Austurglugginn


Austurglugginn - 02.12.2021, Blaðsíða 9

Austurglugginn - 02.12.2021, Blaðsíða 9
Um áramótin hækka taxtar almennra kjarasamninga um 25.000 krónur á mánuði en 17.250 krónur á mánuði til þeirra sem eru á launum umfram taxta. Sú hækkun tekur jafnframt til iðnaðarmanna á töxtum. Aðrir kjaratengdir liðir hækka frá sama tíma um 2,5% Þessir kjarasamningar gilda fyrir iðnaðarmenn, verslunar- og skrifstofufólk, verkafólk á almennum vinnumarkaði og loks þjónustusamningurinn (vegna veitinga- gisti og greiðasölustaða, afþreyingarfyrirtækjum og hliðstæðir starfsemi). Auk þess var samið um launaþróunartyggingu sem getur hækkað laun til viðbótar verði hækkun á launavísitölu umfram ákveðinn launaflokk í kjarasamningi verkafólks. Þessi samanburður er gerður á desemberlaunum milli ára og liggur því niðurstaða ekki fyrir fyrr en í mars. Hagvaxtaraukinn Þessu til viðbótar var samið um hagvaxtarauka, sem tekur mið af að hækki verg landsframleiðsla á hvern íbúa umfram 1% njóti launafólks hækkunar í launum. Miðað er við að þetta liggi fyrir í lok apríl ár hvert á samningstímanum. Nú bendir ýmislegt til þess hagvaxtaraukinn muni skila launafólki einhverjum krónur í launaumslagið og er kominn töluverður titringur og áróður af stað í þjóðfélaginu bæði vegna almennu hækkunarinnar og hagvaxtaraukans. Það er með öllu ólíðandi þegar Samtök Atvinnulífsins og Seðlabankinn tala fyrir því að helst ætti launafólk að afsala sér umsömdum launahækkunum af því að atvinnulífið ráði ekki við hækkanirnar. Það er ekki farið fram á mikið – aðeins að staðið sé við gerða kjarasamninga. AFL Starfsgreinafélag hafnar þessum málflutningi enda var mikið fyrir því haft að ná kjarasamningum saman. Félagsmenn hafa þurft að taka á sig hækkanir á vöru og þjónustu að undanförnu og bíða umsamdra launahækkana þess vegna. Aðrir kjarasamningar Kjarasamningar félagsmanna sem starfa hjá ríkisstofnunum renna út 1. apríl 2023. Laun þeirra hækka þann 1. janúar n.k um 17.250 krónur á mánuði. Komi hagvaxtarauki til framkvæmda á almennum vinnumarkaði skulu teknar upp viðræður milli samningaaðila hvernig þær hækkanir skili sér inn til þeirra sem eftir ríkissamningum starfa. Kjarasamningur félagsins við sveitarfélögin gildir til 1. október 2023. Laun samkvæmt þeim kjarasamningi hækka 1 janúar n.k. um 25.000 krónur á mánuði og hafa sama ákvæði um hagvaxtaraukann og í ríkissamningi. Laun félagsmanna í Alcoa hækka um 5,8% þann 1.mars 2022. Kjarasamningar sjómanna eru lausir og engar viðræður í gangi milli samningsaðila. Engar hækkanir hafa komið á tryggingu, tímakaup né aðra kaupliði í þeim samningi frá 1. maí 2019. Samningar sjómanna runnu út fyrir tveimur árum síðan. Allir fjórir kjarasamningar félagsins við Samtök atvinnulífsins sem gerðir voru 2019 renna út þann 1. nóvember 2022. Fréttabréf AFLs 5. tbl. 2021 Dreift um allt Austurland Ábyrgðarmaður: Sverrir Albertsson Kjaramál Samtök atvinnulífsins og Seðlabankinn vilja hafa umsamdar launahækkanir af launafólki! Stjórn AFLs á fundi í nóvember. Hér að neðan eru desember- uppbætur reiknaðar miðað við 100% starf. Nánari útreikninga og upplýsingar má sjá á heimasíðu félagsins, www.asa.is. Venja er að desemberuppbót greiðist með nóvemberlaunum en í flestum kjarasamningum er tekið fram að uppbótina eigi að greiða í síðasta lagi 15. desember. Sjómenn fá ekki greidda des- emberuppbót skv. kjarasamningum. Desemberuppbót Starfshópur Uppbót 2021 Verslunar- og skrifstofufólk 96.000 kr. Verkamenn (þ.m.t. hótel og veitingast.) 96.000 kr. Iðnaðarmenn 96.000 kr. Sveitarfélögin 121.700 kr. Ríkið 96.000 kr. Alcoa Fjarðarál 273.200 kr. Starfsmenn á bændabýlum 96.000 kr. Starfsmenn við línu og net 96.000 kr.

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.