Austurglugginn


Austurglugginn - 20.11.2003, Síða 15

Austurglugginn - 20.11.2003, Síða 15
Fimmtudagur 20. nóvember AUSTUR • GLUGGINN 15 ÍÞRÓTTA FRÉTTIR Umsjón: helgi@agI. is íslandsmótið í glímu - Leppin-mótaröðin Ólafur Gunnarsson efstur til íslands- meistara Hattarar óheppnir gegn ÍS - misstu niður unninn leik á síðustu 5 mínútunum Fyrsta umferð Leppin-móta- raðarinnar stigakeppni til ís- landsmeistara fór fram á Laugar- vatni síðastliðinn fimmtudag. UÍA átti tvo keppendur á mótinu, þá Ólaf Gunnarson sem keppti í unglingaflokki og opnum flokki karla og Snæ Seljan Þóroddsson sem keppti í karlaflokki -85 kg og opnum flokki karla. Ólafur vann! Ólafur gerði sér lítið fyrir og sigraði unglingaflokkinn eftir að hafa verið jafn í fyrsta og öðru sæti við Pétur Gunnarsson úr HSÞ og glímt við hann úr- slitaglimu og lagt hann. Ólafur stendur því vel að vígi í stiga- keppninni til íslandsmeistara eftir fyrsta mótið. Snær, sem varð tvöfaldur íslandsmeistari í fyrra í unglinga- og karlaflokki -85 kg., náði ekki eins góðum árangri nú og endaði í íjórða sæti í hvort tveggja opnum flokki og -85 kg. „Á góða möguleika" Ólafur Gunnarsson UÍA vann sem fyrr segir unglingaflokkinn í l. umferðinni eftir að hafa glímt til úrslita við Pétur Gunnarsson og fellt hann með glæsilegri sniðglímu eftir æsispennandi glímu þar sem hart var tekist á. Þetta er í fyrsta sinn sem Ólafur fær gull á Islandsmóti en hann hefur æft glímu síðan hann var 8 ára. „Þetta var mjög jafnt mót og mikil stemmning, fjöldi áhorf- enda og ekkert gefið fyrirfram,” sagði Ólafur Gunnarsson við mótslok. Hann segir þennan sig- ur gefa góða von um framhaldið en eins og fyrr segir er Leppin- mótaröðin stigakeppni til ís- landsmeistara. „Ef ég vinn þau tvö mót sem eftir eru þá verð ég íslandsmeistari en það þarf að vinna þau áður en það verður og miðað við hvernig þetta mót var þá verður það jöfn keppni.” Æfir sex sinnum í viku Ólafur sem er 19 ára gamall Reyðfirðingur og starfar í neta- gerð Friðriks Vilhjálmssonar í Neskaupstað er ekki eini glímu- maðurinn í sinni fjölskyldu en pabbi hans Gunnar B. Ólafsson æfði líka glímu á gullaldarárum glímunnar á Reyðarfirði. „Ég hef nú reyndar ekki glímt við kallinn en ég hugsa að ég hefði hann. Hann fékk nú reyndar einhvern tíma brons í glímunni hérna í gamla daga,” segir Ólafur sem æfir 6 sinnum í viku þessa dag- anna, tvisvar á glímuæfingum og svo lyftir hann með félögum sín- um íjórum sinnum í viku. Glíma er nú einungis stunduð á einum stað á Austurlandi, á Reyðarfirði, en þar stunda nú tuttugu til þrjátíu börn og ung- lingar af báðum kynjum æfingar hjá Val. Röð efstu manna á mótinu á Laugarvatni var annars þessi í flokkunum þremur: Unglingaflokkur 1. Ólafur Gunnarsson, UÍA, 2+1 vinn 2. Pétur Gunnarsson, HSÞ, 2+0 vinn 3. Jón Kristinsson, HSK, 1 vinn Karlar - 85 kg 1. Pétur Eyþórsson, UV, 5 vinn 2. Helgi Bjarnason, KR, 4 vinn 3. Sigurjón Pálmarsson, HSK, 3 vinn 4. Snær Seljan Þóroddsson, UÍA, 2 vinn Karlar opinn flokkur 1. Ólafur Oddur Sigurðsson, HSK, 