Austurglugginn


Austurglugginn - 20.11.2003, Qupperneq 14

Austurglugginn - 20.11.2003, Qupperneq 14
14 AUSTUR • GLUGGINN Fimmtudagur 20. nóvember MENNING \ LISTIR Umsjón: jonknutur@agl.is Útgáfutónleikar Ómars Guðjónssonar á Höfn Ómar Guðjónsson, saxófón- leikarinn góðkunni, mun halda útgáfutónleika miðvikudaginn 26. nóvember næstkomandi. Tónleikarnir hefjast klukkan 20:30. Ómar hefur nú þegar látið að sér kveða í íslensku jazzlífi og tók m.a þátt í nýliðinni jazzhá- tíð í Reykjavík. Nýverið gaf hann út sína fyrstu sólóplötu, Varma land, þar sem með hon- um leika bróðir hans, Óskar Guðjónsson á saxófóna, Þórður Högnason á bassa og Helgi Svavar Helgason á trommur. Á tónleikunum á Höfn mun hann kynna diskinn ásamt Óskari, Helga og Jóhanni Ásmunds- syni sem mun spila á kontra- bassa. Aðspurður í viðtali við Morgunblaðið 7. nóvember s.l. segir Ómar að djass byggist á frelsi og meðspilurunum. “Maður verður að hlusta og skynja það sem aðrir eru að gera. Djass er auðvitað ofsa- lega víð tónlistarstefna og erf- iður að njörva niður, en mesti kosturinn er að mínu mati að maður fær að leika sér svolítið og vera frjáls í tónlistinni. ... Það er erfitt að skilgreina hreinræktaðan djass. Platan er mjög einlæg og hlýleg. í ffét- tatilkynningu segir: „Lögin eru stutt og mikil áhersla lögð á að gera laglínurnar flottar. Það er ekkert tíu mínútna langt sólóa- lag á henni.“ Kvikmyndin Salt frumsýnd á Stöðvarfirði Siðastliðinn föstudag var kvikmyndin „Salt” frumsýnd á Stöðvarfirði, en hún er að stór- um hluta tekin upp þar. Sýn- ingin fór fram í grunnskólan- um fyrir fullu húsi við mikla hrifningu sýningargesta. „I myndinni er fléttað saman nútíma ástarsögu og þjóðsögu um stúlku sem tengist hafinu á afar sérstæðan hátt. Tekst leik- stjóra og handritshöfundi, Brad Grey, að gera úr því magn- þrungið listaverk sem lætur engan ósnortinn. Salt verður tekin til sýninga í Reykjavík síðar í þessari viku en hún hlaut verðlaun á kvik- myndahátíð í Berlín fyrr á þessu ári.” www.faskriidsjjordur. is sagðifrá. Frímann Sveinsson sýnir í Nesbæ I Nesbæ hefur ný sýning ver- ið opnuð en að þessu sinni er það Frímann Sveinsson sem sýnir vatnslitamyndir í kaffi- húsinu. Frímann hefur haldið tvær einkasýningar og tekið þátt í tveimur samsýningum. Hann býr á Húsavík. Sé heiminn í mótívum Endalaust hægt að taka myndir á Eskifirði „Ég hef séð heiminn í mó- tívum frá því að ég var barn,” segir Helgi en hann byrjaði að taka myndir ungur að árum. „Annars eru tækin orðin það góð að það getur nánast hver sem er tekið góða ljósmynd,” bætir hann við af dæmigerðri hógværð. Myndirnar hans Helga bera vott um þessa hógværð og Helgi Garðarsson, Ijósmyndari. eru látlausar og kyrrlátar líkt og maðurinn sem tekur þær virðist vera. Helgi Garðarsson, hirðljós- myndari Eskfirðinga, sýnir nú myndir í Kirkju- og menningar- miðstöðinni á Eskifirði. Á sýning- unni eru Eskfirðingar sýndir frá hinum ýmsu hliðum en Helgi hef- ur á undanfornum árum lagt sig fram við að ná myndum af sem flestum íbúum Eskiijarðar og ná- grennis. Iðja Helga er orðin það þekkt að margir koma til hans og biðja hann um að taka mynd af sér. Það var séra Davíð Baldursson, prestur á Eskifirði, sem átti frum- kvæðið að sýningunni en þetta er sú fyrsta sem Helgi heldur. Efniviður Helga er fyrst og fremst umhverfi Eskifjarðar og í- búarair. “Utbærinn er svolitlu upp- áhaldi hjá mér enda var ég alinn upp þar,” segir Helgi og fullyrðir að það sé endalaust hægt að taka myndir á Eskifirði, sami staðurinn getur verið ólíkur eftir sjónarhomi eða birtu. Sýningin stendur til 28. nóvent- ber. Einnig má skoða myndir sem Helgi hefur tekið í gegnttm tíðina á heimasíðunni hans. Slóðin er: www.simnet.is/hgard/ Aldrei tapað fegurðarsam- keppni Ævisaga Lindu Pétursdóttur