Vísbending - 04.05.2017, Page 2
\líSBENDING
“V
framh. af bls. 1
2005 samþykkti alþingi lög þar sem undan-
þágumar voru felldar niður.
Árið 2009 fór eftirlitsstofnunin fram á
að Islendingar afnæmu ótakmarkaða ríkis-
ábyrgð á lánum Landsvirkjunar og Orku-
veitu Reykjavíkur. Frá og með ársbyrjun
2010 skyldu fyrirtækin ekki njóta góðs
af slíkri ábyrgð. Málinu lauk árið 2013.
Samkvæmt nýjum reglum mega ríki og
sveitarfélög aðeins gangast í ábyrgð fýrir
80% af skuldbindingum orkufýrirtækj-
anna. Ábytgðargjald skal samsvara að fullu
ávinningi vegna ríkisábyrgðar. Óháðir mats-
menn eiga að meta gjaldið á hverju ári3. í
framhaldinu hækkaði ríkisábyrgðargjaldið
úr 0,25% af höfúðstól lána á ári í 0,48%.
En velta má fýrir sér hvort ábyrgðin sé ekki
meira virði, því að um þetta leyti mæltu
matsfýrirtæki ekki með lánveitingum ti!
Landsvirkjunar án ríkisábyrgðar. Hins vegar
voru lán með ríkisábyrgð í fjárfestingar-
flokki. Má ætla að einfaldasta Ieiðin til að
komast hjá því að fýrirtæki njóti góðs af rík-
isábyrgð af lánum sé að hætta að veita slíka
ábyrgð. Rikisábyrgðargjald systurfýrirtækis
Landsvirkjunar í Noregi, Statkrafts, er mun
hærra en það gjald sem Landsvirkjun greið-
ir. Öll ný lán Statkrafts eru án ríkisábyrgðar.
Árið 2015 tilkynnti Landsvirkjun í ársupp-
gjöri að lán hennar án ríkisábyrgðar væru
aftur komin í fjárfestingarflokk. Árið 2016
tók Landsvirkjun stórt lán án ríkisábyrgðar
hjá Evrópska fjárfestingarbankanum. Var þá
um fimmtungur lána fýrirtækisins án ríkis-
ábyrgðar. Þetta er lágmarkið, sem kveðið er
á um í samkomulaginu við Eftirlitsstofnun
EFTA. En forstjóri Landsvirkjunar sagði við
þetta tækifæri, að stefnt væri að því að auka
áfram vægi slíkra lána í efnahagsreikningi
fýrirtækisins4.
Þriðja krafan, sem Eftirlitsstofnun EFTA
gerði, var sett fram árið 2016. Hún er sú
að land undir virkjanir sé keypt á mark-
aðskjörum. Til þessa hefur eignarnámi ver-
ið beitt frjálslega í þágu orkufýrirtækja hér
á landi. í raforkulögum frá 2003 kemur
orðið eignarnám 18 sinnum fýrir. Ráðherra
getur tekið land og mannvirki eignarnámi
ef orkufýrirtæki nær ekki samkomulagi við
landeiganda. Ráðherrann getur jafnvel látið
orkufýrirtækin sjálf sjá um eignarnám. Ekki
verður séð að Landsvirkjun hafi alltaf litið
á vatnsréttindi sem tálma á vegi virkjana.
Framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun voru
að minnsta kosti komnar vel af stað áður j
en hugað var að eignarhaldi á landi und- j
ir virkjuninni (Oddur Ástráðsson, 2013, j
Fjárhæð eignarnámsbóta fýrir vatnsréttindi j
til virkjunar, BA-ritgerð í lögfræði frá Há- j
skóla íslands). Samkvæmt stjórnarskrá skal j
„fullt verð“ koma fýrir það sem tekið er
eignarnámi. Töluvert hefur skort á það, ef
marka má samantekt Jónasar Hallgríms-
sonar hagfræðings hjá Hagfræðistofnun frá
árinu 2016. í fimm nýlegum dæmum, sem
hann tilgreinir, hafa orkufýrirtæki í einka-
eign samið um að greiða sem nemur 3-5%
af tekjum af rafmagnssölu fýrir virkjana-
rénindi. Land undir Kárahnjúkavirkjun var
ekki tekið eignarnámi, en skipuð var mats-
nefnd þegar það vofði yfir. Matsnefndin
taldi að hæfilegt gjald fýrir landið væri sem
samsvaraði um 0,5% af tekjum virkjunar-
innar. Að dómi meirihluta nefndarinnar
var ekki unnt að horfa til verðlagningar
vatnsréttinda í ,,fáu[m] smávirkjunum",
sem bent hefði verið á. Þess í stað hafði
meirihlutinn hliðsjón af mati á landi und-
ir Blönduvirkjun, sem einnig var ákveðið
af matsnefnd5. Matið var seinna staðfest af
dómstólum. En íslensk stjórnvöld hafa nú
lofað að sjá til þess, að kröfu Eftirlitsstofn-
unar EFTA, að orkufýrirtækin greiði alltaf
markaðsverð fýrir afnot af náttúruauðlind-
um. Eldri samningum verði breytt til sam-
ræmis við það6.
