Austurglugginn - 24.09.2010, Side 12
Það er algengt hér á landi
að stilla öllum ágrein-
ingsmálum þannig upp að
þú sér annað hvort með eða
á móti. Í þrætubókarlist
Íslendingsins virðist ekki til neitt sem heitir
málamiðlun, þótt skoðanir manna séu skiptar
og flestir hafi eitthvað til síns máls.
Umræðan um málefni áliðnaðarins á Íslandi
hefur verið þessu marki brennd og gengið
út frá því að annað hvort séu menn með, eða
á móti álverum. Eru menn með eða á móti
loðnubræðslum? Með eða á móti gagnaverum,
ferðaþjónustu eða járnsmiðjum? Þurfa menn
yfirhöfuð að vera með eða á móti ákveð-
inni atvinnustarfsemi? Áliðnað er að finna í
mörgum löndum og heimsálfum og þar er
jafnframt að finna margvíslega aðra atvinnu-
starfsemi. Þar virðast menn ekki telja að eitt
útiloki annað.
Þeir sem eru andvígir álverum ræða mikið
um að það sé hægt að gera eitthvað annað
hér, en framleiða ál og það er hárrétt. Svo er líka
hægt að framleiða ál og gera ýmislegt annað
að auki, en um það er minna rætt. Meðal þess
„annars“ sem bent hefur verið á að hægt sé
að gera á Íslandi og Björk Guðmundsdóttir
söngkona lýsti í viðtali við Morgunblaðið í
sumar, er að selja vatn í orku- og tedrykki,
framleiða barnamat, hugbúnað ýmiss konar
s.s. veðurspárforrit, búa til rafmagnslyftara fyrir
ruslabíla og ýmislegt fleira og nýta jarðvarma
í heilbrigðis- og ferðaþjónustu.
Þetta eru mjög góðar hugmyndir og erf-
itt að sjá hvernig áliðnaður getur staðið
í vegi fyrir því að unnt sé að hrinda þeim í
framkvæmd. Er til dæmis ekki hægt að gera
veðurspárforrit af því hér eru álver? Eða fram-
leiða barnamat? Áhugamenn um að hér verði til
fleira en álver ættu að einhenda sér í að byggja
upp atvinnustarfsemi eins og þarna er lýst, því
það er brýnt að skapa ný störf í landinu.
Hugleiðing
Erna Indriðadóttir
Írski loftfimleika-leikhúshópurinn Fidget Feet aerial theatre og Drapés Aériens er
væntanlegur til Egilsstaða 1. október næstkomandi. Fidget Feet og Drapés Aériens
koma til með að verða með námskeiðahald og sýningar í Íþróttamiðstöðinni á
Egilsstöðum frá 4.- 12. október. Fidget Feet hópurinn skapar stórbrotnar sýningar
af nútíma sirkus og útiverk þeirra eru glæsileg blanda af fólki og leikmunum þar
sem þau nota stóra byggingakrana, tré, háar byggingar og báta. Fidget Feet sérhæfa
sig einnig í loftfimleika-dansi sem þau sérsníða inn í ákveðin rými fyrir leiklistarhá-
tíðir og aðrar stórar hátíðir. Drapés Aériens er hópur listamanna sem sérhæfir sig í
loftfimleika-verkefnum þar sem þau nota sérstök loftfimleika textílefni.
Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs og miðstöð sviðslista á Austurlandi býður lista-
mönnunum til Íslands en verkefnið er styrkt af Menningarráði Austurlands, Alcoa,
Eimskip, Bílaleigu Akureyrar, Menningarráði Írlands, Menningarráði Donegalsýslu
Írlandi og Fljótsdalshéraði.
Boðið verður upp á fjölbreytt námskeið tengd loftf imleikum í dansi, æf ingum og sviðsgerð og verða þau fyrir fullorðna jafnt sem unglinga og börn.
Námskeið í loftfimleika leikhúsi