Austurglugginn - 24.06.2016, Page 11
AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 24. júní 11
Guðni Th. Jóhannesson fæddist í
Reykjavík 26. júní árið 1968. Hann
er ekki ættaður af Austurlandi en á
þar marga góða vini. Hann á góðar
æskuminningar af fjölskylduferðum
til Austurlands og er sérstaklega
minnisstætt að koma til Seyðisfjarðar
með Smyrli og sjá Ísland rísa úr sæ.
Guðni skipulagði ráðstefnu á Eiðum
árið 2005.
„Ég er í framboði til embættis for-
seta Íslands vegna þess að ég hef sterka
sannfæringu fyrir því hvernig forseti
á að vera til að embættið nýtist sem
best, landi og þjóð til heilla.
Að mínu mati á forseti að standa
utan og ofan við flokka og fylkingar
og hefja sig þannig yfir dægurþras
stjórnmálanna. Það þýðir þó alls ekki
að forseti sé skoðanalaus eða að hann
haldi sig til hlés. Forseti á að vera í nánu
sambandi við þjóðina, hlusta á hvað
brennur á fólkinu í landinu og beita
áhrifavaldi sínu til að koma mikilvæg-
um málum á dagskrá. Þannig getur
hann látið gott af sér leiða og staðið
vörð um réttindi allra Íslendinga, óháð
búsetu og efnahag.
Ef þú ert sammála minni sýn á
embætti forseta Íslands og treyst-
ir mér til að fylgja henni af festu og
heilum hug, þá óska ég eftir stuðningi
þínum í kosningunum þann 25. júní.
Nái ég kjöri heiti ég því að bregðast
ekki traustinu.“
Guðrún Margrét Pálsdóttir er fædd í Reykjavík
þann 15. mars 1959. Hún hjólaði um Austfirði
þegar hún var tvítug og hefur heimsótt svo til alla
byggðakjarna á Austfjörðum. Uppáhaldsáfanga-
staður fjölskyldu hennar í sumarfríum er Atlavík
en þar reyna þau að tjalda sem næst Fljótinu.
„Í viðtali á Bylgjunni og visir.is var innsiglað
kosningaloforð mitt að fyrsta opinbera heimsókn
mín í starfi forseta yrði á Austfirði. Ástæða þessa
kosningaloforðs var spurning frá ungri stúlku hvort
ég myndi heimsækja Austfirði oftar en núverandi
forseti. Ég vil sem forseti leggja áherslu á að heim-
sækja fólk á landsbyggðinni. Austfirðingar eru
trúaðastir landsmanna samkvæmt nýlegri könnun
og ég finn þar samhjóm um mikilvægi þess að
rækta hinn kristna trúararf, að við höggvum ekki
á rætur okkar sem þjóðar.
Í skógræktinni eigum við einnig samhljóm. Aust-
firðingar hafa verið í fararbroddi varðandi skóg-
rækt en eitt áherslumálið mitt er einmitt aukin
skógrækt, bæði til að græða landið okkar og til að
sporna gegn óæskilegum loftslagsbreytingum sem
ógna lífi á jörðu. Við gætum án efa einnig sam-
einast um að hafa kærleikann að leiðarljósi, staðið
saman og hjálpað þeim sem minna mega sín. Ég
held því að við gætum átt góða samleið og sam-
vinnu ef ég yrði kjörin forseti Íslands.”
Hildur Þórðardóttir er fædd í Reykjavík 2. desem-
ber árið 1967. Hún hefur mikið dálæti á Hallorms-
staðaskógi en langafi hennar Agner Kofoed-Hansen
var fyrsti skógræktarstjórinn.
„Í hvert sinn sem ég dvel í Hallormsstaðaskógi
er eins og tímarnir renni saman, tíminn hans og
tíminn minn.
Fyrir mér er forseti sameiningartákn þjóðarinnar,
málsvari lýðræðis og samfélagsþróunar, öryggis
ventill fólksins gagnvart Alþingi og boðberi frið-
ar í heiminum.
Ég tala fyrir því að fólk skipti meira máli en
peningar og samfélagið meira máli en hagræðing.
Ég vil vera forseti fólksins sem heimsækir landið
allt reglulega og hlusta á fólkið. Ég á heimboð í
Stólpa og hlakka mikið til að heimsækja starfs-
fólkið þar. Við erum nefnilega öll jafn mikilvæg
í samfélaginu.
Ég spái því að vegur landsbyggðarinnar muni
vaxa í framtíðinni því fólk mun sækja í minni sam-
félög, einfaldara líf og meiri lífsgæði. Landsbyggðin
stendur sig vel í þeirri þróun með fjarfundabúnaði
og samvinnu þvert á landshluta.
Saman getum við búið til samfélag þar sem allir
skipta máli og allir fá tækifæri til að blómstra. Í
mínum huga skiptir fólk meira máli en peningar.”
Halla Tómasdóttir fæddist í Reykjavík þann 11.
október 1968. Hún vann á unglingsárum í fiski
bæði í Neskaupstað og á Djúpavogi. Tengdamóðir
hennar er frá Djúpavogi og maðurinn hennar,
Björn Skúlason, spilaði knattspyrnu eitt sumar
á Seyðisfirði.
„Mér er afar hlýtt til Austurlands og Austfjarða,
þar er náttúrufegurðin ólýsanleg og þar lærði ég
að vinna. Ég var nýfermd þegar ég fór að vinna
í fiski í Neskaupstað og sextán ára gömul réð ég
mig í sumarvinnu hjá Búlandstindi á Djúpavogi.
Þar var byrjað að vinna klukkan 6 á morgnana
og haldið áfram fram eftir kvöldi sex daga vik-
unnar. Ég þakka Austfjörðum og Austfirðing-
um fyrir tækifærið sem ég fékk og fyrir að hafa
kennt mér virði vinnusemi og dugnaðar. Ég tel
að Austfirðingar og Íslendingar allir geti notið
góðs af duglegum forseta sem er óhræddur við
að láta verkin tala. Ég trúi á jafnrétti og jöfn
tækifæri fyrir alla, þar á búseta ekki að skipta
máli. Forseti getur gert heilmikið gagn fyrir
fólkið í landinu og það er mikilvægt að hafa
hugfast að forseti er í þjónustu þjóðarinnar. Ég
er tilbúin til að leggja mig fram um að vinna
fyrir hag lands og þjóðar, tala fyrir heiðarlegu
og réttlátu samfélagi, og ég vil að forseti leiði
umræðu um stóru málin sem varða okkur öll.
Ég vil gjarnan taka samtal við Austfirðinga um
hvernig nýta megi tækifærin sem búa í náttúru
og mannauði Austurlands og hvernig forseti
geti stutt við skapandi starf og uppbyggingu í
landsfjórðungnum.”
Sturla Jónsson: Svör bárust ekki frá framboðinu.