Fréttablaðið - 25.10.2022, Page 1

Fréttablaðið - 25.10.2022, Page 1
Mér er alveg sama þótt mér verði úthúðað á samfélagsmiðlum á meðan ég geri það. Kristrún Heimis- dóttir, fyrsti varaforseti kirkjuþings þjóðkirkjunnar 2 3 5 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s Þ R I Ð J U D A G U R 2 5 . O K T Ó B E R 2 0 2 2 Stríðið sundrar fjölskyldum Danir hissa á tagli Menning ➤ 14 Lífið ➤ 18 Laugavegi 174, 105 Rvk. www.volkswagen.is Multivan T7 eHybrid 7 manna fjölskyldubíll Nýr varaforseti kirkjuþings segir lög um trúfélög vera „bastarð“ og segir „búið að banna öllum börnum á Íslandi að hafa aðgang“ að Jesú Kristi. gar@frettabladid.is TRÚFÉLÖG „Mér hefur fundist erfitt að horfa upp á það sem mér finnst vera stjórnlaust undanhald þjóð- kirkjunnar í íslensku samfélagi,“ sagði Kristrún Heimisdóttir lögfræð- ingur í framboðsræðu áður en hún var kjörin fyrsti varaforseti kirkju- þings þjóðkirkjunnar um liðna helgi. Kristrún sem kvaðst á kirkju- þinginu hafa hlotið kristilegt upp- eldi boðaði sókn þjóðkirkjunnar. „Á síðustu misserum og árum hefur það lagst sífellt meira á minn hug að þjóðkirkjan á Íslandi sé lykil atriði í því samfélagi sem ég ólst upp í og sem ég vil að afkomendur mínir og Íslendingar framtíðarinnar geti notið,“ sagði hún. Þess vegna vildi hún berjast gegn áðurnefndu undan- haldi kirkjunnar. „Ég tel að kirkjan eigi mikið af sóknarfærum og að við verðum að þora að taka umræðuna,“ sagði Kristrún. „Ég er reiðubúin að taka slagi fyrir kirkjuna og mér er alveg sama þótt mér verði úthúðað á sam- félagsmiðlum á meðan ég geri það.“ Kristrún kvaðst í starfi sínu innan Stjórnarráðsins hafa fylgst með laga- setningu um trúfélög. „Lögin um trú- félög eru að mínu mat bastarður og Zúistahneykslið segir allt sem segja Kirkjan stöðvi stjórnlaust undanhald þarf um það hversu slæm þau lög eru,“ sagði hún og bætti við að alltaf þegar hún gæfi fermingarbörnum gjafir léti hún fylgja þau orð að besti áhrifavaldurinn sé Jesús Kristur. „Og hvers vegna er búið að banna öllum börnum á Íslandi að hafa aðgang að þeim áhrifavaldi? En öll mega þau horfa á TikTok?“ Kristrún fékk átján atkvæði en mótframbjóðandi hennar, Steindór Haraldsson framkvæmdastjóri, tíu. „Við erum að fóta okkur í nýju umhverfi. Þannig að það er ekki alveg rétt að það hafi ekkert verið gert hérna,“ sagði Steindór í sinni ræðu. Markmið kirkjunnar væri að boða fagnaðarerindi Jesú Krists. „Þjóðkirkjan er eins og olíuskip sem ekki verður beygt á nóinu.“ n Rishi Sunak var í gær valinn formaður Íhaldsflokksins breska og verður þar með næsti forsætisráðherra Bretlands. Búist er við að Sunak taki við ráðherraembætti sínu í dag. SJÁ SÍÐU 6 FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY DÓMSMÁL Mikill hiti var í lögmanni mæðgnanna í hundaræktinni Gjósku gegn Hundaræktarfélagi Íslands er mál þeirra var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Mæðgunum var vísað úr félaginu og voru þær sviptar ættbókarskírteini eftir úrskurð um falsanir. Vakti það eftirtekt hversu hvöss samskipti lögmanna voru. Mestur hiti var í Jóni Egilssyni, lögmanni mæðgnanna. „Stefndu fóru í fjöl- miðla og sögðu mæðgurnar mestu svindlara í hundarækt á Íslandi,“ sagði Jón. Önnur konan hafi verið starfsmaður HRFÍ en „komist upp á kant við liðið,“ eins  og hann orðaði það. Allar tíkur mæðgnanna væru hreinræktaðar. SJÁ SÍÐU 4 Hiti er tekist var á um hundaræktun

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.