Austurglugginn - 20.11.2003, Síða 16
Heimasíða Hitaveitu Egilsstaða og Fella
HEF www.hef.is
Austur*gluggÍTm
Fimmtudagur 20. nóvember f 477 1750
Munið heimasíðuna
okkar www.asa.is
STARFSGREINAFÉLAG AUSTURLANOS
Lífeyrissjóður-
inn áfrýjar
Kárahnjúkar:
Slökkvilið vanbúið
og brunavörnum
ábótavant
Æfingabíll Brunamálastofn-
unar hefur staðiö ónotaður og ó-
hreyfður við flugvöllinn á Egils-
stöðum í rúma tvo mánuði en
honum var komið austur í byrj-
un september þar sem honum
var ætlað að nýtast við þjálfun
útkallsliðs á Kárahnjúkum. For-
stöðumaður Brunavarna Héraðs
segir slökkviliðið sem sett var
saman á Kárahnjúkum í byrjun
október vera vanbúið og því ekki
í stakk búið til að takast á við
eldsvoða á staðnum. Hann segir
brunavörnum við aðgöng 1 og 2
vera ábótavant enda séu þar ein-
ungis handslökkvitæki til taks
við svefnskála auk þess sé við-
vörunarkerfi ekki tengt stjórn-
stöð brunavarna á svæðinu eins
og getið er í samningi.
Ekki fært um að takast
á við stærri eldsvoða
„Ég fór þarna uppeftir í eftirlits-
ferð síðastliðinn fimmtudag og sá
þá að lítið hafði verið gert síðan ég
var þarna síðast og málin því eng-
an veginn í ásættanlegu horfi á
þeim stöðum sem við höfum lagt
höfuðáherslu á - eða i vinnubúðum
starfsmanna,” segir Baldur Páls-
son, slökkviliðsstjóri og eftirlits-
maður brunavama á svæðinu, í
samtali við Austurgluggann. Bald-
ur segir slökkviliðið sem sett var
saman á svæðinu af Impregilo ekki
í stakk búið til að takast á við elds-
voða enda sé það vanbúið og ó-
þjálfað, tækjabúnaður sé ekki til
staðar auk nauðsynlegs útbúnaðar
fyrir slökkviliðsmennina. „Á-
standið er þvi miður ekki viðun-
andi þarna ennþá og menn ekki
færir um að takast á við það ef til
þess kemur að kviknar í.” Slökkvi-
liðsbíll kom á svæðið um miðjan
september að sögn Baldurs en
slökkviliðið hefur þó litla æfingu
fengið. „Það hefur verið haldið eitt
námskeið fyrir útkallsliðið á þess-
um tíma - sem er ekki nógu gott,”
segir Baldur.
„Viðvörunarkerfi ekki
tengd við stjórnstöð"
„Ég hef sent þeim greinargerð
varðandi þetta mál allt og form-
lega aðvömn um að tekið verði á
málum þama t.d. varðandi það að
brunaviðvörunarkerfi sem komið
var upp í hluta vinnubúðanna sé
ekki tengt við stjórnstöðina þarna
uppfrá eins og um hafði verið
samið,” segir Baldur. í eftirlits-
ferðinni síðastliðinn fimmtudag
var að sögn Baldurs einnig gerð at-
hugun á brunavörnum við að-
komugöng á svæðinu. Hann segir
brunavarnir við þau göng sem
skoðuð voru í ferðinni - aðkomu-
göng 1 og 2 - ekki í viðunandi
horfi. „Ástandið við göngin var
ekki nógu gott og búnaður ekki til
staðar sem þar á að vera, nema
handslökkvitæki við svefnskála og
mötuneytin sem er lágmarksút-
búnaður og ekki nóg,” segir Bald-
ur Pálsson, yfirmaður brunavarna
Héraðs.
helgi@agl.is
Stjórn Lífeyríssjóðs Austur-
lands ákvað 4. nóvember sl. að á-
frýja dómi Héraðsdóms Reykja-
víkur sem felldur var föstudaginn
31. október sl. Þá var fyrrverandi
framkvæmdastjóri LA sýknaður
en sjóðurinn krafðist skaðabóta
vegna kaupa framkvæmdastjór-
ans á skuldabréfum af Burnham
International án þess að kaupin
færu fyrir stjórn. Þetta lán tapað-
ist vegna gjaldþrots Burnham
International og Lífeyrissjóðurinn
fór því fram á skaðabætur sem
hljóðuðu upþ á 54 milljónir
króna.