4,5 vinn 2. Stefán Geirsson, HSK, 4 vinn 3. Pétur Eyþórsson, UV, 3,5 vinn 4. Snær Seljan Þóroddsson, UÍA, 2 vinn Það ætlar svei mér ekki af körfuknattleiksliði Hattar að ganga þessa dagana. Um helgina tapaði liðið gegn íþróttafélagi stúdenta á Egilsstöðum með 67 stigum gegn 76. Eftir leikinn duttu Hattarar niður í næstneðsta sæti 1. deildar þar sem þeir sitja með 2 stig eftir 5 leiki. Yfir nær allan leikinn Að sögn Hannibals Guðmunds- sonar, annars þjálfara Hattar, voru Hattarar heldur sofandi á verðin- um undir lok leiksins enda höfðu þeir leitt leikinn allt þar til fimm mínútum fyrir leikslok að ÍS Á dögunum fékk ungmennafé- lagið Valur nýja íþróttagalla sem eins og sést á myndinni virðast ætla að verða nýjasti tískufatnað- komst yfir 62-63. Stúdentar héldu svo forystunni það sem eftir lifði leiksins. „Þetta var bara algjört klúður að missa þetta svona nið- ur,” segir Hannibal. „Hryllilegt að vera yfir allan tímann og missa svo niður unnin leik alveg rétt í blálokin.” Besti maður Hattar í leiknum var Júgóslavinn Bosko Boskovic en hann var einnig stiga- hæstur Hattara í leiknum. Hattarar fá nú gott fri til að hrista sig saman fyrir næstu leiki sem verða 6. og 7. desember en þá leikur liðið við Ármann/Þrótt og lið ÍG frá Grindavík. urinn í álbænum. Myndin var tek- in fyrir utan grunnskóla Reyðar- íjarðar við lok þemaviku en eitt þema vikunnar var einmitt tískan. »111»»• i • --i- --y11 “ v,j jm Huginn 90 ára Valmenn í nýjum göllum Litlir „sundþróttarar" Það er ávallt mikið að gera hjá sunddeild Þróttar á Norðfirði og tíunda nóvember sl. var haldið mót fyrir yngstu sundiðkendurna i öðr- um, þriðja og fjórða bekk undir yf- irskriftinni „Litli sundþróttarinn.” „Við vildum halda smá mót fyr- ir þau“ segir Guðlaug Ragnars- dóttir, þjálfari sunddeildar Þróttar. „Með þessum hætti erum við að halda starfinu lifandi og halda at- hygli krakkanna". Veitt voru viðurkenningarskjöl fyrir fyrsta, annað og þriðja sætið en keppt var í 50 metra bringu- sundi og 50 metra skriðsundi. Yngstu sundiðkendurnir tóku é því i siðustu viku. Afmælishátíð um næstu helgi Ungmennafélagið Huginn á Seyðisfirði verður 90 ára á þessu ári og í tilefni þess ætla Seyðfirðingar að efna til afmæl- ishátíðar um helgina þar sem ýmislegt verður um að vera. Á föstudaginn er stefnt að því að Jóhann Sveinbjörnsson, bæjar- gjaldkeri og fyrrum - eða núver- andi - fimleikamaður segi sögu Hugins og útlisti fyrir yngri kynslóðinni hvernig íþróttaiðk- un var á árum áður. Á laugar- daginn ætla svo Huginsmenn að standa fyrir hátíð í sundlauginni og íþróttahúsinu auk þess sem grímuball verður haldið á Hótel Öldunni fyrir yngri kynslóðina undir kvöldið. Hinir eldri og reyndari ætla þó ekki að láta börnin alfarið um grímubúning- ana því um kvöldið er gert ráð fyrir því að eldri kynslóðin hitt- ist á grímuballi á Hótel Öld- unni. Á sunnudaginn er svo há- tíðardagskrá í íþróttahúsinu þar sem boðið verður upp á kaffi og með því.

x

Austurglugginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.