Austurglugginn


Austurglugginn - 11.11.2021, Side 6

Austurglugginn - 11.11.2021, Side 6
6 Fimmtudagur 11. nóvember AUSTUR · GLUGGINN Það voru ekki allir bjartsýnir fyrir tíu árum síðan á að hægt væri að breyta úr sér gengnu gömlu frystihúsi í fámennu sjávarþorpi í miðstöð á sviði menningar, fræðslu og atvinnusköpunar með byggðaþróun að leiðarljósi. Efasemdarraddirnar þögnuðu þó tiltölulega fljótt og í sumar sem leið hélt Sköpunarmiðstöðin á Stöðvarfirði upp á tíu ára afmælið. Það hreint ekki lítið afrek eins og hver sá sem heimsækir miðstöðina í dag getur vitnað um. Búið er að breyta, lagfæra og snyrta stóran hluta þessa mikla 2800 fermetra húss og það mikið til í hreinni sjálfboðavinnu og fyrir lágmarks fjármagn. Nýtt þak er loks komið á húsið en sá áfangi var nauðsynlegur til að hægt væri að halda áfram nauðsynlegum breytingum og endurnýjun innandyra. Þó allir aðstandendur hafi lyft grettistaki hingað til er þó nóg að ógert enn. Tíu árin eru bara byrjunin á einhverju stóru sem fært hefur líf á kajann á Stöðvarfirði að nýju. Ekki aðeins lífið sem fylgir starfseminni í Sköpunarmiðstöðinni heldur trekkir líf þar forvitna ferðamenn og hópa á borð við nemendur Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu sem voru í vettvangsferð í miðstöðinni þegar Austurgluggann bar að garði. Upphafið Þó að Una Sigurðardóttir og eiginmaður hennar, Vincent Wood, sinni einu og öllu í miðstöðinni nú og hafi gert síðastliðin ár þá voru það Rósa Valtingojer og Zdenek Patak sem komu miðstöðinni á fót árið 2011. Hugmyndin frá fyrsta degi var að ná saman fólki, hugmyndum, tólum og tækjum undir eitt þak til þess að koma á nokkurs konar samstarfi milli lista, hönnunar og handverks. Með það að leiðarljósi leið ekki á löngu áður en hafist var handa við að leigja út vinnustofur til bæði innlendra og erlendra listamenn og Unu telst til að nú hafi alls rúmlega 300 listamenn nýtt sér aðstöðuna í miðstöðinni til lengri eða skemmri tíma. Þessi þátttaka listamannanna hefur frá upphafi verið mikilvægur tekjustofn miðstöðvarinnar en hver og einn greiðir mánaðarlega leigu fyrir afnot af húsinu. Listamenn geta hvort sem er unnið í einkarými eða margir saman í hinum ýmsu sérhæfðu rýmum hússins. Hér eru til dæmis bæði fín smíðastofa og vel búið keramikverkstæði og ágætur tónleika- og samkomusalur. Í ofanálag, og líklega rúsínan í pylsuendanum, er svo glæsilegt og fullkomið hljóðver sem staðsett er í því sem áður var síló fiskvinnslunnar. Þaðan kemur líka nafnið hljóðversins Stúdíó Síló. Fjöldi tónlistarfólks hefur notfært sér stúdíóið gegnum tíðina og hver sem áhuga hefur getur leigt tíma í hljóðverinu. Öll sem eitt Eftir að Rósa og Patak minnkuðu smám saman afskipti sínum af starfseminni lá beinast við að Una og Vincent tækju við keflinu en bæði höfðu þá starfað í miðstöðinni sem verkefnastjórar frá árinu 2014. Á þessum tíma var smá tómarúm um tíma að leiða verkefnið áfram að sögn Unu en hún ítrekar að Rósa Valtingojer hafi verið með þeim á þessari vegferð allt til ársins 2020. „Þróun er kannski besta lýsingin á því hvernig það æxlaðist að við tókum við rekstri, uppbyggingu og framþróun Sköpunarmiðstöðvarinnar. Þetta er þróun sem hófst fljótlega eftir að við hófum þátttöku í verkefninu vorið 2014. Í byrjun árs 2016 hafði ég tekið við allri umsýslu og skipulagi varðandi rekstur félagsins og hefur sú deild verið á minni könnu allar götur síðan. Þau ár sem við störfuðum þrjú saman að verkefninu, ég, Vinny og Rósa, störfuðum við þétt og samheldið saman og unnum sem ein manneskja. Að mínu mati var þetta fallegt samstarf og erum við ákaflega stolt af þeirri samstöðu og samheldni sem einkenndi það starf þrátt fyrir það mikla álagi sem fólgið er í því að bera fram þetta verkefni.“ Ekki hátt lifað Það er eðlilega dýrt að reka stóra sköpunarmiðstöð en hvernig er það Stærri hópar gesta eins og unglinganna úr Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu eru orðnir nokkuð algengir í Sköpunarmiðstöðinni og Una Sigurðardóttir tekur mót þeim öllum. Mynd: AE Löng og ströng vegferð og nóg eftir enn Sköpunarmiðstöðin á Stöðvarfirði tíu ára Mynd: AE

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.