kynntá Vopnafiröi Linda Pétursdóttir Vopnfirð- ingur og fyrrum alheimsfegurð- ardrottning hefur lifað tímana tvenna: Hún hefur unnið allar fegurðarsamkeppnir sem hún hefur tekið þátt í og var valinn al- heimsfegurðardrottning, auk þess sem hún hefur verið ein umtalað- asta kona landsins. Færri vita þó að hún hefur líka hótað að skjóta sveitarstjóra. í nýrri bók sem kemur út nú fyrir jólin og fjallar um Lindu og lífssögu hennar kemur þetta m.a. fram. Það er blaðamaðurinn og rithöfundurinn Reynir Traustason sem skrásetti sögu þessarar frægustu dóttur Austurlands sem svo sannarlega hefur frá ýmsu að segja. Reynir og Linda heimsóttu æskuslóðir Lindu á Vopnafirði á dögunum og kynntu bókina „Ljós og skugga,, þar sem hún einu sinni sippaði og flakaði fisk. Blaða- maður Austurgluggans fékk sér kaffibolla með Reyni Traustasyni og ræddi aðeins við hann um bókina og gerð hennar. „Bikarinn í botn" „Þetta er lífssaga konu sem hefúr upplifað bæði sorgir og gleði, rétt eins og við hin, og drukkið bikar lífsins í botn. Þetta er saga um ljós Lindu og skugga og ekki hefðbundin ævi- saga í þeim skilningi,” segir Reynir næsta fjarrænn á svip aðspurður um bókina og efni hennar. Hann segir bókina vera einlægt uppgjör Lindu við tíma- bil í lífi sínu sem var bæði gott og slæmt. Það mótaði þó þá manneskju sem hún er í dag. En er eitthvað sem þjóðin veit ekki um þessa konu - óskabarn þjóð- arinnar og jafnvel stofustáss ef svo mætti að orði komast? Reynir segir svo vera enda hefur Linda ekki verið mjög iðin við að hleypa þjóðinni að sjálfri sér gegnum árin enda barist við alkóhólisma og þunglyndi sam- fara þeim sjúkdóm sem hafi gert það að verkum að hún hafi snemma sett upp grímu - grímu sem hún sé nú laus við. „Linda var ung þegar hún þurfti að taka að sér hlutverk fegurðardrottn- ingarinnar og þar lærði hún að halda andlitinu út á við sama á hverju dundi. Hún setti upp grímu sem hún er nú laus við - það kemur fram í bókinni hvernig henni tókst það,” segir Reynir en hann er einnig höf- j m i í ' B Ælj { m • l ! ý - f 'i'—‘C- | Linda Pétursdóttir og Reynir Traustason. Mynd: Vopnafjörður.is undur bókarinnar „Sonja” sem kom út í fyrra og seldist vel. Hótaði að skjóta sveitarstjórann I bókinni koma fyrir augu al- mennings kaflar úr lífi Lindu sem fáir - ef jafnvel nokkur auk henn- ar og hennar nánustu - vissu um. Sem dæmi fjallar hún um ofbeldi sem hún var beitt af fyrrum sam- býlismanni sínum, skosku fyrir- sætunni Les Robertson, auk á- fengisvandamáls sem hún glímdi við samhliða og tók nærri líf hennar. Einnig er sögð sagan af því þegar Linda ung að árum hót- aði að skjóta sveitarstjórann þá- verandi á Vopnafirði ef hann skyti hund hennar. Enda kemur það fram í bók Lindu að hún er mikill hundavinur og ferfættir fé- lagar jafnan fylgt henni. En er ekki erfitt að skrifa bók þar sem viðmælandinn þarf að opna sig um jafn viðkvæm mál og Linda gerir í bókinni? „Jú það er virki- lega erfitt enda tók þetta á en var í leiðinni held ég bara hollt fyrir okkur bæði,” segir Reynir sem segir helsta mun þessarar bókar og þeirrar sem hann skrifaði síð- ast vera þá að Linda sé margfalt opinskárri en fyrri viðmælendur hans. Það þarf enginn að hræðast þessa bók Þó bókin sé vissulega uppgjör i þeim skilningi segir Reynir hana ekki vera uppgjör við samferða- menn. Linda sé fyrst og fremst að gera upp tímabil í lífi hennar sem hafi tekið á hana og endað með röð sjálfsvígstilrauna og að lok- um sigri þegar henni auðnaðist að segja skilið við líf virka alkó- hólistans og standa uppi sem sig- urvegari. „Mér finnst, hún vera sigurvegari enda er ekki auðvelt að gera það sem hún gerir með þessari bók - að segja söguna ná- kvæmlega eins og hún var, um- búðalaust.“

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.