Fréttablaðið - 25.10.2022, Side 4

Fréttablaðið - 25.10.2022, Side 4
Fullyrðingar, fullyrð- ingar og fullyrðingar en engin gögn sem styðja þær. Jónas Fr. Jónsson, lögmaður HRFÍ BJÓÐUM UPP Á 37”-40” BREYTINGAPAKKA EIGUM NOKKRA BÍLA TIL AFHENDINGAR Í NÓVEMBER ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16 R A M BÍLL Á MYND: RAM 3500 LARAMIE CREW CAB MEÐ 37” BREYTINGU, KASTARAGRIND OG LJÓSKÖSTURUM kristinnhaukur@frettabladid.is VIÐSKIPTI Samkvæmt nýjum tölum Evrópusambandsins versla 85 pró- sent Íslendinga á netinu. Þetta er aukning um 10 prósent á þremur árum og 30 prósent á áratug en árið 2012 mældist hlutfallið aðeins 54 prósent hjá þeim sem höfðu keypt vöru eða þjónustu á undanförnum tólf mánuðum. Ekki eru til nákvæmar tölur um hvaðan Íslendingar versla á netinu en líkt og almenn netverslun hefur verið að aukast hefur netverslun við önnur lönd einnig gert það. Árið 2019 höfðu til að mynda 52 prósent Íslendinga keypt vörur eða þjónustu frá öðrum ESB- eða EES-ríkjum samanborið við aðeins 24 prósent árið 2012. Stór hluti landsmanna notar netið til þess að kaupa flugmiða og gistingu. Árið 2019 gerðu 60 prósent landsmanna það samanborið við 39 prósent árið 2012. Ísland er nú í sjötta sæti álfunnar þegar kemur að netverslun. Norð- menn eru í efsta sæti en 92 prósent þeirra versla á netinu. Þá koma Danir, Hollendingar, Írar og Svíar. Albanar reka lestina með aðeins 17 prósent. Almennt er hlutfallið mun lægra í austur- og suðurhluta álfunnar. n Netverslun eykst til allra muna 85 prósent Íslendinga versla á netinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY. Andrúmsloftið var allt annað en afslappað í héraðsdómi í gær þegar lögmenn Gjósku og HRFÍ tókust á um frávís- unarkröfu þess síðarnefnda. Mæðgur eru sakaðar um rangskráningu á goti. kristinnhaukur@frettabladid.is DÓMSMÁL Mál mæðgnanna í schä- fer-hundaræktinni Gjósku gegn Hundaræktarfélagi Íslands (HRFÍ) er aftur komið fyrir dómstóla. Mæðgunum Örnu Rúnarsdóttur og Rúnu Helgadóttur var vísað úr félag- inu og voru sviptar ættbókarskír- teini eftir að siðanefnd úrskurðaði að ættbókarskráningar hefðu verið falsaðar sumarið 2021. Máli gegn félaginu sjálfu var vísað frá í janúar síðastliðnum í héraði og sá dómur staðfestur mánuði seinna þar sem ekki þótti afgerandi hvort verið væri að stefna félaginu sjálfu eða stjórn þess. Nú er þeim einstakl- ingum sem sitja í stjórninni stefnt, og félaginu til vara, en aftur er farið fram á frávísun. Óhætt er að segja að hiti hafi verið í málf lutningi frávísunarmálsins sem fram fór í Héraðsdómi Reykja- víkur í gær. Vakti það eftirtekt hversu hvöss samskipti lögmanna voru áður en dómari gekk inn í salinn. Vanalega spjalla lögmenn á kumpánlegum nótum hver við annan utan réttar þó að þeir takist á í málflutningi. Mestur hiti var í Jóni Egilssyni, lögmanni mæðgnanna, og bað dómari hann í nokkur skipti að einskorða málflutning sinn við frá- vísunina sjálfa. En Jón lagði áherslu á hversu mikil áhrif málið hefði haft á mæðgurnar og hvaða þýðingu það hefði fyrir ræktendur að vera í félag- inu. „Stefndu fóru í fjölmiðla og sögðu mæðgurnar mestu svindlara í hundarækt á Íslandi,“ sagði hann, en Daníel Örn Hinriksson, einn hinn stefndu, hefur talað máli stjórnar- innar í fjölmiðlum vegna málsins. Jón sagði að sem hundaræktandi í fullu starfi gæti Arna ekki stundað