ný og betri afgreiðsla á Reyðarfirði Landflutningar á Reyðarfirði hafa flutt sig um set í stærra og betra húsnæði. Er afgreiðslan opin virka daga frá 9:00-16:00. Nýja heimilisfangið er: Landflutningar-Samskip Nesbraut 10 · 730 Reyðarfjörður Sími 458 8840 landflutningar@landflutningar.is www.svn.is Stórhuga blakdeild í Neskaupstað Sjá nánar á bls. 2 Sjá nánar á bls. 12 Steingrímur J. á SSA aðalfundi Skráðu þig á póstlistann á síðunni og þú færð nýjustu tilboðin send beint til þín í tölvupósti. Skoðaðu bonus.is og nýjustu tilboðin Breið samstaða SSA á Breiðdalsvík bls. 6-7 A Ð A L F U N D U R ISSN1670-3561 39. tbl. - 9. árg. - 2010 - Föstudagur 8. október ÞÚ ERT Á GÓÐUMSTAÐ Eskifjörður Reyðarfjörður Fáskrúðsfjörður Stöðvarfjörður Mjóifjörður Neskaupstaður FJARÐABYGGÐ fjardabyggd.is Sjá nánar á bls 2. Aðalfundur Sambands ísl nskra sveitarfélaga Fréttablað Austurlands Ný og betri afgreiðsla á Reyðarfirði Landflutningar á Reyðarfirði hafa flutt sig um set í stærra og betra húsnæði. Er afgreiðslan opin virka daga frá 9:00-16:00. Nýja heimilisfangið er:Landflutningar-SamskipNesbraut 10 · 730 ReyðarfjörðurSími 458 8840 landflutningar@landflutningar.is Skráðu þig á póstlistann á síðunni og þú færð nýjustu tilboðin send beint til þín í tölvupósti. Skoðaðu bonus.is og nýjustu tilboðin www.svn.is Sjá nánar á bls. 5. Vinavika Vopnafjarðar - fengu kveðju frá biskupi Íslands Tillögur að fjárlögum næsta árs bitna harkalega á landsbyggðinni og munu koma niður á starfsemi HSAÍtarleg yfirferð um fjárlagafrumvarpið í opnu blaðsins Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði - Verð í lausasölu kr. 450 Fer svona fyrir fjárfestingum fyrri ára í heilbrigðisþjónustu á Austurlandi? Viltu auglýsa í Austurglugganum? Auglýsingasíminn er 891 6484

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.