Austurglugginn


Austurglugginn - 24.09.2010, Qupperneq 7

Austurglugginn - 24.09.2010, Qupperneq 7
 Föstudagur 24. september AUSTUR · GLUGGINN 7 FJARÐABYGGÐ | þú ert á góðum stað fjardabyggd.is StöðvarfjörðurFáskrúðsfjörðurReyðarfjörðurEskifjörðurNorðfjörðurMjóifjörður Deiliskipulagstillaga Aðkoma Fáskrúðsfjörður vestur – Ósinn Bæjarstjórn Fjarðabyggðar auglýsir hér með deiliskipulagstillögu fyrir aðkomu í Fáskrúðsfjörð vestur - Ósinn. Tillagan er auglýst samkvæmt 25. gr. skipulags- og byggingalaga nr. 73/1997 og var samþykkt í bæjarstjórn Fjarðabyggðar fimmtudaginn 2. september 2010. Svæði það sem skipulagið tekur til er umhverfis Ósinn norðan aðkomu að Fáskrúðsfirði frá vestri. Deiliskipulagstillagan er til sýnis á bæjarskrifstofum Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, Reyðarfirði, í þjónustugátt í bókasafni Fáskrúðsfjarðar og á heimasíðu sveitarfélagsins. Tillagan er til sýnis frá og með 23. september til og með 28. október 2010. Athugasemdafrestur er til sama tíma. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Reyðarfirði. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við breytingartillögurnar fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni. Umhverfisstjóri. Samband sveitarfélaga á Austurlandi heldur aðalfund um helgina og hefst fundurinn með setningu fráfarandi formanns, Björns Hafþórs Guðmundssonar, á föstudeginum 24. septem- ber. Björn mun svo ásamt Þorvaldi Jóhannessyni, fráfarandi framkvæmdastjóra, SSA, fara yfir liðið starfsár og áætlanir fram að 2011. Þar á eftir mun Björn Hafþór kynna framtíðarskipulag samstarfs sveitarfélaga og stoðstofnana á Austurlandi. Gestir fundarins verða þeir Hermann Sæmundsson, skrifstofustjóri Samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðuneytisins, Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, og munu þeir ávarpa þingfulltrúa. Þá mun Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra, kynna fyrir fundargestum fyrirkomulag aðild- arviðræðna Íslands og ESB. Nefndastörf taka svo við og afgreiðslur auk kosn- inga á laugardeginum. Kosning formanns Valdimar O. Hermannsson gefur kost á sér til formanns SSA en hann hefur starfað innan stjórn- arinnar sl. ár. Valdimar segir í samtali við Austurgluggann að hann sé „spenntur fyrir því að taka við formennsku, ekki síst vegna þess að miklar mannabreytingar hafa átt sér stað innan stjórnar SSA.“ Aðspurður út í þær áherslur sem Valdimar hyggst boða, nái hann kjör í embættið segist hann vilja „efla sveitarstjórnarstigið með öllum ráðum og ná fram hagræðingu innan stoðstofnana SSA en einnig auka upplýsingaflæðið frá SSA og gera það sýnilegra.“ Hefð hefur skapast fyrir því innan SSA að formannsstóllinn flakki á milli sveitarfélaga þegar formannsskipti eiga sér stað og nú er röðin komin að Fjarðabyggð. Engin lögbinding í sameiningu sveitarfélaga Samkvæmt Skessuhorni, frétta- veitu Vesturlands, kemur fram að Ögmundur Jónasson, nýskip- aður dómsmála- og mannrétt- indaráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, muni ekki þröngva fram sameiningu sveitarfélaga með lagasetningu eins og Kristján Möller, fyrrverandi samgöngumálaráðherra hafði boðað. Þetta kom fram á aðalfundi Samtaka sveit- arfélaga á Vesturlandi sem fór fram á Ólafsvík 10. september sl. Þessi stefnubreyting stjórnvalda í málefnum sveit- arfélaganna kann að hafa ýmis áhrif á komandi SSA þingi en sveitarfélögin á Austurlandi hafa unnið náið að hugsanlegri sameiningu sveitarfélaganna á starfssvæði SSA. Skipaður var hópur á síðasta aðalfundi SSA sem hefur starfað undir nafninu, Austurland eitt sveitarfélag og mun hann kynna tillögur sínar á komandi þingi SSA. Hópnum var falið á síðasta aðalfundi SSA að gera tillögur að stjórnkerfi nýs sameinaðs sveitarfélags, leita eftir samvinnu við ráðuneyti samgöngu- og sveit- arstjórnarmála um mögulega sameiningu, kanna vilja ríkisvaldsins til sameiginlegrar stefnumörk- unar um opinberar framkvæmdir og verkaskipt- ingu slíks sveitarfélags og ríkisvaldsins og fjalla um þau áhrif sem tilkoma hins nýja sveitarfélags hefði í för með sér fyrir austfirskt samfélag með sérstakri áherslu á þau tækifæri sem sköpuðust. Á síðasta aðalfundi SSA var þessi starfshópur settur á laggirnar með einróma samþykki og var talað um að um væri að ræða „ótvírætt tímamóta- verkefni, sem ekki á sér hliðstæðu á Íslandi. Því er mikilvægt að allir sem að því koma standi að því af metnaði og með vönduðum hætti.“ eins og segir í bókun frá síðasta aðalfundi SSA. Framangreind orð Ögmundar hleyptu aðalfundi Samtaka sveitar- félaga á Vesturlandi í visst uppnám hvað varðar sameiningu sveitarfélaga. Stefnubreytingin virðist einnig hafa haft áhrif á starfshóp SSA, Austurland eitt sveitarfélag, hvað varðar það starf sem var ákveðið á síðasta aðalfundi SSA. Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar, sagði í samtali við Austurgluggann að fulltrúar Fjarðabyggðar muni leggja á það áherslu á þinginu að draga úr sameiningaráformum og efla þess í stað samstarf sveit- arfélaganna. Austurglugginn verður að sjálfsögðu á staðnum og mun flytja umfjöllun um helstu tíð- indi fundarins í næsta tölublaði Austurgluggans. Aðalfundur SSA á Breiðdalsvík

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.