Austurglugginn


Austurglugginn - 02.09.2011, Blaðsíða 8

Austurglugginn - 02.09.2011, Blaðsíða 8
8 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 2. september Aðdragandi þessa verkefnis var kynning á vattarsaumi sem haldin var á vegum Þorpsins og Minjasafnsins sl. haust. Í kjölfarið voru haldin námskeið á Egilsstöðum og í Fljótsdal. Í lok 19. Aldar (1889 ) fannst vattarsaumaður vöttur (vettlingur) úr ull við Arnheiðarstaði í Fljótsdal. Talið er að hann sé frá 10. öld og er með elstu munum úr textíl sem varðveist hafa hér á landi og auk þess eina vattarsaumaða flíkin sem fundist hefur. Fljótlega fæddist sú hugmynd að endurgera vöttinn frá Arnheiðarstöðum og í kjölfar nám- skeiðsins varð til handverkshópur í Fljótsdal sem nú kallar sig  Droplaug - hið Fljótsdælzka handverksfélag.  Hópurinn hefur hist reglulega í vetur og æft vattarsauminn.  Fljótsdalshreppur veitti Droplaugu styrk til að standa straum af kostnaði við endurhönnun vattarins. Síðastliðin sunnudag, á Fljótsdalsdegi Orms- teitis, var vötturinn settur formlega í sölu í Snæfellsstofu en þeir verða einnig seldir í Minjasafni Austurlands, Þjóðminjasafninu og Húsi Handanna á Egilsstöðum.  KK og Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, ásamt sam- herja sínum úr Borgarfirði, einum af þremur borgarstjórum Fjarðarborgar, Skúla Sveinssyni. Austurglugginn greindi frá því í sumar að Vegagerðin hefði farið fram á eignarnám í landi Hjarðarhaga og Skjöldólfsstaða vegna byggingar nýrrar brúar á Ysta- Rjúkanda. Landeigendur eru afar ósáttir við að Vegagerðin skuli fara fram með þeim hætti og krefjast þess að eign- arnám verði ekki heimilað og hafa sent stjórnsýslukæru þess efnis til Innanríkisráðuneytisins. Þá hafa landeigendur lýst því yfir að þeir séu ekki á móti framkvæmdinni og hafa boðist til að þinglýsa afnotarétti til Vegagerðarinnar. Settu skilyrði Skipulags- og mannvirkjanefnd tók fyrir skemmstu fyrir beiðni um fram- lengingu starfsleyfis frá Vegagerðinni. Í afgreiðslu nefndarinnar lagði nefndin skilyrði fyrir framlengingunni þess efnis að framlengingin verði veitt „þegar leyst hefur verið úr þeim málum er varða landeigendur.“ Bæjarstjórn samþykkir án skilyrða Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs ákvað að veita framlengingu starfsleyfis á fundi bæjarstjórnar þann 17. ágúst sl. Í fundargerð bæjarstjórnar segir að Vegagerðin hafi skrifað sveitarfélaginu bréf í kjölfar ákvörðunar Skipulags- og mannvirkjanefndar um fyrrgreint skilyrði fyrir framkvæmdaleyfi. Í bréfi Vegagerðarinnar „kemur m.a. fram að málefni er snúa að landeigendum og skipulags- og mannvirkjanefnd vís- aði til í sinni afgreiðslu, eru komin í lögmæltan farveg“ segir í fundargerð bæjarstjórnar. Í ljósi þess var eftir- farandi tillaga lögð fram og samþykkt: „Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs sam- þykkir að framlengja áður útgef ið framkvæmdaleyf i Vegagerðarinnar til lagningar hluta hringvegar um land Hjarðarhaga og Skjöldólfsstaða 1 og byggingar nýrrar brúar á Ysta- Rjúkanda“. Arnheiðarstaðarvötturinn endurgerður í Fljótsdal Tæplega 300 manns sóttu tónleika með Kristjáni Kristjánssyni, betur þekktum sem KK, í Loðmundarfirði síðastliðið laugardagskvöld. Tónlistargestir sóttu tónleikana með ýmsu móti, nokkrir gestir komu gangandi frá Seyðisfirði og aðrir gangandi frá Borgarfirði. Þá nýttu sumir hjólreiðarnar sínar á meðan aðrir gestir komu á stærri farartækjum eins og fjórhjólum, bílum en einnig komu tveir bátar með fólk frá Seyðisfirði. Veður var gott, logn en kólnaði lítilsháttar um kvöldið. Vel tókst til og voru skipuleggjendur afar ánægðir með það hversu vel tónleikarnir voru sóttir. Gestir hátíðarinnar fóru allir með bros á vör að loknum tónleikum og sagði Þórhallur Þorsteinsson, einn skipuleggjanda tónleikanna að sjálfur KK „hefði farið á kostum og þar sem þessir tónleikar tókust svona vel er ekki ólíklegt að þetta verði endurtekið í einhverri mynd að ári“. KK - tónleikar í Loðmundarfirði Framlenging starfsleyfis vegna hringvegar um Ysta-Rjúkanda

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.