Austurglugginn - 29.07.2021, Blaðsíða 12
Skjótur endir á 25 ára afmæli Franskra daga
„Frönsku Íslandssjómennirnir,
sem á sínum tíma fiskuðu á skútum
sínum í kringum Ísland, komu
mikið til Fáskrúðsfjarðar, þar sem
þeir reistu spítala árið 1903 og
áttu samskipti við heimamenn.
Helgina 27.-28. júlí er ætlunin að
efna til franskra daga á staðnum
til að minnast þessa. Þá verður
m.a. á staðnum 9 manna hópur
Frakka, ungt fólk á aldrinum 15-
21 árs. Ferð þeirra er hugsuð til
að hitta fólkið og glæða áhugann
á samskiptum þjóðanna,“ sagði í
Morgunblaðinu í aðdraganda þess
að Franskir dagar voru haldnir í
fyrsta sinn árið 1996, fyrir 25 árum
síðan.
Fjölmenn og vel lukkuð
hátíð
Dagskrá Franskra daga í ár, á 25
ára afmælinu, var vegleg og hófst
hún á miðvikudaginn með því
að skemmtikrafturinn Hjálmar
Örn Jóhannsson hélt pöbkviss
í Skrúð. Á fimmtudaginn var
svo hjólreiðakeppnin Tour de
Fáskrúðsfjörður, kenderísganga og
loks hin formlega setning Franskra
daga. Eftir hina formlegu setningu
fóru fram tónleikar Stebba og Eyfa
í Skrúð. Á föstudeginum hélt KK
tónleika í kirkjunni, brekkusöngur
var haldinn við Búðagrund,
flugeldasýning og loks hélt Matti
Matt uppi stuði í Skrúð fram á nótt.
Frönskum dögum var þó slitið
fyrr en áætlað var þegar ríkisstjórnin
tilkynnti á föstudaginn að aftur yrðu
settar á samkomutakmarkanir sem
kváðu á um að aðeins 200 manns
mættu koma saman. Skipuleggjendur
Franskra daga ákváðu að halda
sig við fjölskyldudagskrána á
laugardeginum og var síðasti hluti
dagskrárinnar Íslandsmeistaramót
í franska kúluspilinu Pétanque sem
hófst klukkan 17:00 á laugardaginn.
Allri dagskrá á sunnudaginn var aflýst
sem og þeim skemmtunum sem fara
áttu fram á laugardagskvöldið.
„Franskir dagar lukkuðust frábær-
lega. Sólin lék við hátíðargesti eins
og hún hefur gert við Austfirðinga
í sumar. Sennilega hafa aldrei fleiri
mætt á fjölskylduskemmtunina sem
fram fór á laugardaginn og það var
gaman að sjá. Viðburðirnir sem fóru
fram tókust allir vel og það var ekkert
vesen. Við sem stöndum að hátíðinni
erum afar þakklát öllum þeim sem
lögðu hönd á plóg við hátíðina í
ár. Þá erum við einnig ánægð með
alla þá sem fjölmenntu á hátíðina
bæði heima- og aðkomumenn,“
segir Daníel Geir Moritz einn
skipuleggjandi Franskra daga í
ár. „Við fundum aðeins fyrir því
að mætingin á viðburði sem fram
fóru innandyra á fimmtudaginn
liðu aðeins fyrir þær fregnir sem
farnar voru að berast af útbreiðslu
faraldursins.“
Skipuleggjendur settir í
óþægilega stöðu
„Það var auðvitað svekkjandi að
þurfa að aflýsa hluta hátíðarinnar
þar sem hún stóð sem hæst þegar
það var gert,“ segir Daníel Geir.
Hann segir að skipuleggjendur
hátíðarinnar séu ekki alveg sáttir
við stjórnvöld í málinu. „Við erum
afar óánægð með stjórnvöld í þessu
máli. Það hefði verið eðlilegra að
þetta hefði legið fyrir fyrr og talað
hefði verið með afdráttarlausari
hætti. Hátíðarhaldarar voru settir
í óþægilega stöðu með þessari
ákvörðun þar sem okkur er t.a.m.
gert að taka mjög stórar ákvarðanir
með afar skömmum fyrirvara, við það
erum við sem stöndum að Frönskum
dögum ekki sátt,“ segir Daníel Geir
um skjótan endi á Frönskum dögum.
