Austurglugginn


Austurglugginn - 24.09.2010, Side 11

Austurglugginn - 24.09.2010, Side 11
 Föstudagur 24. september AUSTUR · GLUGGINN 11 Sagan fram að þessu ... Litli-Úlfur fer langt upp í fjöllin til að vinna bug á sorginni við föðurmissinn. Hann dreymir draum þar sem dýrin tala við hann og veita honum huggun. Hann hittir einnig Litla fólkið. Þetta hjálpar honum að takast á við áfallið. Litli hesturinn Næsta morgun vaknaði Litli-Úlfur endurnærður. Hann borðaði morg- unverðinn með góðri lyst. „Matarlystin er mikil miðað við þig svona lítinn,“ sagði móðir hans með stríðnistón. Hún fylgdist með syni sínum borða. Augu hennar voru full væntumþykju í garð sonarins. „Með degi hverjum líkistu meir föður þínum,“ sagði móðir hans. Í fyrsta sinn í langan tíma brosti Litli- Úlfur til hennar. „Veðrið er svo gott í dag. Því ferðu ekki að heimsækja eldri bróður minn og frænda þinn?“ lagði móðir hans til. „Hann hefur spurt hvers vegna þú komir ekki í heimsókn til hans.“ „Það er ekki það að ég vilji ekki hitta hann,“ sagði Litli-Úlfur. Litla-Úlfi leið ekki vel. Hann gat ekki fundið orð til að lýsa fyrir móður sinni hvernig honum hafði liðið. „Hestakaupmaðurinn er að koma með nokkra nýja hesta,“ sagði móðir hans. Hún vissi hve hrifinn sonur hennar var af hestum. „Mig langar til að sjá hestana,“ sagði Litli-Úlfur hikandi en ákvað sig svo: „Ég ætla að heimsækja frænda minn í dag.“ Móðir Litla-Úlfs kinkaði kolli og var ánægð. „Viltu færa konu bróður míns þetta,“ sagði móðir Litla-Úlfs og rétti honum poka með sætum, þurrkuðum ávöxtum. „Komdu heim fyrir kvöldmat.“ „Já, mamma,“ svaraði Litli-Úlfur. Af snöggri þörf tók hann utan um móður sína. „Sonur minn,“ hvíslaði móðir Litla- Úlfs. Hún strauk drengnum um hárið. „Farðu nú,“ sagði móðir hans og þótt- ist vera höst. Litli-Úlfur fór fótgangandi að bæ frænda síns. Frændi hans var mjög ríkur. Hann átti fallegt hús. Hann átti dýr og þar með talin mörg hross. Hann hafði heyrt að frændi hans ætti bestu hestana í landinu! Á sama tíma og Litli-Úlfur var á leið- inni til frænda síns, nálgaðist hesta- kaupmaðurinn með hestana sína og hafði þá í langri halarófu. Hann átti mörg falleg hross og þar á meðal ynd- islegan lítinn hest. Hesturinn var hnotubrúnn á litinn með silkimjúkt fax. Hesturinn hafði reistan makka. Augun voru dökk og greindarleg. Í augum hans mátti sjá mikla hryggð. Gamall, gráleitur burðarklár tölti við hlið Litla hestsins. „Hvað er að þér?“ spurði gamli hesturinn. „Ég hef heimþrá,“ svaraði Litli hest- urinn. „Það er svo fallegt þar! Hvert sem litið voru grösug tún. Ég var vanur að hlaupa um túnin og leika mér alla daga með bræðrum mínum og systrum.“ „Þetta hljómar vel,“ viðurkenndi gamli hesturinn. „Hvernig lentirðu svo hér?“ „Ég veit það ekki,“ stamaði Litli hesturinn. „Það gerðist allt svo hratt. Eina mínútuna hljóp ég um frjáls en þá næstu var tvífætt vera að hlaupa á eftir mér. Síðan fann ég eitthvað þrýstast um hálsinn á mér. Það var hræðilegt!“ „Mannfólkið!“ gamli hesturinn spýtti orðunum út sér. „Það voru mennirnir sem tóku þig. Menn! Þeir eru allir vondir. Það er það sem kom fyrir þig. Þeir fanga þig og gera þig að þræl. Það er mín skoðun að það fyrirfinnist ekk- ert sem kalla má góðan mann.“ Litli hesturinn fann óttahroll fara niður hrygginn. Hann hneggjaði lágt. „Eru allir menn slæmir?“ spurði hann. „Hver og einn einasti þeirra!“ svar- aði gamli hesturinn. „Stórir, litlir, rauðir, hvítir. Liturinn skiptir ekki máli. Þeir eru allir eins! Einfaldlega ekki góðir!“ „Ég vil ekki verða þræll!“ sagði Litli hesturinn grátandi. „Er ekkert sem ég get gert?“ „Leyfðu þeim ekki setjast á bak þér,“ ráðlagði gamli hesturinn. „Ef þeir komast nærri þér, prjónaðu, austu og sláðu eins og þú getur. Láttu eins og ótemja ef þú þarft. Hvað sem þú gerir, leyfðu þeim ekki að fara á bak þér!“ „Hey, hestur! Hott, hott!“ æpti hesta- kaupmaðurinn og sló písknum sínum á bakið á burðarhestinum til þess að fá hann til að fara hraðar. Gamli burðarklárinn horfði á mann- inn. Það var hatur í augum hans. „Skilurðu hvað ég á við?“ hvæsti gamli hesturinn. „Djöfullegir, hreinir djöflar.“ Hestakaupmaðurinn var nú kominn með hestana sína að bóndabýlinu. Kaupmaðurinn rak hrossin í hesta- réttina. Hann gekk yfir til frænda Litla-Úlfs. „Ég á fínasta hrossakjöt fyrir þig,“ sagði hestakaupmaðurinn. „Það kemur í ljós,“ svaraði frændi Litla-Úlfs. „Frændi, má ég fara og horfa á hest- ana?