Austurglugginn - 11.11.2021, Blaðsíða 7
AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 11. nóvember 7
hægt þegar styrkir og framlög eru af
skornum skammti ár eftir ár?
„Við lifum til dæmis á því að
framleiða leirvörur,“ útskýrir Una.
„Þá höfum við tekjur af hljóðverinu
okkar jafnframt því sem við gerum
við og seljum ýmsan rafeindabúnað.
Við lifum ekkert sérstaklega hátt.
Tekjurnar af starfseminni hafa ekki
verið nógar til að rými skapist til að
greiða laun. En gegnum styrkveitingu
frá Uppbyggingarsjóði þá höfum við
getað skapað hálft stöðugildi hér
innanhúss og síðan náðum við að
safna saman í sérstakan launasjóð og
bjuggum til eina stöðu sem borgar
260 þúsund á mánuði.
Möguleikar til að móta
framtíðina
Una er bókstaflega að springa
úr hugmyndum um næstu skref
fyrir miðstöðina en eins og oft er
raunin vantar fjármagn til. Una
segir það lítt auðveldara að leita
fjármagns nú en það var í upphafi
þrátt fyrir að miðstöðin sé tíu ára
og sé komin á kort allra sem hafa
með styrkveitingar að gera. „Það
rær enginn þínum bát og ekkert
kemur af sjálfum sér, en vissulega
er það auðveldara nú en áður þar sem
verkefnið hefur sannað sig á margan
hátt og þekking og skilningur á
mikilvægi þess hefur skapast.”
Fjárframlög hafa verið af
skornum skammti nánast frá
stofnun en það breyttist 2019
þegar miðstöðin hlaut 57 milljóna
króna fjárframlag frá Samgöngu-
og sveitarstjórnarráðuneytinu.
Það langstærsti styrkurinn sem
Sköpunarmiðstöðin hefur nokkru
sinni fengið. Sveitarfélagið
Fjarðabyggð bætti svo við 14
milljóna króna viðbótaframlagi við
styrk ríkisins.
„Það var stórkostlegt að fá þann
stuðning og við eigum rosalega gott
samstarf við núverandi sveitarstjórn.
Þau hafa sýnt verkefninu mjög
mikinn áhuga og sýna að þau kunna
að meta gildi þessa fyrir svona
byggðalag eins og Stöðvarfjörð.
Svona lítill bær getur lagst í eyði
á skömmum tíma. Fólki fækkaði
um helming hér þegar frystihúsið
lokaði og í dag er meðalaldur í
bænum mjög hár. Þannig að þetta
er svona bær sem þarf mjög mikið
að móta sér stefnu til framtíðar.
Sköpunarmiðstöðin getur leikið
stórt hlutverk í því.“
Safn og heitur sopi
Hugsanlegt er að á næsta ári taki
til starfa lítil kaffibrennsla og í
kjölfarið kaffihús í einum hluta
hússins en lítil kaffibrennsla hefur
sótt um að taka á leigu einn hluta
byggingarinnar þaðan sem útgengt
er á gamalt fiskiplanið. Þar um að
ræða kaffibrennsluna Kaffi Kvörn.
Unu stendur líka hugur til
að nýta hluta húsnæðissins sem
enn er ónýttur undir nokkurs
konar safn eða sýningu um hinn
stórmerka fornleifauppgröft að Stöð
innarlega í Stöðvarfirði. Þar hafa
fornleifafræðingar unnið sleitulítið
við uppgröft síðan árið 2017, margt
forvitnilegt fundist og kenningar
jafnvel verið uppi um að staðurinn
geti jafnvel verið eldri en landnám
Ingólfs Arnarssonar.
„Sú hugmynd er á byrjunarstigi,“
segir Una. „Uppgröfturinn hefur leitt
margt merkilegt í ljós sem gaman
væri að gera skil með einhverjum
hætti hér í bænum. Einhvers konar
sviðsljós á hvað hefur fundist á
svæðinu og taka svona utan um
sögu staðarins, styrkja sjálfsmynd
hans og rætur. Eins líka að skapa
áfangastað ferðamanna sem hefði
jákvæð afleidd áhrif á aðra verslun
og þjónustu í bænum.“
Listsköpun í stað hafna og
sláturhúss
Einn sá aðili sem vel hefur fylgst
með vexti Sköpunarmiðstöðvarinnar
frá fyrsta degi er Signý Ormarsdóttir,
verkefnastjóri hjá Austurbrú.
Signý er ekki í vafa um gagnsemi
starfseminnar á Stöðvarfirði.
„[Það] skiptir auðvitað máli
fyrir nærsamfélagið að svona
starfsemi dafni. Hér áður fyrr voru
frystihúsin, hafnirnar eða sláturhúsin
miðjan í hverju samfélagi en með
breyttum lífsháttum hefur þetta
breyst á mörgum stöðum og
menningarmiðstöðvar af ýmsum
toga hafa tekið þetta hlutverk
að sér. Þetta hefur til dæmis
gerst á Stöðvarfirði og í gegnum
Sköpunarmiðstöðina kemur fólk
með ýmis konar reynslu og sýn sem
við getum notfært okkur og lært af.“
„En það má líka skoða þetta í
miklu stærra samhengi. Tilvera
Sköpunarmiðstöðvarinnar er í
grunninn byggð á skapandi hugsun
og það skiptir mestu máli. Við lifum
á tímum þar sem menn munu leita
nýrra lausna á alls konar málum m.a.
til að bregðast við loftslagsvá. List
byggir á skapandi hugsun og hún
er forsenda nýsköpunar og þannig
tengist þetta allt í mínum huga.“
AE
Sköpunarmiðstöðin er risastórt hús eða alls 2800 fermetrar. Það tekur drjúgan tíma að skoða
allt húsið svo vel sé. Mynd: AE
Una Sigurðardóttir í einni af vinnustofum miðstöðvarinnar. Mynd: AE
Markmið Sköpunarmiðstöðvarinnar:
• Að börn og ungmenni á Austurlandi hafi aðgang að fjölbreyttri listmenntun í heimabyggð.
• Að íbúar Austurlands hafi aðgengi að fjölbreyttum og vönduðum tónlistar- og listviðburðum
í heimabyggð.
• Að vera alþjóðlegs lista- og tónlistarfólks á svæðinu sé tryggð, að fjölþjóðlegir
menningarstraumar leiki um fjórðunginn og íbúum svæðisins gefist kostur á að mynda tengsl
við lista og tónlistarfólk hvaðanæva að.
• Íbúar Austurlands hafi aðgang að faglegri þjónustu og aðstöðu fyrir hvers kyns sköpun og
iðkun á sviði lista og hönnunar í heimabyggð.
• Að byggja upp vettvang með sérstaka áherslu á atvinnuþróun á sviði skapandi greina,
þjónustu og smáiðnaði þeim tengdum, sem og atvinnusköpun sem hlýst af hvers kyns nýtingu
og úrvinnslu á hráefnum og auðlindum Austurlands.
• Að styrkja og þróa sjálfsmynd svæðisins sem framsækins menningarsamfélags.