Vísbending


Vísbending - 04.05.2017, Qupperneq 4

Vísbending - 04.05.2017, Qupperneq 4
NDING ^7 frarnh. afhls. 3 ávöxtunin verið góð heldur hafa slíkar íjárfestingar stuðlað að auknum efna- hagslegum vexti og verið stór þáttur í að endurreisa íslenskt fjármálalíf úr rústum hrunsins. Útflæði fjármagns nauðsynlegt Ferðaþjónustan hefur umturnað íslensku efnahagslífi og hingað flæðir gjaldeyr- ir. Ut frá einföldu samspili framboðs og eftirspurnar hefur íslenska krónan styrkst gífurlega vegna eftirspurnar ferðamanna á íslenskum krónum til að njóta íslands. Útflutningsfýrirtæki eru aftur á móti far- in að finna verulega fyrir þessari styrk- ingu því tekjur þeirra hafa minnkað á sama tíma og dregið hefur úr samkeppn- ishæfninni erlendis. Því þarf að sporna við þessu og fjárfesta á erlendri grundu til að krónan veikist og samkeppnishæfnin aukist. Fleiri raddir hafa nýlega tekið í svipaðan streng. Ólafur H. Jónsson, for- maður stjórnar Almenna lífeyrissjóðsins, sagði nýverið í viðtali að erlendar eignir sjóðsins næmu um fjórðungi eigna hans en það þyrfti að auka þær upp í 40%. Forsætisráðherra sagði í nýlegu viðtali að það mætti skoða hugmyndir um að gólf væri á erlendum eignum lífeyrissjóða. Líklegt er að svipaðar raddir verði hávær- ar á næstu misserum og ekki er útilokað að lög á þessum nótum verði að veruleika á næstunni. Hvar skal fjárfesta? Þess vegna er í raun aðeins ein skynsam- leg leið til að fjárfesta á erlendum mörk- uðum og það er í hlutabréfum. Hlutabréf eru á háu verði miðað við síðustu ár. Sé litið til Dow Jones-hlutabréfavísitölunn- ar í Bandaríkjunum, sem mælir gengi 30 hlutabréfa flestra stærstu fyrirtækja landsins, sést að þau hafa meira en tvö- faldast í verði frá aldamótum. Svip- aða sögu má segja um síðustu fimm ár. Stóra spurningin sem blasir við íslensku lífeyrissjóðunum er auðvitað hvort rétt sé að fjárfesta í hlutabréfum af miklum krafti þegar svo miklar hækkanir hafa orðið. Slík rök eru vissulega fyrir hendi þótt stóra myndin ýti undir að dreifa eigi áhættunni og á þeirri forsendu fjár- festa í hlutabréfum. Þó svo að hækkan- ir á gengi hlutabréfa hafi verið áberandi síðustu árin hefur árleg hækkun þeirra einungis verið í kringum 3,5% á ári frá aldamótum, auk arðgreiðslna sem hafa verið tiltölulega lágar. Hækkun á virði | skuldabréfa með langan líftíma hefur til ; að mynda verið töluvert meiri á sama I tímabili. Tvíbent staða I Hlutfall íslenskra lífeyrissjóða í erlend- ! um eignum hefur smám saman verið að i lækka undanfarin ár vegna gjaldeyrishafta i og er hlutfallið núna rétt rúmlega 20%. Að mati greinarhöfundar ætti gólfið að vera 50% í erlendum eignum. Að ná því markmiði er hins vegar ekki einfalt. Núna eru eignir lífeyrissjóða í hluta- bréfum og hlutdeildarskírteinum rétt rúmlega 40%. Það hlutfall fór hæst í rúmlega 50% árin fýrir hrun. Erfitt er að réttlæta öllu hærra hlutfall. Þó svo að lífeyrissjóðir séu langtímafjárfestar er það lítil huggun fýrir þá lífeyrisþega sem eru í þann mund að fara á eftirlaun og þurfa á þeim tímapunkti að þola mikla skerðingu á réttindum sínum þegar síst skyldi af því að gengi hlutabréfa er þeim óhagstætt. Það er með öðrum orðum erfitt að auka hlutfall hlutabréfa í íslensk- um lífeyrissjóðum öllu meira. Vandamálið er að nánast allar eignir lífeyrissjóða á erlendum mörkuðum, eða um 98% þeirra, eru bundnar í hluta- bréfum og hlutdeildarskírteinum. Þar sem skuldabréf munu líklega veita afleita ávöxtun næstu árin, þ.e. verri ávöxtun en í marga áratugi, eru fáir aðrir skyn- samlegir kostir en hlutabréf. Áhættu- dreifingin á erlendum mörkuðum er hins vegar ekki