Austurglugginn - 02.09.2011, Blaðsíða 6
6 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 2. september
Kæru ættingjar
vinir og velunnarar
Ég og eiginkona mín Guðrún Sigurjónsdóttir sendum ykkur
hér með hjartkærar þakkir fyrir heillaóskir og gjafir að
tilefni 95 ára afmælis míns. Sérstakar þakkir til golfklúbbs
Norðfjarðar, Samvinnufélags Útgerðamanna, Iceland Air og
allra þeirra sem stóðu að glæsilegu golfmóti mér til
heiðurs. Hittumst heil á næsta Stefánsmóti.
Stefán Þorleifsson.
Verið velkomin
H
ér
að
sp
re
nt
Kaffihúsið · Strandgata 10 • 735 Eskifirði
Símar 476 1150 / 894 6606
Góður veitingarstaður
með fjölbreyttum matseðli, gistiheimili með 11
herberju, matseðill mánuð fram í tímann fyrir
vinnuhópa og alla sem vilja, sendir bakkar eða
borðað á staðnum.
Veisluþjónusta
Barnaafmæli, pizzur og fl. Veislur fyrir stærri hópa.
Bolti í beinni á 100"breiðtjaldi og 50" sjónvarpi.
Opið:
Sun. - mið. 12:00-22:00
Fim. 12:00-24:00
Fös. - lau. 12:00-01:00.
Nokkrir viðmælendur Austur-
gluggans sem eru í atvinnurekstri
hafa kvartað undan því hve illa þeim
gengur að fá fólk í vinnu. Um er að
ræða allskyns störf þó einna helst
sé um að ræða almenn afgreiðslu-
störf. Engu að síður eru á milli 200
og 300 manns á atvinnuleysisskrá á
Austurlandi samkvæmt upplýsingum
frá Vinnumálastofnun. Þar af eru um
50 manns í hlutastarfi. Samkvæmt
tölum Vinnumálastofnunar voru
40 störf skráð laus í lok júlí en 18
í lok júní.
Vinnumálastofnun hefur greint
atvinnuleysistölur fyrir Austurland
eftir búsetu, kyni, aldri, menntun,
starfsstétt og atvinnugrein en inn í
þeim tölum eru þeir undanskildir sem
eru í hlutastörfum og einnig skortir
ítarlegri upplýsingar um 30 manns.
Eftir standa 150 manns á atvinnu-
leysisskrá sem Vinnumálastofnun
hefur greint niður samkvæmt fyrr-
greindum hætti.
Gengur illa að fá fólk í vinnu
Fjöldi atvinnulausra eftir búsetu í byggðakjörnum.
Flestir atvinnulausra hafa eingöngu grunnmenntun.
Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun koma atvinnulausir einstaklingar
á Austurlandi úr ofangreindum atvinnugreinum.
Flestir atvinnulausra á
Austurlandi eru konur á
aldrinum 30 – 49 ára.
Vilt þú verða
umræðuhæfur á kaffistofunni?
Hringdu í fréttasíma
Austurgluggans 867-2151