Austurglugginn


Austurglugginn - 24.06.2016, Síða 9

Austurglugginn - 24.06.2016, Síða 9
 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 24. júní Andri Snær Magnason er fæddur í Reykja- vík þann 14. júlí árið 1973. Hann er ætt- aður frá Neskaupstað og á marga vini og ættingja á Austurlandi. Andri bjó eitt ár á Seyðisfirði sem barn og hefur setið í stjórn Skriðuklausturs. „Byggðamál eru eitt af okkar mikilvæg- ustu málum og við þurfum og viljum halda uppi byggð um allt land. Forseti Íslands á að vera meðal fólksins, hann kíkir ekki í heimsókn heldur dvelur meðal lands- manna. Forseti Íslands á að spyrja einfaldra spurninga. Ef hópur af hugsjónafólki hefur breytt heilu hraðfrystihúsi í skapandi mið- stöð á Stöðvarfirði af hverju getur heill banki ekki haldið úti hraðbanka í sama bæ? Frændfólk mitt og vinir á Austurlandi er fullt af hugmyndum og frumkvæði sem ég hef heillast af. Ég tók virkan þátt í um- ræðunni um framtíð Austurlands. Fyrsta greinin sem ég skrifaði kringum 1999 fjall- aði um möguleikann á því að byggja upp millilandaflug á Egilsstöðum, möguleikann á því að stofna alþjóðlegt menntasetur og hvernig möguleikar til fjarvinnslu á tölvu voru takmarkaðir með lélegum nettenging- um. Ég hef fulla trú á framtíð Austurlands en til þess að landsbyggðin vaxi og dafni í heild þurfum við að sameinast um verk- efnin sem þjóð. Það eru slík verkefni sem ég vil taka þátt í og hrinda í framkvæmd um allt land.“ Ástþór Magnússon er fæddur í Reykjavík 4. ágúst 1953. Hann hefur ferðast um Austurland og telur mikil tækifæri liggja í fjórðungnum. „Á ferð um Austfirði heimsótti ég álverið á Reyðarfirði. Sem forseti yrði ég öflugur málsvari þess að auka atvinnutækifæri og byggja verk- smiðjur til að framleiða fullbúnar vörur úr álinu til útflutnings. Við eigum að stuðla þannig að aukinni verðmætasköpun innanlands. Tilvalið væri að hefja slíka framleiðslu á Austfjörðum. Þá eru margvísleg tækifæri fyrir Austurland að taka þátt í því að laða hingað starfsemi tengda friðarmálum, lýðræðisþróun og náttúruvernd. Ég hef talað fyrir því að stofnanir á vegum Sameinuðu þjóðanna rísi á Íslandi. Þannig má byggja upp nýjan atvinnuveg sem getur skilað fleiri hundruð milljörðum í þjóðarbú- ið og veitt þúsundum manns blómleg störf í framtíðinni um allt landið. Með slíkri tekju- aukningu sem land friðarins getum við veitt ókeypis heilbrigðisþjónustu, bætt kjör eldri borgara og öryrkja og hjálpað ungu fólki að koma undir sig fótunum. Nú eru mál að þróast þannig í Evrópu að hætta er talin á upplausn og jafnvel styrjöld. Ég vil afstýra því að Ísland verði skotmark í stríði stórveldanna. Þjóðin getur treyst því að ég mun standa dyggan vörð um fullveldi og sjálfstæði íslensku þjóðarinnar gegn hernað- arlegri og fjármálalegri íhlutun.“ Elísabet Kristín Jökulsdóttir er fædd 16. apríl 1958. Hún er ættuð að austan og kallar sig Austfirðing, þegar hún var 11 ára eyddi hún sumri á Djúpavogi þaðan sem afi hennar séra Jakob Jónsson var. Síðar bjó Elísabet eitt ár í Neskaupstað þar sem pabbi hennar var fæddur. „Fyrst og fremst ættu Austfirðingar að kjósa mig af því að þeir eru Íslendingar. Þetta snýst ekki endilega um hvað ég get gert fyrir Austfirðinga – eða jú líka. Ef ég get gert eitthvað sérstakt fyrir Austfirðinga þá ættu þeir að láta mig vita. Ég tók þátt í Kárahnjúkabaráttunni og var á móti byggingu Kárahnjúkavirkjunar. Þar upplifði maður hvernig landshlutum var att saman – í því tilviki suðvesturhorn- inu á móti Austurlandi. Við eigum frekar að setjast niður saman og finna út hvað við viljum, hvaða lausnir eru til og hvernig við getum leyst úr ágreiningi saman. Á þessum tíma mátti ekki tala um þessa litlu hluti, eins og fjallagrös og silfurberg. Þá var maður bara stimplaður hippi. En þetta er það dýrmætasta sem við eigum. Fjallagrösin eru milljóna virði og silfur- bergið sem er inni í öllum fjöllunum ykk- ar er stórmerkilegt líka. Það eru demantar inni í fjöllunum. Austfirðingar eiga að kjósa mig af því að ég skal passa fjallagrösin og silfurbergið.” Framhald á bls. 11. Davíð Oddsson: Svör bárust ekki frá framboðinu. Forsetakosningar 2016 - Umfjöllun um forsetaframbjóðendur Nýr forseti verður kjörinn á morgun og ganga Austfirðingar þá að kjörborðinu líkt og aðrir Íslendingar. Alls eru 9 einstaklingar í framboði sem virðast í fljótu bragði ekki eiga miklar tengingar við Austurland. Austuglugginn varpar hér ljósi á austfirskar tengingar frambjóðenda og veitir þeim tækifæri til að svara spurningunni: Af hverju ættu Austfirðingar að kjósa þig?

x

Austurglugginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.