nægjanlega góð hvað eigna- flokka varðar og verður einungis verri með enn frekari kaupum í erlendum hlutabréfum. Þetta er því mjög tvíbent staða og í það minnsta þarf að kaupa er- lend hlutabréf hægt og varlega. Þetta gæti haft í för með sér að hlutur íslenskra lífeyrissjóða á innlendum hluta- bréfamarkaði fari að dvína næstu árin. Það er í sjálfu sér ekki slæmt enda hafa raddir verið á lofti um að nú, þegar ís- lenski hlutabréfamarkaðurinn hefur náð sér aftur á strik eftir hrunið, sé ekki leng- ur ástæða til þess að lífeyrissjóðir standi jafnmikið við á bakið á innlendum hlutabréfamarkaði — nokkuð sem mikil þörf var á fýrir nokkrum árum. Lífeyrissjóðirnir auki fjárfestingar erlendis Því má segja að íslenskir lífeyrissjóðir eigi að einbeita sér að erlendum fjár- festingum á næstu árum og auka þær smám saman. Meginstefnan ætti að vera í stöndugum fýrirtækjum sem eru lítið næm fýrir sveiflum á hlutabréfamörkuð- um.Q Adrir sálmar Stærstu hagstjórnar- mistökin? íslenskt efnahagslíf hefur vaxið með ógnarhraða síðustu misseri. Landsfram- leiðslan hefur aukist stöðugt frá árinu 2011 og ekkert lát virðist vera á. Hagvöxtur á síð- asta ári mældist 7,2%. Ef marka má þjóð- hagsspá Hagstofunnar má gera ráð fýrir að hagvöxtur verði viðvarandi a.m.k. til ársins 2022. Það yrði lengsta hagvaxtarskeið í sögu þjóðarinnar. Fjárfesting hefúr aukist mikið og einka- neyslan hefur tekið við sér. Verðbólga hefur haldist iág þrátt fýrir miklar launahækkanir og spennu í efnahagslífinu. Þetta eru að- stæður sem íslendingar hafa sjaldan staðið frammi fýrir og eru í raun þveröfugar við það sem er að gerast í nágrannalöndunum. Þar er verðbólgan lág og hagvöxtur lítill. í þessum ríkjum er keppikeflið í hagstjóminni að örva fjárfestingu og einkaneyslu. Þarna virðist því vera mikil þverstæða milli fslands og annarra landa. Ástandinu hér á landi má líkja við að tvö hagkerfi séu til staðar. í fýrsta lagi er um að ræða hinar rótgrónu útflutnings- og þjón- ustugreinar. Þessar greinar eru mjög næmar fýrir breytingum í raungengi og launakostn- aði. í annan stað er ferðaþjónustan sem hefur náð að hrista af sér neikvæð áhrif af styrkingu krónunnar með því að auka magnið þ.e. taka á móti stöðugt fleiri ferðamönnum. Þessi víxlverkun gengur hins vegar ekki upp til lengdar því samkeppnisstaða allra atvinnu- greina verður að lokum óviðunandi. Áfram- haldandi hagstæð verðlagsþróun er síðan að miklu leyti háð því að krónan haldist sterk. Breytingar á skattalegu umhverfi ferða- þjónustunnar voru löngu tímabærar í hag- stjórnarlegu tilliti, án þess þó að tekin sé af- staða til annarra þátta í því samhengi. Það er margt sem bendir til þess að stjórnvöld hafi verið of allt of sein að jafna aðstöðumun milli ferðaþjónustunnar og annarra atvinnugreina í skattamálunum. Þetta hefúr leitt til óraun- hæfra væntinga um afkomu hjá ferðaþjón- ustufýrirtækjum, ofíjárfestinga og óæskilegra ruðningsáhrifa gagnvart öðrum atvinnu- greinum. Ekki síst hefur þetta leitt til þess að hendur ríkisins eru nú bundnar þegar kemur að nauðsynlegum framkvæmdum t.d. í vega- málum og ýmsum útgjaldaþáttum í grunn- þjónustunni. Ef hægt er að tala um að mistök hafi verið gerð í hagstjórninni á síðustu árum þá liggja þau líklega þarna. sg Ritstjóri: Sverrir H. Geirmundsson Abyrgðarmaður: Jóhannes Benediktsson Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23,105 Rvtk. Sími: 512 7575. Netfang: joiben@heimur.is. Prentun: Heimur. Upplag: 700 eintök. Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án leyfis útgefanda. 4 VÍSBENDING • lé.TBL. 2017

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.