Austurglugginn


Austurglugginn - 29.07.2021, Side 6

Austurglugginn - 29.07.2021, Side 6
6 Fimmtudagur 29. júlí AUSTUR · GLUGGINN Inn úr Norðfjarðarflóa ganga þrír firðir, nyrstur er Norðfjörður, þá kemur Hellisfjörður og syðstur er Viðfjörður. Í Viðfirði var búið þar til árið 1955 þegar íbúar á síðustu þremur bæjum fjarðarins ákváðu að flytja og lagðist fjörðurinn þar með í eyði. Lauk þar með um 200 ára búsetu Viðfjarðarættarinnar í firðinum en ættin bjó ætíð á bæ samnefndum Viðfirði. Lífsbaráttan var hörð í Viðfirði eins og víða á Íslandi á þeim árum sem búið var í firðinum. Meðal síðustu ábúenda Viðfjarðar voru hjónin Guðríður Þorleifsdóttir og Guðni Þorleifsson ásamt börnum Guðríðar úr fyrra hjónabandi; Sveini, Þorgeiri Víði, Ólöfu Erlu og Freysteini en saman áttu þau Guðríður og Guðni soninn Þórarinn Viðfjörð sem skírður var eftir fyrri eiginmanni Guðríðar. Austurglugginn settist niður með Freysteini Þórarinssyni, sem flutti frá Viðfirði tvítugur ásamt fjölskyldu sinni, og ræddi við hann um lífið í Viðfirði. Sjóslysið árið 1936 Freysteinn Þórarinsson getur rakið ættir sínar til Viðfjarðar aftur til langalangalangalangafa síns Sveins Bjarnasonar sem bjó í Viðfirði um miðja 18. öld. Jörðin erfðist mann fram af manni og á aðfangadag árið 1927 lést afi Freysteins, Sveinn Bjarnason, og tóku þá þrír synir hans við jörðinni ásamt móður sinni Ólöfu en það voru þeir; Sófus Lynge, Frímann og Þórarinn Viðfjörð, faðir Freysteins. Guðríður Þorleifsdóttir, móðir Freysteins, var frá Hofi á Norðfirði en kynntist Þórarni þegar hún var vinnukona á Barðsnesi og flutti til Viðfjarðar árið 1929. Saman eignuðust þau Þórarinn og Guðríður sitt fyrsta barn, Svein, ári síðar. Það sama ár var lokið byggingu á nýjum Viðfjarðarbæ, sem teiknaður var af Guðjóni Samúelssyni, húsameistara ríkisins, og stendur sá bær enn í Viðfirði. Á næstu fimm árum fjölgaði ört í barnahópnum og voru systkinin orðin fjögur árið 1935 þegar Freysteinn fæddist. Lífið í Viðfirði var nokkuð hefðbundið þar sem bústörfum var sinnt og karlmennirnir reru til sjós. Í byrjun október árið 1936 áttu sér stað voveiflegir atburðir fyrir fjölskylduna í Viðfirði. „Fjórir fullorðnir karlmenn, þar af þrír bræður, fórust á trillubát fyrir Austurlandi í fyrradag, í góðu veðri og sjólausu, en í niðadimmri þoku. Mennirnir voru: Þórarinn Sveinsson (34 ára), Frímann Sveinsson (26 ára), Sófus Sveinsson (30 ára) alt bræður frá Viðfirði (skamt frá Neskaupstað), og Halldór Eiríksson (56 ára), aldraður einsetumaður á nýbýli hjá Viðfirði. Með þeim bræðrum Sveinssonum, er farin einasta fyrirvinna heimilisins að Viðfirði. Unnu þeir fyrir aldraðri móður sinni og konu Þórarins og fjórum börnum hans. Hinir bræðurnir tveir eru ókvæmtir. Hefir þessi atburður komið eins og reiðarslag á heimilið. Frjettaritari vor á Norðfirði símar, að menn sjeu sem furðu lostnir útaf þessum hörmulega atburði,“ sagði í Morgunblaðinu daginn eftir slysið. Viðfjarðarskotta og Þórbergur Þórðarson Í uppvexti Freysteins var Viðfjarðarbærinn í raun tvö býli þar sem móðir hans rak annað og Sigríður mágkona hennar rak hitt ásamt sænskum manni sínum Karl Hjelm. „Það var aðallega lifað af fjárbúskap, ég hugsa að kindurnar hafi verið um 200 síðasta veturinn okkar, og svo voru tvær til þrjár kýr fyrir heimilið. Það var lítið sóttur sjórinn eftir að þeir bræður fórust árið 1936 því það var enginn mannskapur til þess. Eftir slysið kom til okkar maður úr Hellisfirði sem hét Jón Símonarson og hann var hjá okkur í tvö ár. Þá fluttu til okkar Guðrún, föðursystir mín, og maðurinn hennar Sigurður Guðmundsson og voru í nokkur ár á bænum. Það munaði um fleiri hendur og við krakkarnir á bænum fórum svo að taka til hendinni um leið og við gátum. Hið daglega líf okkar krakkana var að mestu bundið við bústörfin,“ segir Freysteinn. Þórarinn Viðfjörð Sveinsson, faðir Freysteins. Ljósmyndin er tekin árið 1936, nokkrum mánuðum fyrir sjóslysið, af heimilisfólkinu á Viðfirði. Þau standa fyrir aftan frá vinstri: Hermann Jónsson, Guðríður Þorleifsdóttir Þórarinn Sveinsson, Ólöf Þórarinsdóttir og Jón Símonarson. Þau sem eru fyrir framan frá vinstri: Þorgeir Víðir Þórarinsson, Ólöf Sveinsdóttir sem heldur á Freysteini, Sigríður Sveinsdóttir sem heldur á Ólöfu Erlu Þórarinsdóttur, Sveinn Þórarinsson og Guðrún Sveinsdóttir sem heldur á Huldu Sigurðardóttur. „Það voru áætlunarferðir í gegnum Viðfjörð til Akureyrar“ Viðfjörður

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.