Austurglugginn - 27.05.2011, Page 19
Föstudagur 27. maí AUSTUR · GLUGGINN 19
Spurning vikunnar
Hvað finnst þér um
brotthvarf Ólafs úr stóli
bæjarstjóra?
Spurt á Seyðisfirði
Hilmar Eyjólfsson
Þetta er ekki gott, maður veit ekkert
hvað kemur í staðinn.
Sigríður Heiðdal
Ég kem til með að sakna hans
og vona að hann komi til með að
búa hér áfram. En það er gott að
fá nýtt blóð.
Þórhallur Jónasson, Hallgrímur
Einarsson og Sigríður Fanný
Það er slæmt að missa góðan mann.
Garðar Eymundsson
Mér finnst það hið besta mál. Hann
átti aldrei að fá þetta starf til að
byrja með.
Jón Ólafsson
Þetta er slæmt mál.
Kreddur óstjórnar
Við ríkisstjórnarmyndun árið 2009
fengu Samfylking og VG tækifæri
til þess að láta draum sinn um breyt-
ingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu
verða að veruleika. Boðað var að nýtt
og betra kerfi tæki gildi þann 1. sept-
ember 2010. Það er hins vegar fyrst
nú á vordögum 2011, eftir tveggja
ára þref og þras, að komin eru fram
tvö frumvörp til breytinga. Þá ber
svo við að enginn fagnar þessum
áformum hinnar norrænu velferð-
arstjórnar Jóhönnu og Steingríms.
Ekkert byggðarlag hefur ályktað um
ágæti breytinganna, ekkert sjávar-
útvegsfyrirtæki, engin samtök sjó-
manna, ekkert verkalýðsfélag.
Hvers vegna skyldi svo vera? Hefur
ekki Samfylkingin verið boð-
beri réttlætisins í þessum efnum?
Hvernig skyldi standa á því að ekki
ríkir gríðarlegur fögnuður meðal
þjóðarinnar yfir því að nú loksins,
loksins, hafi litið dagsins ljós rétt-
læti vinstri manna við stjórn fisk-
veiða við Ísland?
Það skyldi nú ekki vera að jarð-
samband þeirra sem harðast hafa
deilt á kerfið sé ekki meir en það
að sá fámenni hópur sem níðir
niður og agnúast út í alla þá sem
vinna við útgerð hefur nú loksins
opinberað skilningsleysi sitt á því
hvernig verðmætin verða til í þessum
mikilvæga atvinnurekstri.
Staðreyndin er sú að þær breytingar
sem ríkisstjórnin ætlar að ná fram,
í bullandi ósætti við allt og alla, þar
með talið sjálfa sig, eru ávísun á
aukin afskipti stjórnmálamanna af
íslenskum sjávarútvegi.
Nú verður tekin upp sú sama
handstýring stjórnmálamanna sem
stunduð var fyrir u.þ.b. 30 árum og
kom þessari atvinnugrein á vonar-
völ. Flotinn var orðinn alltof stór
og afkastamikill miðað við heildar-
afla, fiskvinnslustöðvar of margar,
og taprekstur kallaði á sífelldar
gengisfellingar á kostnað almenn-
ings og fyrirtækja.
Lykillinn að skynsamlegri nýtingu
fiskveiðiauðlindarinnar og arð-
semi greinarinnar var því miður
óhjákvæmileg fækkun fiskiskipa,
vinnslustöðva og aukin tæknivæð-
ing og fækkun starfa við veiðar
og vinnslu. Því fylgdu gríðarlega
miklar og sársaukafullar breytingar
að laga sjávarútveg lands-
ins að því hámarki sem
veiða mátti ár hvert úr
fiskistofnum þjóðarinnar.
Engu að síður voru þetta
nauðsynlegar breytingar
í öllum meginatriðum.
Því miður hafa ein-
staka stjórnmálaflokkar,
en Samfylkingin hefur
gengið hvað lengst í
þeim efnum, og reynt
að nýta sér það ástand sem þetta
skapaði með pólitískri tækifæris-
mennsku. Sá flokkur hefur löngum
alið á innihaldslausum frösum um
nauðsyn breytinga á fiskveiðistjór-
nunarkerfinu án þess að leggja
fram útfærðar tillögur sem stan-
dast skoðun. Þess ber að geta að frá
því þetta kerfi var sett á hafa verið
gerðar á því um 200 breytingar og
flestar til þess eins að draga úr hag-
kvæmni greinarinnar. Flestar hafa
verið gerðar í þeim tilgangi að þjóna
duttlungum stjórnmálaafla sem
séð hafa sér hag í því að þjóna ein-
hverjum tilteknum sérhagsmunum.