Stuðningurinn hverfur vart
meðan ríki og borg reka
orkufyrirtæki
Þeim breytingum, sem hér hefur verið lýst,
er ekki ædað að koma í veg fýrir að ný stór-
iðja rísi hér á landi. Þær miða hins vegar all-
ar að því að draga úr forskoti stóriðjunnar
á annan atvinnurekstur. Ekki er víst að það
sé horfið. Rafmagn til stóriðju hækkar í
verði þegar hið opinbera hættir að ábyrgjast
skuldir orkufýrirtækja sinna með beinum
hætti. En ríki og borg ábyrgjast orkufýrir-
tæki sín áfram óbeint, því að það yrði álits-
hnekkir fýrir þau, að fýrirtæki á þeirra snær-
um færu á höfuðið. Þá kann eignarhaldið j
eitt og sér að vera ávísun á milda meðferð !
hjá öðrum yfirvöldum og jafnvel almenn-
ingi. Árið 2007 bar Árni Páll Árnason
tvær framkvæmdir saman í tímaritsgrein:
Kárahnjúkavirkjun og smíði álvers í Reyðar-
firði. Árni rifjar upp þann atburð þegar
rúta með starfsfólk verktaka við virkjunina
hafnaði utan vegar, síðsumars 2007. Þegar
lögregla og sjúkralið kom á staðinn kom í
ljós að 20 af 29 farþegum höfðu ekki verið
skráðir inn í landið á löglegan hátt. Almennt j
virðast verktakarnir hafa reynt að brjóta þær í
reglur, sem þeim hentaði ekki að hlýða. !
Reynt var að sniðganga kjarasamninga !
og lög um hollustuvernd og vinnuvernd. |
Vörslusköttum var ekki haldið eftir. Á hinn ;
bóginn var vel staðið að álverssmíðinni og |
öll vinnubrögð þar voru til fýrirmyndar7. ;
Velta má fýrir sér hvaða þátt sá velvilji, sem j
fýrirtæki í almannaeigu njóta allajafna, átti í i
því hvað verktakar við Kárahnjúka komust
upp með. Álverið í Reyðarfirði er einkafýr-
irtæki, eins og kunnugt er. Hefðu verktakar
við smíði þess fengið jafngóða meðferð hjá
eftirlitsstofnunum og almenningi ef þeir
hefðu ekki gen sitt besta til þess að fara að
lögum og reglum?
Ályktanir
Sú skoðun virðist hafa orðið ofan á í bili,
að ekki séu rök fýrir því, að bjóða „meng-
andi stóriðju" betri kjör en þau fýrirtæki
búa við sem keppa við hana um vinnuafl
og þjónustu. Rafmagnsverð hefur hækkað
í nýjum samningum við málmbræðslur. Ný
iðjuver þurfa að kaupa útblástuisheimildir.
Skattaafslættir eru ekki lengur í boði til stór-
iðju sem mengar. Miklu gat munað um af-
slættina. Samkvæmt lögum skal ríkið aðeins
veita slíkar ívilnanir ef þær eru forsenda þess
að lagt sé í fjárfestingu8. Ritað hefur verið
undir „fjárfestingarsamning“ um skattaaf-
slátt vegna allra kísilvera sem ráðgerð eru
hér á landi. Afsláttur af sköttum og gjöldum
og annar beinn ríkisstuðningur við kísilver
á Bakka er talinn vera tæp 9% af kostnaði
við fjárfestinguna. Þegar allt þetta er skoðað
verður að telja ólíklegt að á næstu árum fari
af stað aðrar málmvinnslur hér á landi en
þær sem þegar hefur verið samið um.
Tilvisanir:
1 Eftirlitsstofhun EFTA, 2014, Tœpra 4 millj-
arða fjárfestingaraðstoð til PCC samþykkt,
ftéttatilkynning.
2 Vtsindavefurinn: Hvað er Kyoto-bókunin.?,
Umhverfisstofnun, Kyoto og samningar, ust.
is, Auður Ingólftdóttir, 2007, Stefha íslands
i samningum um loftslagsbreytingar, í Upp-
brotum hugmyndakerfis, ritstj. Valur Ingi-
mundarson.
3 Eftirlitsstofhun EFTA, 2013, Ríkisaðstoð:
Máli varðandi ríkisábyrgðir Landsvirkjunar
og Orkuveitu Reykjavíkur lokað, fréttatil-
kynning.
4 Landsvirkjun tekur 17 milljarða lán án rík-
isábyrgðar, Viðskiptablaðið, 9. júní 2016.
5 Úrskurður meirihluta matsnefhdar um
vatnsréttindi vegna Kárahnjúkavirkjunar, af
vefLandsvirkjunar.
6 Ríkisaðstoð: Orkufyrirtaki greiða markaðs-
verðfyrir afnot af náttúruauðlindum, Frétta-
tilkynning frá Eftirlitsstofhun EFTA, janúar
2017.
7Ámi PállÁmason, 2007, Að Læra afsögunni:
Smánarsagan af Kárahnjúkum, Herðubreið,
2. tbl., 1. árg.
8 Lög um ívilnanir til njfjárfestinga á ís-
landi, nr. 41, 2015, sjá einnig Eftirlitsstojh-
un EFTA, 2014, ísland þarf að endurheimta
ólöglega ríkisaðstoð vegna nýfjárfestinga,
fréttatilkynningu. ÍS
2 VÍSBENDING • 16.TB1. 2017