Austurglugginn


Austurglugginn - 24.09.2010, Síða 9

Austurglugginn - 24.09.2010, Síða 9
 Föstudagur 24. september AUSTUR · GLUGGINN 9 Fyrsta haustlægðin gekk hér yfir með úrhellisrigningu og roki. Veðrið var svo slæmt að hún kisa í næsta húsi sem kemur alltaf að heimsækja okkur, sást ekki. Það fór ekki á milli mála að sumarið var að kveðja. Ég horfi út um gluggann hjá mér og sé yfir fótboltavöllinn þar sem verið er að taka niður mörkin og allt sem minnir á leiki sumarsins. Börnin sem mæta í skólann núna eru í sögulegu lágmarki eða 65 börn en fyrir tæpum áratug voru þau um 120. Aðeins 5 börn fermdust hér í vor, en á árum áður voru þau oftast 20-30. Unglingarnir okkar fara í fram- haldsskóla vítt og breitt um landið. Námsmöguleikar eru óteljandi og þetta unga fólk fer og leitar að tækifærunum til að byggja á fram- tíð sína. Mér finnst þegar ég horfi á eftir þessum hóp að ekki sé möguleiki fyrir þau að snúa aftur heim, því hér heima bíður engin atvinna fyrir þau. Það er venja þeirra sem mynda meiri- hluta í bæjarstjórn að senda kjós- endum langar greinagerðir um það sem þeir ætla að koma í verk á kjör- tímabilinu. En er þá ekki gott að líta til baka og sjá hvað gert hefur verið á sl. tveimur kjörtímabilum sjálfstæð- ismanna hér í bæ. Ég man hreinlega ekki eftir neinu! Ég tek eftir því að golf- völlurinn hélt upp á 10 ára afmælið nýlega og LungA hélt líka upp á 10 ára afmæli sitt, þetta eru plúsarnir sem urðu til áður en sjálfstæðis- menn tóku hér völdin. Þegar ég horfi á LungA, þá er ótrúlegt hvað þeir hafa auglýst bæinn vel og dregið að fjölda gesta. Og ég vil halda áfram, því Karlinn í tunglinu, Tækniminjasafnið, Bryggjuhátíðin, Listaháskólinn og fleiri hafa gert bæinn að því sem hann er í dag og unnið mikið og jákvætt auglýsingastarf. Kannski var stærsta verkefnið samt Norræna og móttaka þeirra fjöl- mörgu ferðamanna sem með henni koma. Grein Ásmundar Ásmundssonar í Austurglugganum 20. ág. sl. kallaði því fram hörð viðbrögð hjá mér eins og fleirum. Magnús Guðmundsson skrifaði harðorða grein til andsvara í Austurgluggann 3. sept. sl. og ég vitna í grein Magnúsar þar sem hann segir; “Á.Á. setur sig í sæti þess sem situr í miðju alheims, deilir þaðan og drottnar sbr. þessi orð hans; Reynsla og þekking Seyðfirðinga af Norrænu og annarri ferðaþjónustu yrði kærkomin í Fjarðabyggð og sjálfsagt að glutra henni ekki enda þyrfti það ekki að koma til sökum þess að hér eru næg húsnæði og grundvallarþjónusta til staðar sem þeir aðilar færu ekki varhluta af flytt- ust þeir með ferjunni”. Maður verður að staldra hér við og skilja að þetta er meira en orðin tóm, þetta er beinlínis árás á bæinn okkar. Þegar ég hugsa um hættuna sem steðjar að Norrænu, þá hvarflar að mér, þó allir segi að þetta geti ekki gerst, að ferjan fari héðan. Þegar ég horfi á allt sem búið er að hirða burtu úr bænum, þá sé ég ekki annað en að þetta sé næsta skref, að missa Norrænu og því miður treysti ég ekki bæjarstjórninni til að sigra í þessu máli, ef af verður og það sama gildir um sjúkrahúsið, ég held það sé heill hópur sem vill gleypa það, ef þeir gætu. Fyrir 35 árum þá var Jónas Hallgrímsson hér bæjarstjóri og í fararbroddi þeirra sem stóðu fyrir því að við fengjum ferjuna hingað. Auk hans voru það helst Theodór Blöndal og Færeyingarnir sem áttu þar hlut að máli. Þetta voru menn sem hugsuðu um framtíð bæjarins og að byggja hann upp. Nú vitum við öll um framvindu þeirra mála. Í dag er þetta stórfyrirtæki vegna framsýni og dugnaðar þessara manna. Nú geta líka stærstu skemmtiferðaskip lagst hér að bryggju og þeim fjölgar ár frá ári. En íbúum bæjarins fjölgar ekki að sama skapi, heldur hefur okkur fækkað úr tæp- lega 800 íbúum í tæp- lega 700 á innan við áratug. Ég veit um 5 fjöl- skyldur sem farið hafa úr bænum undanfarið og ég sé ekki að þær komi aftur. Fáir hafa komið í þeirra stað. En mig langar til að rifja upp hvernig þetta var hér í gamla daga. Seyðisfjörður var hér áður fyrr alltaf í fararbroddi. Sæstrengurinn kom í ágúst 1906. Rafveitan hér var ein sú fyrsta á landinu. Gamla sjúkrahúsið var upphaflega tekið í notkun 1. júlí 1898. Síldarbræðslan var byggð af heimamönnum til atvinnusköpunar en þar er enga vinnu lengur að hafa. Fiskvinnslan var líka byggð upp af heimamönnum og hún er sá vinnu- staður sem staðið hefur sig einna best hingað til. Við höfðum lögreglustöð sem var lokað og breytt í áfengisverslun. “Pósthúsinu var líka lokað og það selt. Nú liggur fyrir að hótelið verði lokað í vetur. Ég veit að margir segja; „við réðum ekkert við þetta.