Reynt er að pakka boðuðum breyt-
ingum hinnar norrænu velferðar-
stjórnar á fiskveiðistjórnunar-
kerfinu inn í fagurgala um réttlæti
og jöfnuð. Af því tilefni má spyrja
lesendur Austurgluggans eftirfar-
andi spurninga:
Hvaða réttlæti er fólgið í því að afla-
heimildir austfirskra útgerða verði
skornar niður og færðar ýmist til
fyrirtækja í öðrum landshluta eða
ráðstöfunar hjá ráðherra?
Hvaða jöfnuður er fólginn í því að
starfsfólk, sem unnið hefur alla tíð
við fiskvinnslu t.d. á Þórshöfn þurfi
að sæta skerðingu á atvinnu og lífs-
afkomu svo eitthvert fólk einhvers-
staðar annarsstaðar á landinu eigi
þess kost að vinna í fiski?
Hvað réttlæti er í því að breyta fisk-
veiðistjórnunarkerfinu með þeim
hætti að sjómenn, fiskvinnslufólk,
útgerðarmenn og iðn-
aðarmenn á Austurlandi
þurfi að missa atvinnu eða
tapa tekjum svo stjórn-
völd hverju sinni geti
fjölgað störfum á öðrum
svæðum landsins og bætt
afkomu fólks þar?
Hvaða réttlæti er í því
fólgið fyrir Austfirðinga
að knúðar verði í gegn
svo illa grundaðar breyt-
ingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu
að ógerlegt er að átta sig á áhrifum
væntanlegra breytinga á afkomu
fjölskyldna, sem eiga allt sitt undir
stöðugri atvinnu í sjávarútvegi?
Það sem boðaðar breytingar hafa
þegar haft í för með sér er það eitt
að óvissan um sjávarútveginn hefur
aukist. Fyrir liggur mat þeirra sem
best til þekkja að draga muni úr
hagkvæmni helstu atvinnugreinar
landsins. Breytingarnar munu
óhjákvæmilega setja veikburða
byggð víða um land í þá stöðu að
þau heimili sem eiga allt sitt undir
að atvinnulífið í heimabyggð gangi
vel vita ekki hvað tekur við.
Stjórnsýslan í Reykjavík styrkist hins
vegar til muna og kaffihúsamenn-
ingin í höfuðborginni mun blómstra
sem aldrei fyrr.
Væri nú ekki ráð að Austfirðingar
berji í borðið og láti ekki kreddur
óstjórnar veikja stoðir byggðar í
fjórðungnum enn frekar?
Kristján Þór Júlíusson, þingmaður
sjálfstæðisflokksins í NA kjördæmi
Kristján Þór Júlíusson
Forsala er hafin fyrir Bræðsluhá-
tíðina á Borgarfirði sem hefst 23.
júlí nk. Hátíðin hefur styrkt sig í
sessi sem ein af merkustu tónlistar-
viðburðum Íslands ár hvert.
Í gegnum tíðina hafa komið fram
á Bræðslunni Emilíana Torrini,
Damien Rice, Belle & Sebastian,
Magni, Fanfarlo, Lay Low, Þursa-
flokkurinn, Megas og Senuþjófarnir,
Páll Óskar og Monika, Eivör Páls-
dóttir, KK og Ellen svo fáein séu
nefnd.
Samkvæmt upplýsingum af heima-
síðu hátíðarinnar koma að jafnaði
rúmlega 1.000 manns á Borgar-
fjörð eystri um Bræðsluhelgina en
það verður að teljast ágætis viðbót
við íbúafjöldann sem telur um 140
manns. Tónlistarhátíðin Bræðslan
dregur nafn sitt af samnefndri síldar-
bræðslu þar sem tónleikar hátíðar-
innar fara fram að laugardagskveldi.
Í ár koma fram á hátíðinni írski
Óskarsverðlaunahafinn Glen Hans-
ard, hinir margrómuðu Hjálmar,
hamingjuboltinn Jónas Sigurðsson
ásamt hljómsveit sinni Ritvélum
framtíðarinnar, austfirsku gleði-
rokkararnir í Vax og trúbadorinn
geðþekki Svavar Knútur.
Forsala á Bræðsluna hófst fimmtu-
daginn 19. maí á midi.is og
afgreiðslustöðum mida.is og er vert
að taka fram að síðustu ár hefur
selst upp á Bræðsluna í forsölu enda
aðeins 800 aðgöngumiðar í boði í
forsölu.
Forsala hafin