Austurglugginn - 27.05.2011, Side 20
Keppni í Bólholtsbikarnum, utandeildakeppni í körfu-
knattleik, var haldin í fyrsta sinn í vetur. Keppnin er
haldin á sambandssvæði Ungmenna- og íþróttasam-
bands Austurlands (UÍA). Sex lið tóku þátt í keppninni.
Það var lið Sérdeildarinnar, skipað eldri Hattarmönnum,
sem fagnaði sigri í þessari fyrstu bikarkeppni UÍA og
Bólholts í körfuknattleik eftir 54-53 sigur á Ásinum í
úrslitaleik á sunnudag. Fjögur lið tóku þátt í úrslita-
keppninni sem fram fór í Íþróttamiðstöðinni á
Egilsstöðum.
Dagurinn hófst á fyrri undanúrslitaleiknum þar sem
10. flokkur Hattar, sem lengst af var efstur í deilda-
keppninni, mætti Sérdeildinni. Lykilmenn vantaði í
lið 10. flokks og það nýtti Sérdeildin sér, hafði undir-
tökin allan tímann og vann 41-66.
Í hinum undanúrslitaleiknum mættust Austri og
Ásinn. Ásinn hafði þar undirtökin framan af en
Eskfirðingar hleyptu Norður-Héraðsmönnum aldrei
langt frá sér og komust yfir í þriðja leikhluta, 41-40.
Ásinn náði hins vegar að snúa við taflinu og vann
50-59.
Eftir hádegi var leikið um verðlaunasæti en fyrst
mættust 10. flokkur og Austri í leik um þriðja sætið.
Sá leikur varð alger sýning á hæfileikum Nökkva Jarls
Óskarssonar úr 10. flokki og Baldurs M. Einarssonar
úr Austra en Nökkvi skoraði 32 stig í leiknum og
Baldur 30. Eskfirðingar höfðu undirtökin samt allan
leikinn og unnu að lokum 65-86.
Úrslitaleikur Sérdeildarinnar og Ássins stóð undir
nafni sem aðalleikur dagsins. Sérdeildin var reyndar
yfir nær allan tímann en Ásinn var aldrei langt undan.
Mikil spenna var á lokasekúndunum þegar munurinn
var aðeins 1-2 stig. Ásinn jafnaði í 53-53 af vítalín-
unni þegar sjö sekúndur voru eftir. Þeir brutu hins
vegar klaufalega af sér og Magnús Jónsson skoraði
sigurkörfu Sérdeildarinnar af vítalínunni, 54-53.
Halldór Leifsson var atkvæðamestur leikmanna
Sérdeildarinnar í úrslitaleiknum með 14 stig en
Magnús Jónsson skoraði þrettán. Hinum megin
voru það Benedikt Guðgeirsson Hjarðar og Sigmar
Hákonarson sem báðir skoruðu 18 stig.
Benedikt varð stigahæsti maður mótsins með alls 260
stig og fékk viðurkenningu fyrir það á sama tíma og
leikmenn Sérdeildarinnar lyftu Bólholtsbikarnum á
loft í fyrsta sinn.
Hugleiðing
Öfugsnúna Ísland
Ég hef alltaf lesið mikið fyrir börnin
mín og gæti því fyllt þennan pistil
með því aðeins að telja upp okkar eft-
irlætis höfunda og bókatitla. Þó svo
hnausþykkir doðrantar ráði nú ríkjum
man ég eftir einni bók sem var í miklu
eftirlæti á þeirra yngri árum - Hr.
Öfugsnúinn. Bókin fjallar um lítinn,
skrýtinn karl og tilveru hans sem öll
er öfugsnúin og alls ekki eins og hún
ætti að vera. Þó svo að sagan sé aðeins
þverstæðukennt ævintýri líður mér
stundum eins og ég búi í veröld Herra
Öfugsnúins.
