Austurglugginn


Austurglugginn - 02.12.2021, Side 16

Austurglugginn - 02.12.2021, Side 16
16 Fimmtudagur 2. desember AUSTUR · GLUGGINN Vaskur flytur um helming þeirrar vöru, sem til sölu er í verslun fyrirtækisins á Egilsstöðum, beint inn erlendis frá. Stjórnendur segja það mikilvægt til að hægt sé að bjóða samkeppnishæft úrval og verð. Verslað er með fjölbreyttar vörur sem styðja hver við aðra. „Við byrjuðum á að flytja inn rúmföt og handklæði. Síðan hefur þetta aukist verulega síðustu tvö ár. Nú orðið flytjum við inn 50% af öllu sem við seljum í búðinni,“ segir Guðmundur Þór Þórðarson, framkvæmdastjóri Vasks. „Þetta var mikil framþróun til að geta boðið meira úrval og betra verð,“ bætir Hafþór Valur Guðjónsson, aðstoðarframkvæmdastjóri og einn eigenda. Fyrirtækið hóf göngu sína sem Hraðhreinsun Austurlands árið 1989 og hefur verið í eigu sömu fjölskyldu frá stofnun. Það var í meira en áratug fatahreinsun, sem er enn fyrirferðamikil, en bætti við sig smásölu. Fyrst voru það hreinlætis- og skrifstofuvörur, sem hentuðu vel með þvotti fyrir gististaði, síðan voru það hljóðfæri og íhlutir í þau og í kreppunni jókst eftirspurn eftir prjónavörum verulega. Við þetta breyttist hlutverkið svo rétt þótti að breyta nafninu í samræmi við það. Þróunin hélt áfram. Vaskur fór að selja skíðabúnað og hjólreiðavörur. Síðustu misseri hafa meðal annars barnaföt og leikföng bæst við. Má ekki vera dýrara en erlendis „Áður en við byrjuðum að flytja inn var til dæmis leikfangadeildin eins og flestar aðrar leikfangadeildir landsins. Það skilar engum árangri að vera með sömu vörur og hinn aðilinn í bænum þannig okkur fannst við þurfa að hrista aðeins upp í hlutunum. Afraksturinn er að við erum með vöruúrval sem þú sérð ekki í nokkurri annarri búð á Íslandi og það finnst okkur mjög gaman,“ útskýrir Guðmundur. Mest af vörunum er flutt inn með Norrænu til Seyðisfjarðar. Þjónustan er góð þar sem Smyril- Line sækir pantanir víðs vegar um Evrópu og stutt er fyrir danska birgja að koma sendingum um borð. En innflutningurinn tryggir líka samkeppnishæft verð. „Þegar vörur eru keyptar frá Reykjavík þá leggst fyrst á þær kostnaður við innflutninginn og síðan flutningskostnaður innanlands. Það getur kostað álíka mikið að senda vöruna frá Reykjavík austur og að sigla með hana frá Danmörku. Verslun hefur breyst þannig fólk óttast ekki að panta erlendis frá sjálft. Þess vegna getum við heldur ekki annað en tekið mið af verðinu í Evrópu þegar við verðleggjum vörurnar hér. Verðgagnsæið er orðið svo mikið,“ segir Guðmundur. Breytir ekki öllu hvar birginn er Hafþór og Guðmundur segja að það hafi í sjálfu sér ekki verið áhætta fyrir Vask að byrja að flytja sjálft inn, aðeins framfarir. „Það breytir ekki öllu hvort birginn er í Reykjavík eða Danmörku. Það er svipað ferli við að koma vörunum frá Reykjavík til Egilsstaða eða frá Danmörku til Egilsstaða,“ segir Guðmundur. „Það er engin vara sem ekki hefur gengið upp, þótt sumar gangi betur en aðrar. Við erum með barnaföt, sem enginn annar er með hérlendis, sem fólk er greinilega ánægt með því það bíður eftir þeim. Við erum þó bara að reyna að versla með það sem okkur finnst skemmtilegast,“ bætir hann við. Vefverslunin er búðargluggi Vaskur hefur fært út kvíarnar