Austurglugginn


Austurglugginn - 24.06.2016, Page 12

Austurglugginn - 24.06.2016, Page 12
Fautaveldið Einu sinni mætti ég á fund bara til þess að geta kallað Björn Bjarnason fasista. Svona augliti til auglitis. Láta hann hafa það óþvegið. Fundur- inn var fámennur - samanstóð af nokkrum miðaldra körlum sem fannst sennilega ekki mikið til yfir- lýsingarinnar koma. Stelputuðran hafði augljóslega smyglað sér inn á þessa samkomu - sem þó var aug- lýst sem opinn fundur. Ég gekk út sigri hrósandi en með ákafan hjartslátt. Björn missti sennilega ekki svefn yfir þessari uppákomu, en þarna hafði ég tekið pláss sem var ekki ætlað mér og annað var aukaatriði. Í efri bekkjum grunnskóla fór ég að prófa mig áfram með að rífa kjaft. Mér fannst það alltaf óþægilegt og erftt þó svo að ég hefði aldrei viðurkennt það á sínum tíma. Ég var afburðanemandi en leiddist skelfilega. Fékk ekki þá athygli sem ég þurfti og átti skilið og hataði að heyra endalaust hvað ég væri dugleg og prúð án þess að vera tekin alvarlega. Svo ég varð dóni. Ég man hvernig mér leið í fyrstu skiptin sem ég reif kjaft við kennar- ana. Ég vissi að það var bannað og dónalegt og ég var alin upp við betri siði. Hjartslátturinn sem fylgdi í kjölfarið var svolítið eins og að reykja í fyrsta skipti - óþægilegur og bragðvondur en vandist óþægi- lega vel og varð ávanabindandi. Að sjá plássið sem hægt var að taka með því bara að opna munninn þegar þess var ekki óskað veitti mér sigurtilfinningu. Vald yfir aðstæðum. Ringulreið sem var mitt eigið sköpunarverk - í heimi þar sem fullorðið fólk átti orðið, ekki litlar, prúðar stelpur sem rifu skyndilega kjaft - öllum að óvör- um og kannski mest þeim sjálfum. Sú var tíðin að íslensk pólitík snerist um að fullorðnir menn skoruðu hvern annan á hólm og börðust til síðasta blóðdropa. Valdið var þess sem stóð eftir ódauður og kom manngæsku eða áhuga á betra samfélagi lítið við. Með tíman- um slíðruðu menn svo sverðin og létu það nægja að munnhöggvast. Áhrifamesta fólkið í samfélaginu sem ól mig upp voru fullorðnir menn í missmekklegum jakkafötum að rífast. Að láta hvern annan hafa það óþvegið. Ég var öskureiður unglingur og hélt að reiðin væri vald þar til ég náði tökum á henni. Þá fyrst áttaði ég mig á því hvað vald er. Dólgslætin veittu mér vissulega pláss, en höfðu ekki djúp áhrif á neitt í heimin- um. Þau voru sprottin af vanlíð- an og ollu slíkri. En þannig talar þetta samfélag alltof oft saman. Mögulega því á okkur er ekki hlustað nema við séum dólgar og fautar. Þannig er hefðin. Valdið er dólganna. Sáttin sem skapast við að fylgja hjartanu í samskiptum yfirtók á endanum fíknina í dólgslætin. Spennuna sem fylgdi því að vaða yfir og þverbrjóta. Ef við viljum betra samfélag þá þurfum við að byrja á okkur sjálfum. Hafna bar- áttuaðferðum dólganna í stað þess að upphefja þær. Vera svolítið góð við hvert annað og hætta að veita þeim vald sem viðhalda fauta- veldinu. Endalok þess eru okkur öllum í hag. Kolbeinn Ísak Hilmarsson frá Egils- stöðum hefur stefnt að því að verða flugmaður alla tíð, en hann lýkur atvinnuflugmannsréttindum nú í ágúst, aðeins tvítugur að aldri. „Ég hef haft áhuga á flugi síðan ég man eftir mér og þetta er það sem ég hef alltaf stefnt á,“ sagði Kolbeinn Ísak í samtali við Austurgluggann. Það er langt og margþætt ferli að ljúka atvinnuflugmannsréttindum, fyrst þarf að taka einkaflugmanns- réttindi og Kolbeinn var aðeins 15 ára gamall þegar hann fór í fyrsta flugtímann. „Maður má í rauninni fara í flug- tíma hvenær sem er þar sem ábyrgðin er á kennaranum en ekki er hægt að taka einkaflugmannsprófið fyrr en 17 ára. Ég tók því einn og einn tíma frá því ég var 15 ára og á fyrstu önninni minni í Menntaskólanum á Egils- stöðum var ég samhliða í bóklegu einkaflugmannsnámi í fjarnámi frá Keili. Ég kláraði það á einni önn, svo tímana og lauk einkaflugmannspróf- inu þegar ég var rétt rúmlega 17 ára,“ segir Kolbeinn. Kolbeinn hélt áfram námi sínu við menntaskólann en mörg flugfélög gera kröfu um stúdentspróf. Til þess að fá að halda áfram námi og fá vinnu sem flugmaður þarf að safna ákveðn- um tímafjölda í flugi, sem eru í dag a.m.k. 300. Kolbeinn hafði lokið 50 í einkaflugmannsprófinu. „Ég var svo heppinn að fá leigða vél til að safna tímum hér fyrir austan og með henni náði ég 150 tímum. Eftir útskrift úr menntaskóla fyrir rúmu ári fór ég suður í bóklega námið við Keili. Vegna þess hve mikið ég var búinn að fljúga fékk ég að taka verk- lega tíma meðfram náminu og því kláraði ég megnið af því núna eftir áramót og á aðeins 15 tíma eftir.“ Kolbeinn dúxaði í bóklega náminu og mun klára atvinnuflugmanns- réttindin nú í ágúst. „Við tökum öll bókleg próf tvisvar, fyrst í skólanum sem gefur próftöku- rétt hjá Samgöngustofu. Þetta eru fjórtán próf en meðaleinkunnin mín frá Keili var 9,77 og hin 9,86. Það er önnur hæsta einkunn í sögu Keilis en ég veit ekki með hina. Ég hef alltaf átt auðvelt með að læra en aldrei sett eins mikinn kraft í það og í vetur, sem var ekki erfitt því þetta var svo skemmtilegt. Ég á aðeins 15 verklega tíma eftir og einnig eitt námskeið í ágúst í áhafnasamstarfi. Að því loknu mun ég útkrifast með fjölhreyflaáritun, blindflugsáritun og atvinnuflug- mannsskírteini, en þá er ég orðinn fullgildur umsækjandi og uppfylli til dæmis allar kröfur hjá Icelandair.“ En hvað er svona spennandi við flugið? „Það er frelsið. Það hefur líka drifið mig áfram að mér finnst heill- andi að klára þetta ungur og starfa við millilandaflug og upplifa heim- inn í gegnum það. Það eru spennandi tímar og mikill uppgangur hjá milli- landaflugfélögunum þannig að ég ætla að leyfa mér að vera bjartsýnn,“ segir Kolbeinn að lokum. KBS Þórunn Ólafsdóttir Lokaorð vikunnar Kolbeinn hefur ætlað sér að verða flugmaður frá því hann man fyrst eftir sér. Vill upplifa heiminn gegnum flugið

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.