Mér finnst öfugsnúið að það sé
ekkert tiltökumál að eyða þús-
undum milljóna í að byggja tónlistarhús
í Reykjavík á sama tíma og niðurskurð-
arhnífurinn er á lofti í hornsteinum
þjóðfélagsins, heilbrigðiskerfinu og
skólakerfi barnanna okkar.
Öfugsnúnast af öllu finnst mér þó
sagan af vinkonu minni og langar mig
að deila henni með ykkur, en þið þekkið
því miður líklega mýmörg sambærileg
dæmi.
Vinkona mín er einstæð móðir,
eins og svo margar ungar konur
á Íslandi í dag. Hún hefur ekki mikið
fé milli handanna og þarf að horfa í
hverja einustu krónu sem út af kortinu
fer. Hún er þó heppin að hafa vinnu
hjá öruggum og góðum vinnuveitanda
sem ekki er sjálfgefið þessi misserin í
okkar öfugsnúna heimi. Gladdist vin-
kona mín mikið fyrir síðustu jól þegar
vinnuveitandi hennar tilkynnti henni
að fyrir góða frammistöðu í starfi fengi
hún greiddan 200.000 króna bónus.
Í okkar öfugsnúna heimi færir þessi
bónus aðeins 120.000 í vasann, en sú
upphæð skipti þó sköpum fyrir hana
sem sá með því fram á að geta veitt
börnum sínum sómasamlega jólahátíð.
Fékk hún þó ekki að njóta gleðinnar lengi
því fljótlega eftir áramót barst henni bréf
frá sveitafélaginu. Í því var kunngjört að
hún hefði farið yfir tekjumörk á árinu
og þar af leiðandi yrðu húsaleigubætur
hennar felldar niður, en þær höfðu verið
rúmar fjórtán þúsund krónur á mánuði.
Sem sagt, 200.000 króna bónusinn sem
gaf 120.000 í aðra hönd kostuðu hana
170.000 krónur þegar upp var staðið.
Af hverju er þetta allt saman svona
fáránlegt? Mér finnst öfugsnúna Ísland
ekki eins og það ætti að vera. En ykkur?
Kristborg
Bóel
Skíðafélagið í Stafdal er komið í sumarfrí. Vetrinum lauk með góðri ferð á Andrésar andar leikana á
Akureyri og uppskeruhátíð á Seyðisfirði.
Á Andrésar andar leikana mættu 38 skíðaiðkendur frá SKÍS. Komu þeir heim með samtals 9 verð-
laun, þar af tvenn silfurverðlaun og tvenn bronsverðlaun og er það besti árangur SKÍS hingað til.
Góður andi var í hópnum alla dagana og stemmningin góð.
Uppskeruhátíð SKÍS var svo haldin á Seyðisfirði í blíðskaparveðri þann 15. maí. Vel var mætt og
skemmtu krakkarnir sér vel í leiktækjunum á leikskólanum og í leikjum á túninu utan við leikskólann.
Allir í krílaskólanum og yngsta iðkendahóp fengu viðurkenningarpening fyrir veturinn, enda stóðu
krakkarnir í þessum hópum sig með stakri prýði í allan vetur og voru framfarir mjög miklar hjá öllum.
Í eldri hópum voru veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur í vetur:
Besta ástundun 8-10 ára Embla Rán Baldursdóttir
Mestu framfarir 8-10 ára Bjartmar Pálmi Björgvinsson
Efnilegust 8-10 ára Elísa Maren Ragnarsdóttir
Besta ástundun 11 ára og eldri Fjölnir Þrastarson
Mestu framfarir 11 ára og eldri Eggert Már Eggertsson
Efnilegastur 11 ára og eldri Aron Steinn Halldórsson
Gullhjálmurinn - skíðamaður ársins 2011 Eiríkur Elísson
Uppskeruhátíð SKÍS
Sérdeildin sigraði í Bólholtsbikarnum
Lið Sérdeildarinnar með Bólholtsbikarinn.