Austurglugginn


Austurglugginn - 24.09.2010, Blaðsíða 8

Austurglugginn - 24.09.2010, Blaðsíða 8
8 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 24. september Á síðasta bæjarstjórnarfundi Fjarðabyggðar tók Páll Björgvin Guðmundsson við embætti bæj- arstjóra. Helga Jónsdóttir afhenti Páli lyklavöldin í lok fundar og óskaði honum góðs gengis í embættinu. „Þetta er víðfeðmt og fjölbreytt starf og ákaflega spennandi starfsvettvangur og mikil áskorun að taka við þessu starf i og ná að lenda því þannig að allir séu sáttir“ segir Páll Björgvin aðspurður út í það hvernig honum lítist á nýja starfið. Páll Björgvin segir að Fjarðabyggð sé „stórt sveitarfé- lag, ekki síst í landfræðilegum skilningi“ og telur að það sé flóknara að stýra margkjarna s v e i t a r f é l a g i heldur en sveit- arfélagi sem samanstandi af einum b y g g ð a r - kjarna. Hann segir sín fyrstu verk snúa að fjárhagsáætlanagerð og fjár- hagi sveitarfélagsins. „Þrátt fyrir umtalsverðar skuldir og skuldbindingar stendur rekstur sveitarfélags- ins á traustum fótum, enda tekjuhliðin sterk. Sveitarfélagið hefur alla burði til að standa í skilum en rými til aukinna rekstrarút- gjalda og nýframkvæmda er tak- markað um þessar mundir“ segir Páll aðspurður út í fjárhags- stöðu sveitarfélags- ins. Hann segir að tekjustofnarnir séu sterkir en að sú stórframkvæmd sem sveitar- félagið ætti að líta til næst sé ný leikskólabygging á Neskaupstað enda hafi menn lengi stefnt að því að ljúka því verkefni en núna fari allur tíma til að „hag- ræða og velta við öllum steinum og því ekki hægt að tímasetja þá framkvæmd.“ Hann segist jafnframt ætla að gefa sér nægan tíma í að kynna sér starfsemi sveitarfélagsins og svo mun yfirfærsla á málefnum fatlaðra til sveitarfélaganna vera „helj- arstórt verkefni sem mun taka tíma að inn- leiða enda stór málaflokkur“. Páll Björgvin starfaði hjá sveitarfélaginu frá 2004- 2008 sem fjármálastjóri og þekkir því vel vinnu- staðinn og margt af því starfsfólki sem starfar á bæjarskrifstofunni. Hann telur sína reynslu sem fjármálastjóra sem og menntun koma til með að „nýtast mjög vel, sérstaklega varðandi endurfjár- mögnun og fjármögnun almennt“. Páll Björgvin hefur starfað sem bankastjóri Íslandsbanka á Austurlandi frá 2008. Nýr bæjarstjóri í Fjarðabyggð Líf og fjör í sveitinni Réttað var í Melarétt í Fljótsdalshreppi laugardaginn 18. september. Margt var um manninn og mátti sjá unga skólakrakka og ferðamenn kynna sér starfshætti landbún- aðarins. Hjörtur Kjerúlf réttarstjóri sagðist best geta trúað að á milli 3000- 4000 fjár hafi verið í réttinni og um 200 manns hafi litið við. Rollurnar þóttu álitlegar í Melarétt um síðustu helgi. Þessir fallegu hrútar hafa útlit Múlamanna er þeir komu úr göngum hér áður fyrr og ef til vill enn í dag. Ungir sem aldnir tóku vel á því þegar dregið var í dilka og vonandi eru upp- rennandi sauðfjárbændur í hópnum.

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.