því fyrir rúmu ári opnaði það vefverslun á www.vaskur.is sem smám saman hefur bætt við sig. Með henni er markaðssvæðið ekki lengur bara Austurland heldur landið allt. En heimafólk nýtir hana líka. „Vefverslunin er okkar búðargluggi, hann sýnir fólki hvað við höfum upp á að bjóða. Austfirðingar eru okkar helstu viðskiptavinir á netinu. Þeir vita ekki endilega hvað við bjóðum en sjá það þarna,“ segir Guðmundur. Vöruúrvalið gerir Vaski enn frekar kleift að keppa á landsvísu. „Við erum til dæmis með frábæra birgja sem selja okkur gæða vörur í útivistardeildina. Hún er mjög flott miðað við okkar litla markaðssvæði en við erum líka á pari við verslanir í Reykjavík,“ bætir hann við. Sumarið var líka góð auglýsing fyrir Vask, eins og aðra á Austurlandi. „Íslendingarnir sem komu margir hingað í fyrsta sinn í sumar voru steinhissa á vöruúrvalinu. Þeir sögðu að þetta minnti þá á gömlu kaupfélögin, með margar deildir innan sömu verslunarinnar,“ segir Hafþór Valur. Vörur sem styðja hver við aðra Kaupfélögunum, sem höfðu orð á sér fyrir að selja allt sem fólk gæti hugsanlega vantað, fækkaði í kringum aldamóti. Í staðinn komu sérhæfðari dagvöruverslanir og í einhverjum tilfellum sérverslanir. Þær hafa samt oft átt erfitt upp- dráttar í hinum dreifðu byggðum. Þeir útskýra að margar vörurnar í Vaski myndu aldrei ganga einar og sér en þær styðji hver aðra, til dæmis fari skíðabúnaður á veturna og hjólavörur á sumrin vel saman. „Við getum leyft okkur að hafa leikfangadeildina stærri því við höfum útivistarfatnaðinn með henni, til dæmis. Leikföngin ein og sér myndu ekki bera sig á svona litlu svæði,“ segir Guðmundur. En hugsun kaupfélaganna, að tryggja vöruframboð á staðnum, er líka fyrir hendi. „Við höfum það að vissu leyti á bakvið eyrað að þetta sé þjónusta sem okkur langar ekki að missa af svæðinu. Til dæmis þegar Skógar hættu þá var engin verslun eftir hér sem gat hugsað sér að vera með skíði. Útivistarfatnaðurinn jókst svo þegar Íslensku alparnir hættu,“ segir Hafþór Valur. Þeir segja þjónustuna líka skipta máli, auk þess að selja hjóla- og skíðabúnað sinnir Vaskur viðgerðum á hvoru tveggja. Hafþór Valur er til dæmis nýkominn heim af Shimano hjólaviðgerðanámskeiði í Svíþjóð. Vöruúrval í heimabyggð ekki sjálfsagt En vöruframboðið og þjónustan byggir alltaf á að heimafólk haldi henni uppi með viðskiptum sínum. Það á við um Vask, sem og aðrar verslanir og þjónustuaðila á Austurlandi sem á aðventunni hvetja Austfirðinga til að versla í sinni heimabyggð. Það er þó alltaf áskorun á tímum netverslunar og ferðalaga. „Við erum mjög þakklát fyrir okkar föstu viðskiptavini og heimamenn sem versla hjá okkur. Við finnum að fólk vill versla hjá okkur því það finnst við hafa góðar vörur og þjónustu. Það kemur ekki af sjálfu sér að þjónustuaðilar séu á minni stöðum.“ Jólaverslunin í fyrra var góð, fólk virtist versla heima fyrst það komst ekki erlendis. Þeir segja vísbendingar um sömu þróun nú. „Við tókum eftir að fólk verslaði meira heima í fyrra og okkur sýnist stefna í svipað núna,“ segir Hafþór Valur. GG „Beinn innflutningur gerir okkur samkeppnishæf í verði og úrvali“ Verslun Hafþór Valur Guðjónsson og Guðmundur Þór Þórðarson. Mynd: GG

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.