atvinnu sína í dag. Ræktendur yrðu að vera meðlimir í HRFÍ til að geta tekið þátt í sýningum. Bæði æran og fjármunir væru undir. Sagði Jón ástæðuna fyrir málinu öllu þá að Rúna hefði verið starfs- maður HRFÍ en „komist upp á kant við liðið“. Sagði hann að Rúna hefði meðal annars fundið að því að ræktendur tengdir stjórn félagsins væru að klippa rófur af hundum til fegrunar. Það mál sé nú til með- ferðar hjá Matvælastofnun. „Fullyrðingar, fullyrðingar og fullyrðingar en engin gögn sem styðja þær,“ sagði Jónas Frið- rik Jónsson, lögmaður HRFÍ og stjórnarmeðlima. Hann fer fram á að málinu verði vísað frá og mæðg- urnar greiði málskostnað, en í fyrra málinu var málskostnaður felldur niður. Sagði hann slíka ágalla á mála- tilbúnaðinum að ekki væri hægt að grípa til varna. Meðal annars væri dómkrafan ódómtæk því þar væri samofin krafa um ógildingu bráðabirgða- og fullnaðarúrskurðar siðanefndarinnar. Þá væri krafan í heild sinni vanreifuð, í henni væru sífelldar endurtekningar og vísanir í hluti sem skipta ekki máli. Ekki væru lögð fram nein sönnunar- gögn og ekki reifað hvers vegna ein- staklingum sé stefnt, en meðlimir í stjórn taki aðeins ákvarðanir í nafni stjórnar. Um úrskurð siðanefndar sagði Jónas hann afar viðamikinn og brotið metið alvarlegt. Röng rækt- unartík hefði verið skráð, rangar upplýsingar gefnar til HRFÍ meðal annars um dauðan hund og meið- andi ummæli látin falla um fram- kvæmdastjóra HRFÍ. Jón hafnaði þessu og sagði öll atriði stefnunnar studd gögnum. Sagði hann það dónaskap að halda öðru fram. Engin gögn hefðu hins vegar fylgt kæru HRFÍ sem hefði verið upphafið að málinu. Þá væri úrskurður siðanefndar rangur og mæðgurnar hefðu enga ástæðu til að nota rangar mæður í got. Allar þeirra tíkur væru hreinræktaðar og ættbókarfærðar. n Mikill hiti í dómsal í schäfer-málinu Schäfer-hundamálið hefur vakið mikla athygli. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Jón Egilsson, lögmaður Gjósku jonthor@frettabladid.is BJÖRGUN Fjallað var um köfunarað- gerðir eftir að flugvél endaði í Þing- vallavatn í febrúar síðastliðnum á ráðstefnunni Björgun 2022 í síðustu viku. Fjórir létust í flugslysinu. Ásgeir Guðjónsson, fagstjóri köf- unar hjá Landhelgisgæslunni, Samú- el A. W. Ólafsson, hópstjóri kafara hjá ríkislögreglustjóra, og Guðjón S. Guðjónsson, aðstoðarvarðstjóri hjá slökkviliðinu, lýstu reynslu sinni. Þann 22. apríl náðist flak vélarinn- ar á land eftir miklar og krefjandi aðgerðir kafara sem snerust í fyrstu um að finna flakið og lík þeirra sem voru í f lugvélinni og síðan um að koma þeim í land. Viðbragðsaðilar glímdu við erfiðar veðuraðstæður og þurftu til dæmis að hætta við björgunaraðgerð 6. febrúar. Þá var lofthiti mínus þrettán gráður og vatnið var við frostmark. Myndband frá því er kafarar hífðu flak vélarinnar upp var sýnt á fyrir- lestrinum. Það er á vef Fréttablaðs- ins, en það gefur innsýn í aðstæður kafaranna. Ásgeir hjá Landhelgis- gæslunni, lýsti því til að mynda að á þessu dýpi liði manni „eins og maður sé búinn með fjóra martini“. n Krefjandi björgunaraðgerðir í Þingvallavatni Líkt og sést á þessari mynd fóru kafararnir á tæplega 45 metra dýpi til að komast að flakinu. MYND/ SKJÁSKOT Ísland er í 6. sæti álfunnarþegar kemur að netverslun. 4 Fréttir 25. október 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.