Austurglugginn - 27.05.2011, Blaðsíða 15
Föstudagur 27. maí AUSTUR · GLUGGINN 15
Þróunarfélag Austurlands (ÞFA)
hefur verið starfrækt frá því árið
1983. Félagið vinnur að framþróun í
atvinnulífi og jákvæðri samfélagsþróun
á Austurlandi. Meðal helstu hlutverka
Þróunarfélags Austurlands er að efla
atvinnulíf og samfélag á Austurlandi,
veita ráðgjöf við nýsköpun- og þró-
unarverkefni auk þess að veita ráðgjöf
um bættan rekstur. Félagið hefur tekið
þátt í fjölda verkefna á landsvísu sem
og alþjóðlegum verkefnum sem ætlað er
að styðja og styrkja við atvinnulífið á
Austurlandi.
Hafliði Hafliðason, framkvæmda-
stjóri ÞFA, segir fólk leita í auknum
mæli á skrifstofur ÞFA eftir fjármála-
hrunið á Íslandi einkum með hug-
myndir sem það hefur haft í skúff-
unum hjá sér. „Á miðsvæðinu finnum
við fyrir því að fólk leitar meir til
okkar nú en fyrir kreppu með hug-
myndir sem það hefur haft lengi og
vill vinna að. Hugsanlega hefur fólk
meiri tíma í dag til þess að kanna
möguleika sína og eflaust spilar þarna
inn í ákveðið atvinnuóöryggi“ segir
Hafliði.
Margt af þeim verkefnum sem ÞFA
vinnur að snýr að frumkvöðlastarfi.
Þau verkefni og sú vinna sem fer í
að rannsaka og kostnaðargreina ýmis
verkefni eru falin fyrir fólki einkum
vegna þess að fyrirtæki og einstak-
lingar sem koma með hugmyndirnar
gera það í trúnaði. ÞFA sinnir ekki
eingöngu frumkvöðlastarfi heldur
sinnir félagið einnig ráðgjöf ýmis-
konar og veitir sveitarfélögunum og
SSA ýmsa aðstoð.
Sem dæmi um verkefni sem starfs-
fólk ÞFA hefur verið að vinna að
eru stofnun: Kyndistöðvar á Hall-
ormsstað, mögulegrar Álkapla-
verksmiðju á Seyðisfirði og Jarðfræði-
seturs á Breiðdalsvík. Auk þessara
verkefna er ÞFA umsjónaraðili Vaxt-
arsamnings Austurlands, hefur unnið
að ESB-verkefnum tengdum sam-
félagsþróun á Austurlandi og veitt
frumkvöðlum á Austurlandi þjónustu
og ráðgjöf með sín fyrstu skref í við-
skiptaheiminum. „Það er erfitt að
rekja þá hluti sem við höfum komið
að með einum eða öðrum hætti en
það má nefna Hús Handanna og
Þorpið en þar komum við að verk-
efninu með því að leiða saman hesta
og hjálpa til með samvinnu hönnuða.
Í augnablikinu erum við að vinna
að álkaplaverksmiðjunni á Seyðis-
firði og vonandi í framhaldinu frekari
vinnslu á áli. Við erum að vinna fyrir
SSA tengt „austfirskri einingu“ og
sinnum þar ráðgjöf og greiningar-
vinnu og að Evrópuverkefni sem
snýr að almenningssamgöngum á
dreifbýlum svæðum en það verk-
efni höfum við verið að vinna náið
að með Fjarðabyggð. Möguleikar á
fjarvinnslutækifærum hér á svæðinu
hafa verið kannaðir og við höfum
einnig verið að kynna möguleika
þessa svæðis í þeim efnum og það
þarf að fylgja því máli eftir. Svo erum
við að vinna að fjöldanum öllum af
öðrum málum“ segir Hafliði.
Þróunarfélagið er rekstraraðili fyrir
Vaxtarsamning Austurlands og
í gegnum þann sjóð hafa sprottið
upp mörg mjög öflug verkefni og
ýmis spennandi verkefni eru í gangi
sem hlotið hafa styrk úr sjóðnum en
Hafliði segir að þörfin sé mun meiri.
„Í úthlutuninni síðast var sótt um
styrk upp á 55 milljónir en við
gátum einungis veitt 12 milljónir.
Þessi sjóður þyrfti að vera helmingi
meiri miðað við drifkraftinn í fólk-
inu hér. Atvinnuþróunarsjóður og
Vaxtarsamningurinn eru einu tækin
sem við getum notað til að aðstoða
frumkvöðla hér á Austurlandi.“
Óvissa framundan
Hjá ÞFA starfa fjórir aðilar með
starfsstöðvar á Egilsstöðum og
Reyðarfirði. Samningur ÞFA við
ríkið rann út um síðustu áramót en
samningurinn var framlengdur um
eitt ár. ÞFA er háð þjónustusamningi
við ríkið en í gegnum hann kemur
21 milljón til félagsins. Hafliði segir
að óvissa sé um það hvað gerist eftir
áramót en hann á ekki von á öðru
en að ÞFA haldi áfram en í hvaða
mynd er hinsvegar spurningamerki
en ætti að skýrast fljótlega því verið
er að vinna að því að hefja viðræður
við ríkið um framhaldið.
Í lok maí árið 2010 kviknaði í Fellabakaríi út frá rafmagni á
skrifstofu á efri hæð. Efri hæðin gjöreyðilagðist en verslun
og pökkun urðu illa úti. „Til allrar lukku slapp vinnslusalur
alveg við skemmdir fyrir utan sót og vatn“ segir Björgvin
Kristjánsson en hann á og rekur nú Fellabakarí einn síns liðs.
„Fellabakarí er enn á sínum stað við Lagarfljótsbrúna en
við uppbyggingu hins skemmda hluta voru gerðar miklar
breytingar á verslun og pökkun. Búðin var endurhönnuð
og má sitja í rólegheitum við gluggann og njóta útsýnis yfir
fljótið til héraðs og upp til fjalla og heiða“ segir Björgvin.
Austurglugginn leit við í bakaríið fyrir skemmstu en þar hefur
myndast skemmtileg kaffihúsastemning í fallega innréttaðri
búð með mjög skemmtilegt útsýni. Ekki skemmir fyrir að
þar er hægt að njóta fjölbreytts vöruúrvals Fellabakarís en
lystaukum hefur verið fjölgað talsvert. „Stefnan er að vera
með smurt , súpu og jafnvel brauðrétti eða pítur í hádeginu
en það er í þróun hjá okkur núna“ segir Björgvin og bætir
því við að tekið er úr lás „kl: 6:30 þó formleg opnun sé ekki
fyrr en 7:00 og við erum með opið til 17 á virkum dögum en
8 - 13 á laugardögum en á sunnudögum er lokað“.
Finna fyrir aukinni þörf
Fellabakarí opnar á ný