Vísbending - 11.05.2017, Side 1
ÍSBENDING
Vikurit um viðskipti og efnahagsmál
11. maí 2017
17. tölublað
35. árgangur
ISSN 1021-8483
Stafrænn veruleiki - fjórða
iðnbyltingin
Andrés Magnússon
framkvxmdastjóri Samtaka
verslunar og pjónustu
ær breytingar sem allar atvinnugrein-
ar, ekki hvað síst verslun og þjónusta
standa nú frammi fyrir, eru meiri
og róttækari en nokkur dæmi eru um.
Breytingar sem eru að verða á viðskiptahátt-
um nýrrar kynslóðar. Þær stórstígu framfarir
í allri tækni sem orðið hafa á allra síðustu
árum, gjörbreyta viðskiptaumhverfi fyrir-
tækja. Hér skjptir ekki máli hvað atvinn-
greinin heitir - áhrifanna mun gæta á öllum
sviðum atvinnulífsins.
Hraðar og sögulegar
framfarir
„I dag stöndum við á barmi fjórðu iðn-
byltingarinnar“ var nýlega haft eftir Klaus
Schwab, stofnanda Alþjóða efnahagsþings-
ins (World Economic Forum). Þessi bylting
lýsir sér í hröðum og sögulegum framfömm
á ólíkum sviðum, eins og erfðavísindum,
gervigreind, örtækni og líftækni. Allar þess-
ar ótrúlegu breytingar em síðan að leggja
grunninn að altækari byltingu en við höfúm
áður séð sem mun gjörbreyta atvinnulífi og
vinnumarkaðnum öllum á aðeins örfáum
ámm.
Ögrandi verkefni
framundan
Það eru því ögrandi verkefni sem við stönd-
um nú öll frammi fyrir. Vinnumarkaðurinn
mun óhjákvæmilega þurfa að aðlaga sig að
þessum breytingum. Það má hins vegar gefa
sér að ákveðið þjóðfélagslegt umrót verði
þegar umbreyting af þessu tagi á sér stað.
Slíkt hefur alltaf gerst við þessar aðstæður.
Spurningin er einungis hversu víðtækt þetta
umrót verður.
Tvö dæmi úr fortíðinni: I upphafi 20.
aldar störfuðu 40% vinnafls í Bandaríkjun-
um í landbúnaði, nú starfá 2% vinnuafls þar
í landi í greininni. Þegar hraðbankar voru
kynntir til sögunnar á sjötta áratug liðinnar
aldar, átm flestir von á að dagar bankagjald-
kera væru taldir. Þeim hefur reyndar fjölgað
síðan þá.
Helmingur starfa sjálfvirk
árið 2055
Samkvæmt nýrri skýrslu frá McKinsey
Global Institue mun næstum helmingur af
öllu störfum verða sjálfvirk árið 2055. Hins
vegar geta ýmis atriði haft áhrif á þessa þró-
un. Til að mynda geta stjórnmálamenn og
almenningsviðhorf gagnvart nýrri tækni,
seinkað innleiðingu hennar um 20 ár.
Skýrslan bendir til þess að hreyfingin í átt
að sjálfvirkni leiði til þess að framleiðni muni
aukast í heimsbúskapnum. Samkvæmt líkani
þeirra getur framleiðni á alþjóðavísu aukist
um 0,8 til 1,4 prósent á ári. Tækniþróunin
getur aukið framleiðni í fyrirtækjum með
ýmsu móti, meðal annars með nýrri fram-
leiðslutækni sem eykur framleiðni vinnu-
aflsins. Það getur einnig átt sér stað samfara
aukinni sjálfvirkni í framleiðslu sem kemur í
stað vinnuaflsins.
Ein af afleiðingum þessa er t.a.m. að störf
í verslunargeitanum munu breytast, minna
verður í boði af störfum þar sem lítillar
menntun er krafist en meiri þörf verður á
fólki bæði með góða félagslega- og tæknilega
færni, svo það geti leiðbeint viðskiptavinun-
um í gegnum möguleikana sem tæknin býð-
ur upp á.
Aðlaga þarf virðiskeðjuna
Verslunin er sannarlega ein þeirta atvinnu-
greina sem verða að aðlaga virðiskeðju sína
að þessum breytta veruleika. Verslunarfyrir-
tæki verða að bjóða upp á stafrænan vettvang
þar sem boðið er upp á sérsniðna þjónustu í
rauntíma sem nýtist við að bæta upplifunina
af viðskiptunum. Mikilvægasta eign hvers
fyrirtækis verður því gagnagrunnurinn yfir
viðskiptavinina, en með því móti geta fyr-
irtæki veitt einstaklingsþjónustu með hjálp
gervigreindar og þar með áætlað hvað hver
viðskiptavinur er helst að leita eftir. I þessu
sambandi mætti nefna að fyrirtæki geta t.d.
samtvinnað gervigreindartækni við sýndar-
veruleikabúnað sem settur yrði upp í versl-
unum til að geta gefið notandanum tækifæri
til að átta sig betur á vörunni og hvernig hún
myndi nýtast honum.
jramh. á bls. 4
IVerslun og þjónusta standa
frammi fyrir meiri og rót-
tækari breytingum en nokk-
ur dæmi eru um.
2
Skilar einkavæðing íslenskra
ríkisfyrirtækja marktækum
bata fyrir rekstur og arð-
semi þeirra?
Einkavæðing fyrirtækja á
árunum 1992 - 2005 er
greind út frá rekstri og
kennitölum.
4Borgarskáldið Tómas Guð-
mundsson á lokaorðin þqjir
sól hefúr hækkað á lofti og
sumarið tekið völd.
VÍSBENDING • 17. TBL. 2017 1