Austurglugginn


Austurglugginn - 24.09.2010, Qupperneq 5

Austurglugginn - 24.09.2010, Qupperneq 5
 Föstudagur 24. september AUSTUR · GLUGGINN 5 Austfirskar krásir er klasasamstarf fyrirtækja á Austurlandi sem framleiða og/eða selja austfirskt hráefni. Austfirskar krásir voru stofnaðar í febrúar 2009 á Austurlandi með því markmiði að efla austfirska matarmenningu og vera samstarfsvett- vangur þeirra aðila sem stunda atvinnurekstur sem byggir á hráefni af svæðinu. Fjölbreytileikinn er mikill innan klasans og er boðið upp á margskonar hráefni og matvörur. Í dag eru ýmsar hugmyndir að komast til fram- kvæmda innan matvælageirans á Austurlandi. Matvælamiðstöð Austurlands var stofnuð seinni- part árs 2009. Þar er framleiðendum gefinn kostur á að nýta aðstöðuna gegn sanngjarnri greiðslu sem gerir þeim kleift að prufa sig áfram með hug- myndir sínar. Í dag eru nokkur verkefni í gangi, þar á meðal verkefni sem félagar í Austfirskum krásum standa að. Holt og heiðar ehf. Hallormsstað Bergrún Arna Þorsteinsdóttir og hjónin Guðný Vésteinsdóttir og Þórólfur Sigjónsson eiga fyrir- tækið Holt og heiðar ehf. á Hallormsstað. Fyrirtækið býður upp á birkisafa, birkisíróp, rabarbara, sultaðan á ýmsan hátt, og sveppi og er hráefnið allt upp- runnið á Austurlandi. Helsta sérstaða fyrirtækisins er framleiðsla birki- síróps en það er hvergi annarsstaðar framleitt á Íslandi. Frá skógarmönnum kom hvatning um að nýta birkisafa til framleiðslu. Í framhaldinu var hafin söfnun á birkisafa árið 2009 og þróun á birkisír- ópi. Birkisafi er vandmeðfarin afurð, geymsluþol hans eru fjórir dagar í kæli og söfnun er einungis möguleg þrjár vikur á ári. Ef eitthvað fer úrskeiðis þá er ár í næstu uppskeru. Hreinn birkisafi er góður heilsudrykkur og allra meina bót. Hann inniheldur mikið af steinefnum og sykrum. Gigtarsjúklingar og fólk með frjókornaofnæmi hafa fengið bót með neyslu birkisafans og í bígerð er að þróa hann frekar sem heilsudrykk. Móðir jörð – lífrænt ræktaðar afurðir frá Vallanesi Eymundur Magnússon er ábúandi í Vallanesi og stofnandi fyrirtækisins, Móðir Jörð, sem stendur fyrir lífrænni ræktun á grænmeti og korni og full- vinnslu afurða undir eigin vörumerki. Rekstur Móður Jarðar er nú í mikilli þróun en hingað til hefur vörumerkið unnið sér sess á Íslandi fyrir hið vel þekkta Bankabygg sem er ræktað og unnið í Vallanesi, sem og fyrir útiræktað grænmeti og kartöflur. Tilbúin grænmetisbuff hafa verið á mark- aðnum í nokkur ár sem og nuddolíur. Fullvinnsla hófst því hjá Móður Jörð fyrir meira en áratug. Vaxandi áhugi er á lífrænt ræktuðum afurðum á Íslandi auk þess sem efnahagskreppan hefur breytt umtalsverðu um samkeppnishæfni íslenskra fram- leiðenda. Móðir Jörð kappkostar að fylgja þessari þróun eftir og er stefnt að frekari uppbyggingu matvælaframleiðslu og fullvinnslu úr lífrænt ræktuðu hráefni. Fyrstu skref í þá átt er þróun og markaðssetning nýrra vörutegunda s.s. hrökkkex úr íslensku byggi sem ber nafnið Hrökkvi, en það er meðal annars bragðbætt með íslenskri ætihvönn. Á þessu ári voru auk þess kynntar til leiks krydd- sultur (chutney) úr rófum og rauðrófum sem bera nöfnin Gulrófugló og Rauðrófugló. Þessar vöruteg- undir þykja henta einkar vel á matborð Íslendinga með villibráð, lambasteik eða grænmetisréttum en við vöruþróun var þess gætt að þær gætu einnig höfðað til ferðamanna. Móðir Jörð er e.t.v. þekktast hér á landi fyrir lífrænt ræktað bygg sem hefur verið ræktað í Vallanesi til manneldis frá árinu 1985 og segir Eymundur að fagmenn sem leikmenn sjái sífellt betur góð áhrif þess á heilsuna auk þess sem það er mjög hag- kvæmur kostur til hvers konar matargerðar. Fjóshornið á Egilsstöðum Í byrjun sumars opnuðu Vigdís Sveinbjörnsdóttir og Gunnar Jónsson veitingastaðinn Fjóshornið