Austurglugginn


Austurglugginn - 27.08.2010, Blaðsíða 7

Austurglugginn - 27.08.2010, Blaðsíða 7
 Föstudagur 27. ágúst AUSTUR · GLUGGINN 7 Í engifer eru: • Yfir 100 efnasambönd • 12 andoxunarefni • 17 efni sem þekkt eru fyrir sótthreinsandi eiginleika w w w. m y s e c r e t . i s S í m i : 5 2 7 - 2 7 7 7 Virk efni í engifer ásamt reynslu- sögum viðskiptavina okkar hafa sýnt að engiferdrykkurinn aada hefur virkað vel á: > Astma > Deburð > Magasýrur > Meltinguna > Bólgur > Sogæðakerfið > Gigt > Orkuna > Mígreni/höfuðverk > Magavandamál > Tíðarverki > Flensu og hálsbólgu > Ristilvandamál > Sykurfíkn > Eykur grunn- brennslu líkamans > Ýmis húðvandamál > Ýmis ofnæmi Nú fæst aada í 300 ml og 2 lítra flöskum í völdum verslunum Söluaðili á Austurlandi; Ásta Snædís Guð undsdóttir, sími: 8958977 munkar séu alskeggjaðir en þó ekki nauðsynlegt. Pétur segir að „skegg er ákveðin hefð og venja sem flestir virða en það er ekkert skilyrði“. Guð lofaði Pétur telur íslendinga hafa farið illa með peninga fyrir kreppu og kastað t.d. alltof miklum mat sem honum þótti miður, en íslendingar séu að læra og hann segist hafa séð mikinn mun eftir að kreppan skall á hvað varðar meðferð okkar á verðmæti. Þeir sjálfir fá 34.000 kr. útborgað til einkaneyslu en þurfa ekki að standa straum af kostnaði vegna húsnæðis, rafmagns og matar. Þeir þurfa því að spara og hugsa um hverja krónu en þeir virðast ekki eiga í stökustu vandræðum með það. Pétur fer að minnsta kosti einu sinni á ári til heima- lands síns og þarf að kosta það sjálfur. Þrátt fyrir að margir myndu telja naumt skammtað segir Pétur að 34.000 krónur séu nægur peningur fyrir sig „guð lofaði að ég yrði alltaf með nóg og ég er alltaf með nóg“. Þeir senda töluvert af peningum í góðgerðamál, t.d. gáfu þeir myndarlegan fjárstyrk til góðgerðamála á Haíti eftir náttúruhamfarirnar þar í landi. Þeir fara einnig einu sinni á barinn á ári og fá sér kannski einn til tvo bjóra en í því samhengi vill Pétur (hlæjandi) „þakka guði fyrir að áfengi sé alltof dýrt á Íslandi“. Góðar viðtökur Pétur segir Íslendinga afar kurteisa og hjálpsama og er þakklátur fyrir alla þá vinsemd og hjálpsemi sem Íslendingar hafa sýnt þeim. Hann hefur aldrei fundið fyrir fordómum í sinn garð eða til sinnar trúar og hefur lært mikið af Íslendingum á dvöl sinni hér í landi. „Ég kom ekki til að kenna, frekar til að læra“ segir hann og bætir við að þeir séu til staðar ef fólk vill leita til þeirra. „Boðskapurinn er hér og ef fólk vill leita til okkar og fræðast um guðs- orð þá er það velkomið“, segir Pétur og bætir við að allir séu velkomnir. Trúmál Pétur segir að í dag sé „fólk að leita í trúna“ og tekur eftir aukningu í því eftir að efnahagskreppan skall á. Pétur segir að það sé mikilvægt fyrir fólk að hafa trú og leita til trúarinnar og er jákvæður í garð annarra trúfélaga. Stjórnmál Pétur segir að það tilheyri lífinu að hugsa um pólitík og stjórnmál en segist hvorki tilheyra hægri né vinstri hugsjón. „Ég skoða markvisst málefnin og kýs það sem mér líst best á“ en hann segir það verða erfiðara með tímanum og að það sé eins og það sé orðin hefð fyrir því að „pólitíkusar ljúgi“ og fjölmiðlar taki einnig þátt í því og spili þannig á lýðræðið. Hann tekur fram að þessa sýn sína hafi hann frá heimalandi sínu en telur að pólitíkin hér sé ekkert ósvipuð. Ritstjóri Austurgluggans vill þakka munkunum í Kollaleira við Reyðarfjörð fyrir höfðinglegar móttökur og það er óhjákvæmilegt annað en að fyllast aðdáun yfir lífsmáta þeirra, lífsgleði, stað- festu og síðast en ekki síst viljastyrk.

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.