Austurglugginn - 27.05.2011, Blaðsíða 14
14 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 27. maí
Ólafur Hr. Sigurðsson sagði af sér sem
bæjarstjóri Seyðisfjarðarkaupstaðar á
fundi bæjarráðs Seyðisfjarðar í síð-
ustu viku. Hann segist með þessu
vilja axla ábyrgð á vondri niður-
stöðu á seinasta fjárhagsári. Hann
segir ástæðu uppsagnarinnar ekki
eingöngu snúa að rekstrarniðurstöðu
bæjarins heldur einnig trúnaðar-
brests milli sín og sjálfstæðismanna
í bæjarstjórn. Þá hefur verið tilkynnt
að Ólafur láti af störfum þann 31.
maí nk. og að Vilhjálmur
Jónsson, formaður bæjar-
ráðs, taki við þar til nýr
bæjarstjóri hefur verið
ráðinn.
Ólafur Sigurðsson
hefur verið bæjarstjóri á
Seyðisfirði í alls níu ár
en í kosningunum 2006
var hann boðinn fram sem bæjar-
stjóraefni Sjálfstæðisflokksins.
Hann var ekki í framboði í fyrra en
var endurráðinn bæjarstjóri þegar
nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks var myndaður.
Arnbjörg Sveinsdóttir, fyrrverandi
þingmaður, leiddi þá listann og situr
sem forseti bæjarstjórnar.
Aðspurður út í ástæður uppsagnar-
innar segir Ólafur að það sé vegna
margra samverkandi þátta.
Lítur verr út en
hann átti von á
„Ég hélt að þetta liti ekki eins illa út
eins og raun ber vitni. Ég axla því
ábyrgð á mínum hlut en það verða
aðrir að axla ábyrgð á ákveðnum
hlutum þarna sem ekki er hægt
að hlaupast frá,“ sagði Ólafur í
samtali við Austurgluggann í síð-
ustu viku. Ólafur greinir frá því
að ársreikningurinn sem bíði nú
annarrar umræðu í bæjarstjórn
Seyðisfjarðar sýni tap á rekstri bæj-
arsjóðs en gert var ráð fyrir að sam-
stæðan væri réttu megin við strikið.
Ólafur segir að alltof miklar vænt-
ingar hafi verið gerðar til kapalverk-
smiðjunnar. „Samkvæmt áætlunum
sem við gerðum haustið 2009 þá
héldu allir að búið yrði að landa
þessari vinnu í byrjun árs 2010. Við
gerðum ráð fyrir því þegar áætlun
fyrir árið 2010 var gerð að hægt
yrði, samhliða ákvörðun um kapal-
verksmiðju, að fara í „minniháttar“
lagfæringar á starfsmannahaldi sem
myndi skila sér síðari hluta árs 2010.
Slíkar aðgerðir hefðu skila því að
launahaldið hefði a.m.k. orðið einum
20 milljónum lægra en það síðan
varð“ segir Ólafur.
Samkvæmt heimildum Austur-
gluggans er það Framtakssjóður
Íslands sem dregur lappirnar hvað
kapalverksmiðjuna varðar en beðið
er eftir svörum frá sjóðnum. Sökum
þess að bæjarstjórn mat það þannig
að búið yrði að reisa Kapalverksmiðj-
una í byrjun ársins 2010 þá segir
Ólafur að bærinn hafi haldið áfram
út árið við þá stefnu að
vera í framkvæmdum og
„aðstoða þannig atvinnu-
lífið á árinu við að halda
út óbreyttri starfsemi
án þess að fleiri þyrftu
að fara úr bænum eða
til að ekki bættist á lista
atvinnulausra. Nógu
slæmt er nú ástandið“
segir Ólafur.
Hann segir kreppuna ekki hafa hitt
Seyðfirðinga illa ennþá sökum þess
að bærinn hafi haldið aftur að sér í
fækkun starfsfólks og bætir því við
að það hafi verið meðvituð stefna
núverandi og síðustu bæjarstjórnar.