á Egilsstöðum. Staðurinn byggir á hugmynd sem hafði verið til í dágóðan tíma. Síðasta vor var svo ákveðið að fara af stað með uppbyggingu á veit- ingastaðnum og bjóða þar til sölu framleiðsluvörur Egilsstaðabúsins. Vigdís framleiðir nokkrar tegundir af jógúrti, Egilsstaðaskyr og ostinn Egilsstaðafeta. Einnig býr hún til skyrtertur úr hráefni frá búinu og hefur þetta á boðstólum í Fjóshorninu ásamt kaffi og öðru bakkelsi. Hún hefur lítinn vinnslusal inn af veitinga- staðnum þar sem hún vinnur úr gerilsneyddri mjólk frá sínu eigin búi. Auk þess býður Vigdís einnig upp á gúllassúpu sem unnin er úr nautakjöti. Austurlamb ehf. Austurlamb ehf. er félag sauðfjárbænda á Austur- landi og er tilgangur þess sala á austfirsku lamba- kjöti og öðrum kjötafurðum. Félagið hóf starfsemi árið 2007 en áður hafði Sláturfélag Austurlands rekið sambærilega starfsemi frá árinu 2003. Í dag eru framleiðendur hjá Austurlambi ehf. sjö tals- ins. Sala Austurlambs ehf. fer að mestu fram í Reykjavík og á Austurlandi en þó dreifist salan einnig um aðra landshluta. Í dag er þjónustan að mestu sniðin að þörfum heimila en að sögn Sigurjóns Bjarnasonar, umsjónarmanns félagsins, er endurskipulagning í undirbúningi og þá verður horft til þess möguleika að ná til veitingahúsa og annarra fyrirtækja. Sala erlendis kemur einnig vel til greina með tímanum en þá yrði lögð áhersla á beina sölu til neytand- ans, án milliliða. Austurlamb ehf. er nýjung í kjötviðskiptum á Íslandi og mikilvægt framfaraskref í sölu á íslensku lambakjöti. Beint og milliliðalaust samband milli bónda og neytanda tryggir að viðkomandi geti valið hvaðan hann fær kjötið og keypt það með lítilli fyrirhöfn. Vilji Austurlambs er að koma til móts við þá sem vilja tengjast íslenskri náttúru og menningu í gegnum sín matarinnkaup. Jafnframt vill félagið tryggja að þau vörugæði, sem hagstæðar náttúru- legar aðstæður á Austurlandi skapa, skili sér til neyt- enda og að bændur eigi möguleika á því að selja sitt kjöt sjálfir og þannig sé þeim gefinn kostur á aukinni hlutdeild í eigin verðmætasköpun. Fiskverkun Kalla Sveins Karl Sveinsson er eigandi fyrirtækisins Fiskverkun Kalla Sveins (FKS) á Borgarfirði eystra. Karl sótti fiskvinnsluskóla og hóf útgerð 1977 sem hann rak jafnhliða gæsabúskap. Árin 1982-1984 byggði Karl alifuglasláturhús í félagi við Birgi Björnsson frá Geitavík sem einnig stundaði gæsabúskap. Við bygginguna var einnig hugað að möguleika á fisk- vinnslu en sú starfsemi var Karli ofarlega í huga. Árið 1986 hætti Karl gæsabúskap vegna markaðs- aðstæðna og fór út í fiskverkun samhliða útgerð og hákarlaverkun. Innflutningur á pekingöndum og gæsum hafði aukist og því var lítið uppúr gæsabú- skapnum að hafa. Næstu 14 árin var smátt og smátt byggt við húsnæðið og starfsemi fyrirtækisins jókst. Upp úr 1990 – 1991 hætti Kaupfélag Héraðsbúa starfsemi fiskvinnslu sinnar á Borgarfirði og var það því kostur fyrir staðinn að Karl hafði farið af stað með saltfiskverkun enda starfaði stór hluti íbúanna við sjávarútveg. Fyrir rúmu ári síðan ákvað Karl að fjárfesta í Álfacafé á Borgarfirði og í leiðinni setja fram- leiðslu Álfasteins aftur í gang en starfsemi þess fyrirtækis hafði þá legið niðri í nokkurn tíma. Starfsemi Álfasteins er í næsta húsi við fiskverk- unina. Álfacafé býður upp á fiskisúpu með brauði auk kaffis og meðlætis sem allt er bakað á staðnum. Þá er hægt að panta fiskrétti fyrir hópa ef pantað er tímanlega og geta 50 – 60 manns setið til borðs í einu. Karl segist hafa ákveðið að reyna að lengja ferðaþjónustutíma Borgarfjarðar eystra um sex vikur og hafi það lukkast vel. Nú opnar hann í maí í stað júní og lokar í september en ekki í ágúst eins og margir gera. Austfirskar krásir

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.