Austurglugginn - 27.08.2010, Qupperneq 11
Föstudagur 27. ágúst AUSTUR · GLUGGINN 11
Um leið og barn þitt hefur
grunnskólagöngu verður þú
sjálfkrafa meðlimur í foreldra-
félagi skólans en þau eru nú
lögbundin. Heimili og skóli
- landssamtök foreldra hvetja
foreldra til að vera virkir í skóla-
starfinu og taka þátt í starfsemi for-
eldrafélaganna strax frá skólabyrjun.
Rannsóknir sýna að það að foreldrar
hittist og þekkist hefur forvarn-
aráhrif. Mikilvægt er að foreldrar
nálgist nauðsynlegar upplýsingar um
starfsemi síns foreldrafélags
og kynni sér skóladagatal og
skólanámskrár. Þá er gott að
yfirfara hvaða upplýsingar
liggja fyrir um barnið í skól-
anum og tilkynna skólanum
ef um er að ræða breytta hagi hjá
barninu eða foreldrum þess.
Hafi foreldrar t.d. skipt um netfang
er mikilvægt að skólinn fái að vita
af því til að tryggja að nauðsynlegar
upplýsingar berist milli heimila og
skóla.
Á haustin er boðið upp á námsefn-
iskynningar í mörgum skólum og þar
geta foreldrar m.a. fengið upplýs-
ingar um námsmarkmið, námsmat
og um tölvusamskipti sem fara fram í
gegnum upplýsingakerfið Mentor.
Í flestum skólum er líka boðið upp
á skólafærninámskeið fyrir foreldra
6 ára barna. Þar fá þeir kynningu á
skólastarfinu, til hvers ætlast er af
þeim sem skólaforeldrum, fræðast
m.a. um þroska barna á hinum ýmsu
aldursskeiðum, kynnast kennurum
barnsins, starfsfólki skólans og for-
eldrum bekkjarfélaganna. Á vegum
foreldrafélaganna starfa tengiliðir
eða bekkjarfulltrúar í hverjum bekk
og gefst fólki þannig kostur á að
bjóða sig fram til virkrar þátttöku
í foreldrasamfélaginu.
Sumir skólar hafa foreldraviðtöl í
tengslum við skólasetningu þar sem
foreldrar geta hitt kennara barns-
ins strax fyrsta daginn í persónulegu
viðtali. Láta foreldrar mjög vel að
því að fá aðgang að kennaranum í
skólabyrjun. Við það fá þeir kærkom-
inn stuðning og hægt er að miðla
nauðsynlegum upplýsingum.
Viðhorf foreldra endurspeglast oft í
viðhorfi barnanna til skólans því er
áríðandi að foreldrar séu jákvæðir
og ræði ekki neikvæðar hliðar
skólastarfsins í návist barnanna.
Nemendur þurfa að koma að hreinu
borði í orðsins fyllstu merkingu og
ekki er gott að draga fram gamla
drauga eða atburði síðasta skólaárs.
Foreldrar þurfa að huga vel að líðan
barna sinna og leggja sig fram um
að skapa börnunum jákvætt og upp-
byggilegt námsumhverfi til að þau
verði móttækileg fyrir því sem skól-
inn hefur fram að færa.
Foreldrar verum til staðar fyrir börn-
in okkar, nú sem endranær.
MIÐSTÖÐ SVIÐSLISTA Á AUSTURLANDI
Sláturhúsinu á Egilsstöðum, sími 899 5715.
http://mmf.egilsstadir.is, mmf@egilsstadir.is.
MIÐSTÖÐ MYNDLISTAR Á AUSTURLANDI
Austurvegi 42, 710 Seyðisfirði, sími 4721632 / 8695107.
www.skaftfell.is, skaftfell@skaftfell.is.
AusturlandsmiðstöðvarMenningar
Sýningar í gangi
Aðalsalur
Birgir Andrésson, Tumi Magnússon
& Roman Signer
10.07.10 - 30.09.10
Vesturveggurinn
Gegnum
Hrafnhildur Helgadóttir,
Lilja Birgisdóttir, Loji Höskuldsson,
Sigríður Tulinius & Sunna Schram
13.08.10 – 05.09.10
Bókabúðin – verkefnarými
Póstkort
Rakel Sverrisdóttir & Gordana Bezanov, gestalistamenn í Skaftfelli í ágúst.
