Vísbending - 18.05.2017, Side 2
VíSBENDING
að hafa hliðsjón af henni við fjármálastjóm.
Þegar ríki og sveitarfélög fjalla um sam-
eiginleg fjármál hins opinbera er staða aðila
mjög ólík. Ríkið er með sína miðstýringu og
kemur fram sem einn aðili í samskiptunum.
Samband íslenskra sveitarfélaga er á hinn
bóginn málsvari 74 sveitarfélaga sem öll hafa
sinn sjálfsákvörðunarrétt. Sá réttur er í raun
óvenju mikill í samanburði við önnur lönd
í OECD þegar litíð er til sjálfstæðis í tekju-
öflun. Tæplega 90% tekna sveitarfélaga eiga
uppruna sinn í sköttum og þjónustugjöldum
sem þau sjálf leggja á íbúa sína og fasteigna-
eigendur í sveitarfélögum, en rétt rúmlega
10% er bein millifersla frá ríkissjóði í gegn-
um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. I mörgum
löndum em þessu öfugt farið.
Fjárhagslegt sjálfstæði sveitarfélaga gerir
ríkar kröfúr tíl þeirra um að þau hagi fjár-
málum sínum á ábytgan hátt. Það hafa þau
flest gert í áranna rás og munu örugglcga
gera áfram. Viðbrögð þeirra þegar hmnið
brast á sýna að þau geta brugðist hratt við
og dregið saman seglin og aðlagað fjármál
sín ytri aðstæðum mun fýrr en ríkið. Vissu-
lega hækkuðu skuldir sveitarfélaga á þessum
tíma en síðustu ár hafa sveitarfélögin mark-
visst verið að greiða niður skuldir sínar, eins
og mynd 1 sýnir glögglega. Skuldahlutfallið
hækkaði verulega í hruninu og skuldir og
skuldbindingar A- og B-hluta sveitarfélaga
námu yfir 220% af tekjum árið 2010. Fimm
árum síðar var þetta hlutfall komið undir hið
lögbundna 150% mark og vísbendingar um
2016 gefa fyrirheit um umtalsverða lækkun.
Þegar horft er til reksmrs sveitarfélaga á
undanförnum árum blasir við að óstöðugt
efnahagsumhverfi litar mjög afkomuna, eins
og mynd 2 sýnir.
Mikilvægt samkomulag
í samkomulagi Sambands íslenskra sveitar-
félaga við fjármála- og efnahagstáðuneytið
og samgöngu- og sveitarstjómarráðuneytíð
frá 6. apríl 2017, sem gert er á grundvelli
laganna um opinber fjármál, er staða sam-
bandsins og sveitarfélaganna m.t.t. stjórnunar
opinberra fjármála nánar skýrð. Fram kemur
að aðilar samkomulagsins hafi þann sameig-
inlega skilning að samkomulagið bindi ekki
ákvarðanir einstakra sveitarfélaga. Á hinn
bóginn feli það í sér að Samband íslenskra
sveitarfélaga beiti sér fyrir því að sveitarfélög-
in muni sem heild haga fjármálum sínum
þannig að þau virði ákvæði og forsendur
samkomulagins.
Með sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011
var sett ákvæði um fjármálareglur sveitar-
félaga. Þær fela í sér jafnvægisreglu í rekstri
sem skyldar sveitarfélögin til að hafa jákvæða
niðurstöðu á hverju þriggja ára tímabili.
Mynd 2 Rekstur A-hluta sveitarfélaga 2002 - 2015
sem hlutfall af tekjum
■20%
2002 2003 2004 2005 2006 2007 200« 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015
Afskriftir ■■■Framlegö ■■Fjármunatekj. og (fjármagnsgj.) —Rekstrarniöurstaða
Einnig að skuldir A- og B-hluta, sem reikn-
aðar eru á tiltekinn hátt, skuli ekki vera hærri
en sem nemur 150% af tekjum. Sveitarfé-
lögin hafa almennt sýnt að þau taka þessar
reglur mjög alvarlega og hafa kappkostað að
haga fjármálum sínum í samræmi við þær.
I lögum um opinber fjármál eru settar fram
nýjar reglur um skuldir og fleira. f útfærslu
og við mótun sameiginlegs skilnings ríkis og
sveitarfélaga á þeim reglum var niðurstaðan
að meginþungi í aðlögun að markmiðum
fjármálastefnu og fjármálaáætlunar hvíli á
ríkinu. Við þau skilyrði þegar sveitarfélögin
uppfylli fjármálareglur sveitarstjómarlaganna
hvíli aðlögunin alfarið á ríkinu. I gildandi
fjármálstefnu má sjá þess merki að þessi skiln-
ingur hefur náð fram að ganga.
í samkomulaginu er fjallað um mörg
mikilvæg verkefni sem aðilar eiga að vinna
að fyrir gerð nýs samkomulags á næsta ári.
Fjárhagslegar forsendur fjármálastefnunnar
skulu rýndar betur og bæta þarf þau gögn
um afkomu og áædanir sem mynda forsend-
umar. Endurskoða þarf regluverk til að sam-
ræmda fjárhagsáætlunargerð sveitarfélaga til
skemmri og lengri tíma og tryggja að fiam-
setning fjárhagsupplýsinga endurspegli stöðu
framh. á bls. 4
Tafla 1 Afkomu- og skuldaþróun 2017 - 2022
Hlutfall af vergri landsframleiðslu, %
2017 2018 2019 2020 2021 2022
Hið opinbera, A-hluti
Heildarafkoma 1 1,6 1,6 1,5 1,4 1,3
þar af ríkissjóður, A-hluti 1 1,5 1,4 1,3 1,2 1,1
þar af sveitarfélög, A-hluti 0 0,1 0,2 0,2 0,2 0,2
Skuldir* 37 34 30 28 27 26
þar af ríkissjóður, A-hluti 31 28 24 23 22 21
þar af sveitarfélög, A-hluti 5,9 5,8 5,5 5,2 5 5
Opinberir aðilar í heild
Heildarafkoma 0,5 1,6 2,1 2,5 2,4 2,3
þar af hið opinbera, A-hluti 1 1,6 1,6 1,5 1,4 1,3
þar af fyrirtæki hins opinbera -0,5 0 0,5 1 1 1
Skuldir* 59 55 50 47 45 43
þar af hið opinbera, A-hluti 37 34 30 28 27 26
þar af fyrirtæki hins opinbera 22 21 20 19 18 17
•Heildarskuldir, að frátöldum llfeyrisskuldbindingum og viðskiptaskuldum og að
frádregnum sjóðum og bankainnstæðum, sbr. 7. gr. laga nr. 123/2015. um opinber
fjármál.
2 VÍSBENDING • 18. TBL. 2017