“ EN þá segi ég; Til hvers er bæjar- stjórn ef hún er ekki fær um að berjast í svona málum? Hvað hafa þeir gert sl. átta ár? Hafa þeir t.d. fjarlægt allt ruslið sem þeir ætluðu að fjarlægja í sumar? Ég hef ekki séð að neitt af því hafi horfið. Mér finnst flestir bæjarbúar hirða vel um sitt, það eru bara nokkrir slóðar sem komast upp með allt. Það var enginn dans á rósum fyrst er ég flutti hingað á mestu kreppu- árum sem gengið hafa yfir landið. Ég dáist enn að þeim mönnum sem lyftu þessum bæ upp eftir það tímabil. Það var svo mikið stórvirki að við sættum okkur ekki við að því sé öllu glutrað niður. Okkur vantar núna fleiri fram- takssama menn og konur sem þora að gera það sem þarf að gera okkur til framdráttar. Verðum við ekki að vona að eitthvað ljós sé í myrkrinu og við fáum kap- alverksmiðju með nokkrum tugum starfa eða eitthvað annað álíka gott atvinnutækifæri fyrir unga velmennt- aða fólkið okkar ? Karólína Þorsteinsdóttir Seyðisfirði Skiptar skoðanir ! Bréf til blaðsins Þungir þankar Sigurjóns Bjarnasonar Umhverfið og uppbyggingin Faðir minn var ýtukall. Hann byrjaði á túninu heima. Hvanngrænu túninu með óteljandi þúfnakollum breytti hann í moldarflag. Þá fór hann út fyrir túnið, hvolfdi við mýr- lendi, gerði þar nýjan farveg fyrir á, svo að hún sameinaðist ann- arri slíkri. Að þessu loknu lagði hann „í útrás“. Skar ljót sár í hlíðar fjallanna, svo að þau verða aldrei söm. Þar eru nú vest- firskir bílvegir. Í byrjun býsnaðist sumt eldra fólk yfir þessum tiltektum, en sá þó fljótt að hér var hafin uppbygging, sem ekki varð stöðvuð. Upp úr sléttum mold- arflögum spruttu ný grös harla fljótt. Hið stækkaða vatnsfall framleiðir rafmagn og er grundvöllur búsetu í mínum fornu heimahögum enn í dag. Og hundagöturnar, sem lágu á milli bæjanna, varla færar nema gangandi fólki, urðu fáum saknaðarefni þegar bílarnir fóru að renna um sveitina. Á okkar tímum finnst mér stundum að tortryggni gagnvart framförum sem byggja á röskun lands gangi út í öfgar. Hverju er verið að fórna og hvað fáum við í staðinn? „Óafturkræf náttúruspjöll“ er sagt. Má vera, en eru ekki allar framkvæmdir mann- anna óafturkræfar? Og ef við þurrkum út verksummerki síðar, erum við þá ekki að spilla menningarverðmætum? Fornminjum? Mér er auðvitað ekki sama þó að landinu mínu sé djöflað um að þarflausu. Kannske má spyrja um þörfina, en röksemdin „það þarf ekki“ er fánýt þegar hugað er að framförum. Nú höfum við hins vegar nýtt verð- mætamat. Við höfum lagt drög að friðlýsingu stórra svæða landsins. Sem betur fer er margur bletturinn enn ósnertur af mannvirkjum og fágæt fyrirbrigði náttúrunnar ber að vernda. En skipuleg vernd er líka framkvæmd. Það að setja reglur um vernd og tak- markaða umferð er breyting frá því sem var. Við erum að auka verðmæti landsins og gæða þess. Vissulega er hér vandratað meðalhófið, en öll erum við sammála um að halda veginn fram á við. Það gerum við fyrst og fremst með því að vega saman auð- legð þá sem í ósnortinni náttúru felst og það hagræði sem til lengri tíma litið skapast með áframhaldandi upp- bygginu, sem óhjákvæmilega verður alltaf á kostnað móður náttúru með einum eða öðrum hætti. Sumri hallar, hausta fer, heyri snjallir ýtar, hafa fjallahnjúkarnir húfur mjallahvítar. Höf: Illugi Einarsson, Reykjahlíð. Karólína Þorsteinsdóttir 1000 laxar komnir á land í Breiðdalsá | Loksins rauf Breið- dalsá 1000 laxa múrinn en það hefur aldrei náðst áður, en tvisvar sinnum hefur áin farið yfir 900 laxa áður. Frábær veiði hefur verið í ánni í og einni vikunni komu 32 laxar á land. Þar af voru þrír sannkall- aðir stórlaxar eða 102 cm., 98cm og 93 cm. fiskar sem voru settir í klak eða sleppt aftur. Skólafærninámskeið og for- eldramappa | Fyrri hluti skóla- færninámskeiðs fyrir foreldra barna sem eru að byrja í 1. bekk Nesskóla var haldið þriðjudaginn 14. sept- ember. Foreldrafélag Nesskóla kynnti við þetta tækifæri starfsemi félagsins og mikilvægi foreldra- samstarfs. Foreldrafélagið gaf for- eldrum nýnemanna möppu sem kölluð hefur verið Skólaforeldri Nesskóla og inniheldur efni sem gagnast getur foreldrum sem eru að stíga sín fyrstu skef sem skóla- foreldrar.

x

Austurglugginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.