Austurglugginn - 02.12.2021, Blaðsíða 17
AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 2. desember 17
HÉRASMELLIR
fyndnasta
bókin í ár!
Saga Dögunar Rósar Steinars-
dóttur fékk fyrr á þessu ári önnur
verðlaun í smásagnasamkeppni
sem haldin var á Kennarasambandi
Íslands. Dögun Rós býr á Þórshöfn
og er þar í þriðja bekk grunnskólans
en sagan berst víðar um Austurland
eða austur á Norðfjörð.
Hæ, ég heiti Dögun Rós og á heima
á Norðfirði. Í sveit sem heitir Hof,
rétt hjá Norðfirði, búa fimm draugar
sem heita Þórhalla og Viddi og
draugasysturnar þrjár og þær heita
Birna, Inga og Ágústa. Þau eru mjög
draugaleg.
Ég á nokkra vini sem eru ekki
draugar. Það væri svo kjánalegt að
eiga drauga sem vini. Dag einn var
ég að ganga heim úr skólanum með
Ísey, vinkonu minni. Þá hittum við
draugana fimm. Ísey hvíslaði að mér:
„Við skulum hlaupa í burtu,“ en ég
sagði: „Ég ætla að hringja í mömmu
og segja henni.“ En skyndilega sagði
einn draugurinn: „Úúúúúúúúúúú.“
Þá öskruðum við báðar í kór og
hlupum heim til mín. En þá voru
draugarnir komnir á undan okkur því
auðvitað komast draugar í gegnum
veggi og allt, nema mannfólk.
Mamma og pabbi komu hlaupandi
út en þá voru komnir uppvakningar
í bæinn. Þau hétu Svala og Eyþór og
uppvakningasysturnar tvær sem hétu
Álfrún og Bjarney.
Uppvakningarnir eru það
versta sem ég hef hitt!
Allt í einu sagði einn upp-
vakningurinn: „Mig langar til þess
að fara heim, uhuhhuhu.“ Þá vældi
litli uppvakningurinn Bjarney: „Mig
langar aftur heim til Þórshafnar í
Háafell.“
„Æ, hættu þessu Bjarney!“ hrópaði
Álfrún á hana. Aftur grét Bjarney
enn hærra en áður. Þá sagði Svala
uppvakningur: „Æ, Álfrún Marey,
vertu ekki að hræða litlu systur þína.“
Bjarney var mjög móðguð við hana.
Uppvakningarnir voru nefnilega í
álögum, til þess að losna úr þeim
þurfti einhver að trúa því að þau
væru ekki uppvakningar.
„Æ, komdu í barbie,“ sagði ég við
Ísey því ég nennti ekki að hlusta
lengur á uppvakningasysturnar
rífast. „Jáááá,“ sagði Ísey, „það er
það skemmtilegasta sem ég veit.“ Þá
heyrðum við í Birni bróður mínum
segja „úúúú“ og héldum þá að hann
væri uppvakningur líka, eða draugur.
En þegar við komum í herbergið
hans sagði ég Ísey að hann væri bara
strákur.
„Úúú!“ Jón uppvakninganágranni
var kominn í heimsókn til að segja
okkur að allir uppvakningarnir í
bænum væru bara í álögum og við
þyrftum að trúa því. Þá myndu þeir
losna úr álögunum. „Ó nei, Ísey, þau
eru ekki uppvakningar, heldur fólk
eins og við.“ Þá trúðum við Ísey því
sem Jón sagði. Hann var ánægður
með það og lét hina uppvakningana
vita.
Dag einn eftir þetta fór fjölskyldan
mín í fjallgöngu. Efst uppi á toppnum
á fjallinu bjó fátækt fólk sem hét
Gulla og Þór. Þau sögðu okkur að
nú væru ekki lengur uppvakningar
í Norðfirði vegna þess að við trúðum
að þau hefðu verið í álögum.
Við urðum svo glaðar að heyra
það og hoppuðum af gleði! Svo
hlupum við í skólann og sögðum
öllum bekkjarfélögum okkar góðu
fréttirnar.
Uppvakningavandræði
Smásaga
Enn einu sinni flytur trúin fjöll!
Í sögunni Uppvakningavandræði
standa vinkonurnar Dögun Rós og
Ísey frammi fyrir því á Norðfirði,
að uppvakningar frá Þórshöfn
gera vart við sig í bænum. Í
framvindu sögunnar verður ljóst
að uppvakningarnir eru fólk í
álögum. Ef einhver trúir því mun
þetta óhamingjusama fólk losna
úr álögunum og það er einmitt
það sem gerist. Trú Dögunar
Rósar og Íseyjar bjargar þessum
óhamingjusömu Þórshafnarbúum
og leysir þá úr viðjum álaganna.
Þar með verður bærinn
uppvakningalaus með öllu og allt
fer vel. Hreinlyndi og einlægni
tveggja, góðra stúlkna hefur
bjargað óhamingjusömu fólki frá
glötun og Neskaupstað frá illum
örlögum.
Umsögn dómnefndar:
Sekt fyrir ólöglegar veiðar
Skipstjóra á línuveiðibát hefur verið gert að greiða 450 þúsund króna í
landhelgissjóð fyrir ólöglegar veiðar í Lónsdjúpi og Stokksnesgrunni.
Báturinn var staðinn að veiðum í september í fyrra en veiðar á svæðinu
eru óheimilar frá 1. ágúst til 31. desember ár hvert.
Í ákæruskjali kemur fram að byrjað hafi verið að leggja línuna út
frá bátnum rétt fyrir utan línuna að morgni dags en fljótlega hafi
verið farið inn á svæðið, lengst 4,5 sjómílur, áður en snúið var við og
lagt til baka. Báturinn sást innan hins lokaða svæðis í fjareftirlitskerfi
Landhelgisgæslu Íslands sem tilkynnti atvikið til lögreglu sem tók á
móti skipinu við komu þess til hafnar.