Skammast sín
Ólafur segir að stefnt hafi verið að
því að fækka mannskap í skólanum
með því að ráða ekki í þær stöður
sem losnuðu, það tækifæri hafi hins
vegar ekki verið nýtt og Ólafur segir
að sökin á því sé alfarið sín en það
megi rekja til þess að fyrir kosningar
árið 2010 „var ég ekki bara bæjar-
stjóri heldur líka oddviti sjálfstæðis-
manna. Pólitíkusar eins og ég var þá,
þora ekki í svona aðgerðir á síðustu
metrunum fyrir kosningar en það
er í apríl mánuði sem eru síðustu
forvöð til að breyta eitthvað til fyrir
næsta skólaár. Þarna liggur mín sök“
segir Ólafur.
Ólafur segir jafnframt að „[e]f borin
eru saman árin 2009 og 2010 lítur
þetta svo sem ekkert sérlega illa
út t.d. er annar kostnaður sveitar-
félagsins nánast sama tala á milli
ára þrátt fyrir gríðarlegar hækkanir
á öllum sviðum en þó sérstaklega
á orkuverði. Stærsti hluti aukins
launakostnaðar á milli ára liggur í
tryggingargjaldinu og svo tókum við
alla námsmenn sem til okkar leit-
uðu í vinnu. Þ.e.a.s. þá sem áttu hér
lögheimili. Sumarið varð því dýr-
ara en ella. Rekstarniðurstaða fyrir
afskriftir og fjármagnsliði er hins
vegar aðeins örlítið lakari á milli
ára þrátt fyrir fyrrgreint svo munar
4.5 milljónum. Með öllu saman er
rekstrarniðurstaða ársins mun betri
en árið á undan. Hins vegar munar
hér einum 20 milljónum á því sem
niðurstaðan varð og því sem ég taldi
að myndi verða og við það er ég mjög
ósáttur og skammast mín fyrir það“
segir Ólafur.
Fleiri þurfa að axla
ábyrgð
Aðspurður út í það hverjir eigi að axla
ábyrgð og hvers vegna segir Ólafur
að „ábyrgð allra stjórnenda í stofn-
unum byggir á því að allir séu með-
vitaðir um stöðuna um hver mánað-
armót og bregðist við ef kostnaður
stefnir fram úr áætlun. Það er líka
skylda allra stjórnenda að grípa
hvert tækifæri sem gefst til að spara
í mannahaldi og þá sérstaklega á það
við þegar menn vita að staða sveitar-
félagsins fjárhagslega er ekki góð.
Sjái stjórnendur að stefni í fjárþörf
umfram heimildir þarf að leita sam-
þykkis fyrir því í bæjarráði. Ef þeir
gera það ekki þurfa þeir hinir sömu
að axla ábyrgð“ segir Ólafur. Hann
segist bera ákveðna ábyrgð á því að
hafa ekki beitt menn betra aðhaldi
í þessum efnum og bætir því við að
„hvort aðrir sjá ástæðu til að nota
sömu aðferð og ég og hreinlega fá sér
eitthvað annað að gera er svo undir
hverjum og einum komið.“ Hann
segir að bæjarstjórn Seyðisfjarðar geri
ekki slíkar kröfur til sinna stjórnenda
og hafi aldrei gert og hafi ekki gert
það til hans sem yfirstjórnanda.