Frá því að stjórnvöld kynntu
samkomutakmarkanir síðastliðinn
föstudag hefur nokkrum viðburðum
á Austurlandi sem fara áttu fram
á næstunni verið aflýst, má þar
nefna Neistaflugstónleikana sem
stefnt var að halda næstkomandi
sunnudag. Ekki er ljóst hversu lengi
samkomutakmarkanirnar munu vara
en líkur eru á því Franskir dagar hafi
verið síðasta hátíðin sem haldin
verður í sumar. bþb
1041 0966
UMHVERFISVOTTUÐ PRENTSMIÐJA
www.heradsprent.is
Leikhópurinn Lotta skemmti ungum sem öldnum á Frönskum dögum.
Mætingin á fjölskyldudagskrána á laugardaginn var með allra
besta móti.
Matti Matt heldur uppi stuði á brekkusöng.
Ljósm: Franskir dagar
Ásta Hlín Magnúsdóttir
Lokaorð
í gær og það var alveg geggjað
að kveikja aðeins á kerti. Það er
skýjað núna og mjög kósý að sitja
bara fyrir framan tölvuna með
kaffibolla án þess að líða eins og ég
sé að svíkjast um að NJÓTA. Svo
eru engar samkomur framundan til
að missa af og á meðan hefur nóg
safnast upp af sjónvarpsþáttum til
að horfa á. Ég hugsa mér mjög
gott til glóðarinnar að blása rykið
af fjarstýringunni og gá hvað er
nýjast á Netflix, kannski nógu svalt
í húsinu til að breiða yfir sig teppi.
Hugsið ykkur bara.
Ég er búin að vera í sólarsælunni,
á þeytingi um Austurland allan
júlí. Það verður að ná að hitta alla,
verður alltaf að hafa gaman, fara
í sund, borða ís, setja myndir á
instagram, fara á tónleika, kíkja
í fjallgöngu, grilla, hitta fleiri,
kokteila með vinkonum, grilla
með fjölskyldunni, út að borða
líka, taka myndir og pósta, búin
að fara í Vök? Búin að skoða
Stuðlagil? Spa í Blábjögum, kaffi
í Hafnarhólmanum. Það verður
að vera gaman! Fara í frisbígolf,
hoppa á ærslabelgnum, sund, ís,
njóta, það verður að njóta!
Konan sem sat fyrir framan mig
á tónleikum í síðustu viku tók þá
næstum alla upp á snapchat og
skrifaði yfir vídjóin „LÍFIÐ ER
NÚNA“ og „LIFA OG NJÓTA“.
Keppnin í að hafa gaman, það er
sko gaman hjá mér líka. Sennilega
skemmtilegra en hjá þér.
Finniði ekki fyrir því hvernig
pressan er að minnka, dagurinn
fer að styttast, hlýindum að
ljúka, samkomubann skellur á.
Leikskólafríi lýkur. Rútína og
hafragrautur. Stundum hefur farið
í taugarnar á mér þegar fólk lætur
eins og haustið sé komið strax eftir
Bræðslu eða verslunarmannahelgi,
þegar sumarið er í raun bara
rúmlega hálfnað. En núna er þetta
eiginlega bara léttir, það er búið
að vera svo mikið sumar og nú fer
veðrið og samkomutakmarkanir
settar á um leið. Línan gæti
eiginlega ekki verið skýrari.
Gleðilegt haust og takk fyrir
geggjað sumar. Mikil ósköp sem
við nutum. Bráðum þarf að skafa á
morgnana og þá krefst þess enginn
lengur að þú sért að NJÓTA, bara
lifa af. Það er miklu einfaldara
verkefni að þrauka en njóta. Kom
hóflega fagnandi haust.
Haustar …
Tvisvar verður sá feginn sem á
steininn sest. Líka sá sem fer í
sumarfrí. Fyrsta kvöldrökkrið kom