Austurglugginn


Austurglugginn - 29.07.2021, Síða 9

Austurglugginn - 29.07.2021, Síða 9
 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 29. júlí 9 Sól og blíða hefur einkennt veðrið á Austurlandi undanfarinn mánuð. Nú um miðja vikuna tók blíðan stutt leikhlé bændum og búaliði til mikillar ánægju. Það sumsé rigndi á ný eftir mikinn þurrk á síðustu vikum. En langtímaspár sýna að sól og hiti mun áfram gleðja íbúa Austurlands og þá ferðmenn sem heimsækja fjórðunginn. Á föstudag er til dæmis spáð yfir tuttugu stiga hita og heiðskíru veðri á Egilsstöðum. Ferðamenn hafa komið í hrönnum og oft hefur þurft að loka tjaldstæðum þar sem þau voru orðin fullsetin. Þar að auki hefur verið fullbókað á flestum gististöðum og hótelum undanfarinn mánuð. Trausti Jónsson veðurfræðingur fjallaði um hitabylgjuna á Austur- og Norðurlandi á bloggi sínu á mbl. is í vikunni. Hann segir að sennilega verði fyrri hitamet á þessum slóðum slegin hvað júlímánuð varðar. „Meðalhámarkshiti er einnig óvenju hár, meiri en 20 stig, hæstur á Hallormsstað 21,7 stig - sýnist ritstjóra hungurdiska í fljótu bragði. Líklegt er að þessar vægast sagt óvenjulegu tölur lækki heldur næstu daga, en þó lítur nokkuð vel út með að júlímeðalhitamet verði slegin á allmörgum stöðvum og sá möguleiki er einnig fyrir hendi að við fáum að sjá hærri mánaðarmeðalhita en sést hefur áður hér á landi á einhverri stöð,“ segir Trausti. Gunnar Gunnarsson ritstjóri og Björn Þór Björnsson blaðamaður tóku þessar sumarmyndir um síðustu helgi. FRI Brakandi blíðan heldur áfram Oft hefur þurft að loka tjaldstæðum þar sem þau voru fullsetin. Mynd: GG Mikill fjöldi ferðamanna hefur lagt leið sína um Austurland í sumar. Mynd: GG Fjörugt líf fylgir því að gista úti í náttúrunni. Mynd: GG Bekkurinn hefur víða verið þéttsetinn á veitingahúsum í blíðunni. Mynd: BÞB Það er gott að geta skellt sér aðeins út á sjó í hitanum. Mynd: BÞB

x

Austurglugginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.