Kannast ekki við
trúnaðarbrest
Austurglugginn ræddi við Arnbjörgu
Sveinsdóttur, forseta bæjarstjórnar,
og Daníel Björnsson, sem gegnir
starfi fjármálastjóra Seyðisfjarðar og
er jafnframt bæjarfulltrúi sjálfstæðis-
flokksins. Þau tóku í sama streng
og sögðu ákvörðunina vera alfarið
hans en vildu lítið tjá sig um upp-
sögnina og meintan trúnaðarbrest að
öðru leyti. Bæði Arnbjörg og Daníel
sögðust ekki skilja hvaða trúnaðar-
brest Ólafur ætti við og höfnuðu
því að um trúnaðarbrest hafi verið
að ræða. Cecil Haraldsson, oddviti
minnihlutans vildi ekkert tjá sig
um málið og sagði þetta mál alfarið
snerta meirihlutann.
Arnbjörg sagði þó að reikning-
arnir sýndu að það hefði ekki verið
tekið á málum eins og þurft hefði
að gera. Arnbjörg sagði í samtali
við Austurgluggann að auglýst yrði
eftir nýjum bæjarstjóra en þar til nýr
bæjarstjóri hafi verið ráðinn muni
Vilhjálmur Jónsson gegna bæjar-
stjórastöðunni. Sú saga fór fljótt
á kreik að Arnbjörg ætlaði sér að
taka við bæjarstjórastöðunni. „Ég
er í námi og það hefur aldrei staðið
til að taka við bæjarstjórastöðunni.
Ég mun því ekki sækja um stöðuna
svo það sé á hreinu“ sagði Arnbjörg.
Þurfa að skýra málin
Aðspurður út í ágreininginn segir
Ólafur að aldrei sé það þannig að
einn eigi sök þegar tveir deili. „Ég
hef minn stíl á að stjórna og það
þola þann stíl ekki allir. Ég er yfir-
leitt fljótur að taka ákvarðanir og
þyki ekki sérlega lýðræðislegur í
aðgerðum. Ég er ekki maður sem
eyði tíma í að velta hlutum fyrir mér
í langan tíma og þora svo jafnvel
ekki að taka ákvörðun. Ég tek yfir-
leitt ákvarðanir strax og það hentar
ekki öllum bæjarráðum að vinna með
slíkum aðila og ég sé það að yngra
og kannski varkárara fólkinu líkar
þetta illa. Þetta snýst ekki um neina
óvild eða fjandskap heldur miklu
fremur um gamla og nýja tímann.
Væntanlega er ég bara gamaldags
stjórnandi með gamaldags stjórn-
unarstíl“ segir Ólafur og bætir því við
að hann fari ósáttur frá starfi. Hann
telur sig vera að bregðast trausti fjöl-
margra fylgismanna sinna en telur
sig ekki geta unnið með bæjar-
fulltrúum sjálfstæðisflokksins.
„Ábyrgð meirihlutans liggur hins
vegar í því að skýra málið út fyrir því
fólki sem er í þeirra baklandi. Ef að
það fólk stendur heilshugar þeim að
baki þá er þetta allt í fínu lagi. Ef ekki
þá verður erfitt fyrir þetta sama fólk
að vinna áfram sín störf í bæjarstjórn.
Ósáttastur er ég samt við það að
þurfa kannski að leita mér að vinnu
utan Seyðisfjarðar en án atvinnu get
ég ekki hugsað mér að vera. Ef svo fer
þá kemur fátt annað til greina en sá
staður annar á Austurlandi sem mér
þykir jafn vænt um og Seyðisfjörð og
það er Norðfjörður þar sem ég bjó í
24 ár“ segir Ólafur.
Óli bæjó hættur
Ólafur Hr. Sigurðsson
Hins vegar munar hér einum 20 milljónum á því sem
niðurstaðan varð og því sem ég taldi að myndi verða og
við það er ég mjög ósáttur og skammast mín fyrir það.
„hvort aðrir sjá ástæðu til að nota sömu aðferð og ég og
hreinlega fá sér eitthvað annað að gera er svo undir hverjum
og einum komið.“ Hann segir að bæjarstjórn Seyðisfjarðar
geri ekki slíkar kröfur til sinna stjórnenda og hafi aldrei gert og
hafi ekki gert það til hans sem yfirstjórnanda.