Ekki skylt að leita
samþykkis stjórnar
í niðurstöðu dómsins segir meðal
annars að það „...þykir ekki sjálfgef-
ið, að umrædd skuldabréfakaup hafi
verið svo óvenjuleg eða meiri háttar,
að stefnda hafi verið skylt að leita
samþykkis stjórnar...” Á hinn bóg-
inn kemur einnig fram í dómnum að
ef litið væri til fjárhæðar skulda-
bréfsins, lánstímans (tíu ár) og
óvissrar stöðu Burnham á fjármála-
Frá tíunda janúar á næsta ári
mun ferjan Norræna hefja áætl-
unarferðir til Seyðisfjarðar einu
sinni í viku. Norræna hefur að-
eins siglt til Seyðisfjarðar yfir
sumarmánuðina og því eru þetta
gleðifréttir fyrir Seyðfirðinga
en atvinnulífið á Seyðisfirði
hefur átt undir högg að sækja
undanfarið.
markaði að þá hefði framkvæmda-
stjórinn sýnt af sér gáleysi með
kaupunum.
Þá kemur fram að framkvæmda-
stjórann hafi vantað aðhald frá
stjórn. Þar segir m.a: „Að öllum
málsvikum virtum, aðhaldsleysi og
afskiptaleysi stjómar stefnanda af
störfum stefnda, skort á reglum og
fyrirmælum og til þess, að stefndi
virðist engan hag hafa haft af um-
ræddum lögskiptum...“ þykir rétt að
fella niður bótaábyrgð stefnda.
Lögð fram áfrýjunar-
stefna í byrjun
desember
Eins og áður sagði ætlar LA að á-
frýja dómnum og segir Hulda Rós
Rúriksdóttir, sem rak mál LA í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur, að unnið sé í
málinu og lögð verði fram áfrýjunar-
stefna að öllum líkindum í byrjun
desember. „Við erum mjög ósátt við
þennan dóm. Við munum halda
kröfum okkar til streitu og reyna að
fá honum breytt,” sagði Hulda Rós i
samtali við Austurgluggann.
jonknutur@agl. is
Tryggvi Harðarson, bæjar-
stjóri á Seyðisfirði, er að vonum
mjög sáttur. „Við erum að sjálf-
sögðu afar ánægð með þetta.
Þetta verður viðbót við sum-
artraffíkina. Reynslan mun svo
skera úr um hvort hér verði um
heilsárssiglingar að ræða og
vonandi verður svo um langa
framtíð,” sagði Tryggvi í sam-
tali við Austurgluggann.
ÆfingabíH Brunamálastofnunar við Egilsstaðaflugvöll. Þar hefur hann staðið ó-
hreyfður í tvo mánuði og beðið þess að verða sóttur af Impregilo en hann á að
notast til að þjálfa upp slökkvilið sem fyrirtækið er ábyrgt fyrir á virkjanasvæðinu.
Norræna hefur áætlunarferðir
til Seyðisfjarðar í janúar
Nú á dögunum voru haldnir þemadagar I grunnskólanum á Eskifirði. Nemendur tóku að sér alls
kyns hlutverk og á þessari mynd sjást tveir þeirra I „ konunglegum" stellingum og njóta að sjálfsögðu
verndar lögreglumanns sem er svo ábúðarmikill á svip að halda mætti að hann væri búinn með
lögregluskólann tvisvar. En þarna eru sum sé Ólafur og Dorrit að heiðra skólastjórann, Hilmar
Sigurjónsson, með nærveru sinni. Mynd: gþ
TM-ÖRYGGI
fyrir fjölskylduna
sameinar öll tryggingamálin
á einfaldan og hagkvæman hátt
- a öllum sviöum!
SAMKAUP Verstið þar sem
EGILSSTÖÐUM úrvalið er...
Opió ...allt í einni ferð
mánud. - föstud. 9-19 wz/2tmrrm
laugardaga 10-18
sunnudaga 12-18 EGILSSTÖÐUM