26.08.10 - 06.09.10
Sýningarnar eru opnar alla daga frá 12:00 – 22:00 og er frítt inn.
Umsóknarfrestur fyrir gestavinnustofur Skaftfells á árinu 2011 er 1. september
næstkomandi. Skaftfell rekur gestavinnustofur fyrir myndlistarmenn í þremur hús-
um á Seyðisfirði. Um er að ræða vinnustofudvöl í 1 – 6 mánuði. Umsóknareyðu-
blað og frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Skaftfells.
FIDGET FEET loft-
fimleikanámskeið
FIDGET FEET er írskur loftfimleika leikhúshópur sem
verður á Egilsstöðum 4. - 16. október nk.
Þau munu halda námskeið fyrir fullorðna 4.-8. októ-
ber og fyrir 8-15 ára börn 11.-12. október.
Einnig mun meðlimur hópsins, Jym Daly halda
Invoke Music tónlistarnámskeið og djamm.
Haldin verður nemendasýning 9. október og svo
munu FIDGET FEET halda sýningu á leikverki sínu
MADAM SILK 15. október.
Miðasala er hafin en miðinn kostar 2.200 kr.
Loftfimleikanámskeiðin fara fram í Íþróttamiðstöðinni
á Egilsstöðum.
Skráning er hafin!!!!
Nánari upplýsingar og skráning: mmf@egilsstadir.is og á heimasíðu MMF: http://
mmf.egilsstadir.is
Bréf til blaðsins
Að vera skólaforeldri
Undirbúningur foreldra að góðum skóladegi felst í að sjá til þess að barnið:
komi útsofið í skólann•
borði hollan og góðan morgunverð•
taki með nægt og hollt nesti í skólann•
sé ekki með of þunga tösku og að þyngstu bækurnar séu næst bakinu•
fái ríkulega af hlýju, stuðning og áhuga frá sínum nánustu•
Helga Margrét Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Heimili og skóla
Það er ævintýri líkast að fylgjast
með skipakomum til Neskaupstaðar
þessa dagana. Að sögn Gunnþórs
Ingvasonar framkvæmdastjóra
Síldarvinnslunnar hf. hafa á undan-
förnum vikum farið um höfnina um
500 milljónir króna á viku en þessa
helgi fer upphæðin í tæplega millj-
arð. Daglega er unnið í fiskiðjuverinu
verðmæti um 31 milljón króna og
gerir það yfir 200 m á viku. Þetta er í
fyrsta skipti sem ekki kemur til sum-
arlokunar í fiskiðjuverinu en Börkur
NK, Beitir NK og Bjarni Ólafsson
AK landa með reglulegu millibili til
að skammta vinnslunni hæfilega svo
hægt sé að gera sem mest úr þeim
afla sem berst að landi. Um helgina
bættist Kristina EA í þennan skipa-
stól og mun hún þegar hafa landað
einum farmi. Megninu af aflanum
er landað til manneldis. Síldin er
flökuð en makríllinn er hausaður og
slógdreginn, afskurður og það sem
flokkast frá fer síðan í bræðslu.
Stærsta skipið sem komið hefur í
höfnina í Norðfjarðarhöfn er Frio
Pacific, skráð í Panama. Það er um
150 metra langt og gekk erfiðlega
að koma því inn í höfnina. Lá við
að það lenti upp í grjótgarðinn.
Dráttarbáturinn Vöttur og björgunar-
skipið Hafbjörg reyndu að koma skip-
inu inn og það tókst að lokum. Það
mun lesta um 4700 tonn af frystum
afurðum, aðallega makríl.
Þrír stórir línubátar hafa verið á
veiðum, þeir Auður Vésteins, Daðey
og Gísli Súrson og hafa þeir allir
fiskað vel. Ungt fólk hefur haft góða
vinnu í fiskiðjuverinu og hefur haft
um og yfir eina milljón króna fyrir
sumarstarfið.
Þegar mest er umleikis í Norðfjarðar-
höfn má áætla að verðmæti skipaflot-
ans í höfninni sé um 17 til 20 millj-
arðar króna. Þá er verið að tala um
skip í eigu Síldarvinnslunnar hf. og
Samherja hf.
Eg.
Um milljarður um
höfnina um helgina