Vísbending - 18.05.2017, Qupperneq 1
ÍSBENDING
Vikurit um viðskipti og efnahagsmál
18. maí 2017
18. tölublað
35. árgangur
ISSN 1021-8483
Sveitarfélög og opinber
fjármál
Mynd 1 Skuldir og skuldbindingar sveitarfélaganna
sem hlutfall af tekjum 2002 - 2015
250%
2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015
•■■A-hluti ■■A-og B-hluti Skuldaregla
Karl Björnsson
framkvœmdastjóri Sambands
& íslenskra sveitarfélaga
Með setningu laga nr. 123/2015 um
opinber fjármál hófst ný og merki-
leg saga í fjármálum hins opin-
bera. Undirllggjandi meginmarkmið laganna
er að innleiða sameiginlega langtímahugsun
í fjármálastjórn hjá ríki og sveitarfélögum.
Með semingu sveitarstjómarlaga nr. 45
/1998 var sveitarfélögum gert að gera áædan-
ir til fjögurra ára. Fyrir hver áramót ber þeim
að samþykkja fjárhagsáædun fýrir næsta ár
og síðan þriggja ára áædun til viðbótar. Þessa
langrímahugsun hefur algjörlega skort í fjár-
málastjóm ríkisins.
Fjármálastefna og -áætlun
I kjölfar bankahrunsins á Islandi 2008 leitaði
þáverandi ríkisstjórn eftir lánafýrirgreiðslu
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Lánveitingunni
fýlgdi ítarleg efnahagsáædun sem miðaði
að því að koma á efnahagslegum stöð-
ugleika. Snar þáttur í efnahagsáæduninni
var samkomulag milli ríkisstjórnarinnar við
sjóðinn um stjórnun fjármála hins opin-
bera. Samband íslenskra sveitarfélaga gerði
athugasemd við það að sveitarfélögin hefðu
ekki komið að gerð samningsins þó svo að
hlutur þeirra nemi rúmum þriðjungi af sam-
neysluútgjöldum hins opinbera. Fundað var
með fúlltrúum AGS, þar sem sjónarmiðum
sambandsins um mikilvægi þess að sveitar-
félögin kæmu að stjórnun opinbera fjármála
var komið á framfæri. Þessi málflutningur
skilaði sér í því að þegar vinna hófst við smíði
frumvarps um opinber fjármál var fram-
kvæmdastjóra sambandsins boðið að sitja í
stýrinefnd sem hafði umsjón með verkinu.
Þess var gætt að öll ákvæði laganna sem fjöll-
uðu um sameiginleg fjármál ríkis og sveitarfé-
laga væru mótuð í góðri sátt aðila.
Afúrð þessarar samvinnu kemur að mestu
fram í 11. gr. laganna um samskipti og sam-
ráð ríkis og sveitarfélaga. Formlegt og reglu-
bundið samstarf við sveitarfélögin skal viðhaft
um mótun fjármálastefnu og fjármálaáædun-
ar. Ráðherra fjármála skal leita samkomulags
við Samband íslenskra sveitarfélaga, fýrir
hönd sveitarfélaga, áður en áædunin er lögð
fýrir Alþingi, þar sem m.a. er fjallað um eft-
irfarandi þættí:
1. Markmið um afkomu og efnahag
sveitarfélaga til næstu fimm ára.
2. Ráðstafanir til að tryggja að markmið
um afkomu sveitarfélaga náist.
3. Fjármögnun opinberrar þjónustu og
tekjur sveitarfélaga.
4. Verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.
Á ríki og sveitarfélögum hvílir gagnkvæm
skylda til að leggja fram greinargóðar upplýs-
ingar um afkomu, skuldbindingar og eignir
á næsdiðnum tveimur árum og áædaða þró-
un þeirra næstu fimm ár. Samband íslenskra
sveitarfélaga skal hafa umsjón með upplýs-
ingaöflun um fjárhagsleg málefni sveitarfé-
laga og stofnana og félaga í þeirra eigu.
Á síðasta ári var fýrsta samkomulag aðila
gert á grundvelli nýju laganna. Vegna tíma-
skorts var fjármálstefnan og fjármálaáætlunin
til næstu fimm ára unnin samhliða. Á þessu
ári var á hinn bóginn unnið með þessi mál
í réttri röð. Fyrst var fjármálastefnan mótuð
og samþykkt á Alþingi. Fjármálastefnan felur
í sér markmið um afkomu- og skuldaþróun
hins opinbera og opinberra aðila í heild og
em þau dregin saman í eftirfarandi töflu.
Sá rammi sem fjármálastefnan markar er
algjört grundvallaratriði sem byggja þarf á
við útfærslu opinberra fjármála næstu árin.
Fjármálaáætlun þarf að rúmast innan þessar-
ar stefnu og fjárlög hvers árs þurfa að rúmast
innan fjármálaáætlunar.
Eins og fram kemur er gert ráð fýrir að
heildarafkoma sveitarfélaga í A-hluta, sem
er sá hluti í starfsemi sveitarfélaga sem fjár-
magnaður er með skatttekjum, verði jákvæð.
Einnig er gert ráð fýrir að skuldir sveitar-
félaga fari lækkandi. Fjárhagsupplýsingar í
fjármálastefnunni em settar fram á svoköll-
uðum GFS-staðli sem felur m.a. í sér að
fjárfestingarútgjöld em hluti heildarútgjalda.
Þessi framsetning er sveitarstjómarmönnum
ekki töm og nokkum tíma mun taka fýrir þá
framh. á bls. 2
1
Fjárhagslegt sjálfstæði sveitar-; f\
félaga gerir ríkar kröfúr um • £|
ábyiga fjármálastjórn og:
áædanagerð.
Lög um opinber fjármál hafa
milda þýðingu fýrir sveitar-
félögin og ákveðin viðhorfs-
breyting hefúr áttsérstað.
3Seðlabankinn teflir djarft
með því að lækka vexti á
toppi hagsveiflunnar við
mikla undirliggjandi þenslu.
4Ótti stjómmálamanna við
hugtök eins og einkvæðingu
má ekki hamla framþróun og
framleiðniaukningu.
VÍSBENDING • 18.TBL. 2017 1