“ spurði Litli-Úlfur. „Já, það máttu,“ sagði frændi hans. „Varaðu þig á gamla burðarklárnum,“ kallaði hestakaupmaðurinn á eftir Litla-Úlfi. „Hann bítur!“ Litli-Úlfur fór yfir að réttinni. Litli hesturinn og burðarklárinn stóðu einir við fjarri endann. Drengurinn kom strax auga á litla fallega hestinn. Litli-Úlfur opnaði hliðið og gekk að Litla hestinum. „Að sjá þig!“ söngl- aði Litli-Úlfur. Litli-Úlfur færði sig nær og rétti fram höndina og lét lófann snúa upp og að Litla hestinum. „Manstu hvað ég sagði þér!“ sagði gamli hesturinn. Allt í einu fór Litli hesturinn upp á afturfæturna og byrjaði að slá um sig af krafti með framfótum. „Frændi litli,“ hrópaði gamli frænd- inn. „Gættu að þér!“ Litli hesturinn beindi hófum sínum niður á við af öllum kröftum og miðað beint á Litla-Úlf. Næsti kafli: Andlega skyldir Myndskreytingar: Vicky Wallace • © 2004 Mary Maden. Öll réttindi áskilin. • Mary Maden er verðlaunahöfundur. Sjá nánar á: www.marymaden.com Austurglugginn tekur ríkan þátt í verkefninu Lesum hvert fyrir annað og birtir í þessu blaði 2. kafla í framhaldssögunni. Það er vonandi að fjölskyldur kunni vel að meta þennan lið sem stendur tímabundið yfir. Markmiðið er að efla lestrarkunnáttu og fjölga samverustundum fjölskyldunnar. Sláturhúsinu á Egilsstöðum, sími 899 5715. http://mmf.egilsstadir.is, mmf@egilsstadir.is. AusturlandsmiðstöðvarMenningar FIDGET FEET loft- fimleikanámskeið FIDGET FEET er írskur loftfimleika leikhúshópur sem verður á Egilsstöðum 4. - 16. október nk. Þau munu halda námskeið fyrir fullorðna 4.-8. október og fyrir 8-15 ára börn 11.-12. október. Einnig mun meðlimur hópsins, Jym Daly halda Invoke Music tónlistarnámskeið og djamm. Haldin verður nemendasýning 9. október og svo munu FIDGET FEET halda sýningu á leikverki sínu MADAM SILK 15. október. Miðasala er hafin en miðinn kostar 2.200 kr. Loftfimleikanámskeiðin fara fram í Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum. Skráning er hafin!!!! Nánari upplýsingar og skráning: mmf@egilsstadir.is og á heimasíðu MMF: http://mmf.egilsstadir.is Lesum hvert fyrir annað Goðsögnin um tár Litla hestsins Saga í 12 köflum eftir Mary Maden Fall er fararheill – KFF leikur í 2. deild að ári Eftir síðustu leiki 1. deildar í knatt- spyrnu karla er ljóst að Fjarðabyggð mun leika í 2. deild sumarið 2011. Síðastliðinn laugardag gat félagið bjargað sér frá falli með því að ná fram jafnhagstæðum úrslitum og Grótta. Grótta gerði hinsvegar jafnt- efli við Njarðvík á meðan KFF tap- aði 9-1 gegn Þór á Akureyri. Það er óhætt að segja að síðasti leikur liðsins hafi verið mikil vonbrigði sem og allt tímabilið en liðið þurfti að glíma við mikil meiðsli. Björt framtíð yngri flokka Þó svo eðlilega séu það mikil von- brigði að flaggskip félagsins sé fallið um deild þá tefldi Fjarðabyggð fram sameinuðum liðum með Leikni í öllum yngri flokkum félagsins, eins og gert hefur verið síðastliðin tvö sumur. Um 230 börn tóku þátt í hinum ýmsu opnu mótum auk Íslandsmóta. Á Íslandsmótum yngri flokka var sam- einað lið KFF og Leiknis skráð með 14 lið til leiks og komust 7 þeirra í úrslitakeppnir. Efnilegir flokkar Gríðarlega gott starf er unnið í yngri flokkunum og er Fjarðabyggð að fá upp sterka leikmenn í karla og kvennaflokki. Árangur 2. flokks kk. er það sem stendur upp úr í afrekum líðandi sumartímabils.Liðið vann sig upp um deild og þar er klárlega um marga efnilega leikmenn að ræða. Þá varð 3. flokkur karla Vísa-bikarmeistarar NL/AL og náðu 2. sæti í C-deild, urðu Rey-Cup meistarar B-liða og Fjarðaálsmeistarar. 3. flokkur kvenna hafnaði í 2. sæti í Vísa-bikar NL/AL og hömpuðu Fjarðaálstitlinum. Í 4. flokki karla náðu bæði A- og B-lið að komast í úrslit Íslandsmótsins. 4. flokkur kvenna varð Pæjumótsmeistari B-liða á TM pæjumótinu á Siglufirði. 5. flokkur karla komst í úrslit í A- og B-liðum. 5. flokkur kvenna varð Fjarðaálsmeistari í ár og fékk Háttvísiverðlaun á Símamótinu í Kópavogi. A- lið 6. flokks karla varð í 2. sæti á Íslandsmótinu. B – lið 6. flokks kvenna hafnaði í 2. sæti á Íslandsmótinu. 7. flokkur karla og kvenna tóku þátt í nokkrum opnum mótum og þá var liðunum oft skipt eftir hverfum. Nokkuð góður árangur náðist á knattspyrnuvellinum í sumar hjá þessum flokki.

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.